Breytingar á einkunnarkerfinu – Störf þingsins

Virðulegi forseti.

Mig langar að ræða breytingar á einkunnakerfinu sem hafa verið mikið í umræðunni. Undanfarin ár hefur verið stuðst við bókstafakerfið en samkvæmt upplýsingum mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur verið mikið misræmi í einkunnagjöf milli skóla.

Nú hefur ráðherra ákveðið að gera löngu tímabærar breytingar. Tölueinkunnir koma í stað bókstafa við útskrift úr 10. bekk næsta vor. Byrjað verður aðeins í 10. bekk, sem er skynsamlegt.
Málið þolir ekki frekari bið.

Nýja kerfið byggir áfram á hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Lokaeinkunnir verða á bilinu 4–10. Einkunnin 7 merkir skilgreinda lágmarkshæfni. En hvað þýðir að fá 8, 9 eða 10?
Jú, það þýðir að nemandi sýnir meiri dýpt, sjálfstæði og færni í að beita þekkingunni með fjölbreyttum hætti.

Virðulegi forseti

Tökum dæmi úr íslensku. Nemandi getur sýnt góðan lesskilning með því að svara spurningum um texta. Annar getur auk þess túlkað boðskapinn, borið saman sjónarmið, dregið sjálfstæðar ályktanir og rökstutt þær. Þannig má meta meiri dýpt í skilningi.
Sambærileg verkefni má leggja fyrir í öðrum námsgreinum.

Ráðuneytið hefur birt leiðbeinandi vægi hæfniþátta innan námsgreina til að skýra hvernig þeir vega í lokaeinkunn.

Kennarar fá leiðbeiningar og stuðning við innleiðinguna, meðal annars um muninn á einkunnunum 7–10.

Tölustafir einir tryggja ekki samræmi. Það gera skýr viðmið og sameiginlegur skilningur.

Fram undan er einnig heildarendurskoðun aðalnámskrár. Breytingin er því hluti af stærra verkefni.

Markmiðið er einfalt. Einkunn á að segja til um hæfni nemandans og að tryggja að sömu hæfniþættir séu metnir með sambærilegum hætti og hafi svipað vægi í lokaeinkunn, óháð skóla.

Það er löngu tímabært að tryggja börnum sanngjarnara og gagnsærra námsmat.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir