Augasteinn eða örorka

Töluverð umræða hefur verið um langa bið eftir augasteinsaðgerðum í heilbrigðiskerfinu. Samkvæmt upplýsingum sem komið hafa fram var miðgildi biðtíma eftir slíkum aðgerðum á Landsspítala um 80 vikur árið 2025.

Á bak við tölurnar er fólk sem bíður eftir að fá bætta sjón og lífsgæði. Skert sjón getur haft mikil áhrif á daglegt líf, sjálfstæði og starfsgetu fólks. Fyrir fólk á vinnumarkaði getur löng bið haft áhrif á starfsgetu og fyrir eldra fólk getur skert sjón komið niður á lífsgæðum og aukið þörf fyrir aðstoð.

Þess vegna segir það ekki alla söguna að horfa eingöngu til þess hvað hver aðgerð kostar. Það þarf líka að horfa til þess kostnaðar sem biðin eftir aðgerð getur kostað fólk og samfélagið í heild.

Biðin kostar sitt

Augasteinsaðgerð ætti ekki að vera munaður og ég veit að þar deili ég skoðun með Ölmu Möller heilbrigðisráðherra. Löng bið getur haft í för með sér fjarvistir frá vinnu, aukna þörf fyrir aðstoð og jafnvel brotthvarf af vinnumarkaði. Kostnaðurinn við biðina getur því birst með ýmsum hætti.

Í dag eru augasteinsaðgerðir gerðar bæði á sjúkrahúsum og hjá sjálfstætt starfandi augnlæknum. Fólk sem hefur fjárhagslegt svigrúm getur hugsanlega greitt fyrir slíka aðgerð sjálft. Þeir sem hafa ekki efni á því að standa undir þessum kostnaði þurfa að bíða lengur.

Flokkur fólksins hefur sérstaklega staðið vörð um þá sem minna hafa milli handanna. Í okkar huga á aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu ekki að ráðast af því hvort fólk hafi efni á að greiða fyrir aðgerð úr eigin vasa.

Finnum færar leiðir

Heilbrigðisráðherra þekkir vandann vel. Hún hefur nú þegar falið Sjúkratryggingum að finna leiðir til að fjölga samningsbundnum augasteinsaðgerðum. Ráðherra hefur sagt mikilvægt fjölga aðgerðum samkvæmt samningum við einkaaðila án þess að veikja getu Landspítala til að sinna þessari mikilvægu þjónustu. Alma Möller á hrós skilið fyrir elju sína við að leita lausna á biðlistum og öðrum uppsöfnuðum vanda í heilbrigðiskerfinu.

Í skriflegri fyrirspurn minni til heilbrigðisráðherra sem nýlega var lögð fram á Alþingi er leitast við að fá svör við því hvað hefur valdið langri bið eftir augasteinsaðgerðum á undanförnum árum. Því vandinn er sannarlega ekki ný til kominn.

Svörin leiða vonandi í ljós hvaða leiðir heilbrigðisráðherra sér til að vinna á biðlista eftir þessum nauðsynlegu aðgerðum. Meðal annars hvernig nýta megi betur samninga við sjálfstætt starfandi augnlækna og styrkja um leið getu Landspítala til að sinna þessum aðgerðum.

Ég veit að sameiginlegt markmiðið okkar er að fólk fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu innan ásættanlegs tíma, óháð efnahag. Þetta er eitt af þeim málum sem alger samstaða ríkir um í stjórnarsamstarfinu.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins