Framkvæmdaáætlun félags- og húsnæðismálaráðherra í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 er nú komin til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis. Þetta er mikilvægt mál og löngu tímabært. Flokkur fólksins hefur lagt ríka áherslu á að allir hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu, óháð uppruna og aðstæðum.
Það er ekki erfitt að setja sig í spor þess sem ekki skilur það tungumál sem talað er þar sem hann býr. Að eiga í erfiðleikum með dagleg samskipti og geta ekki tjáð sig um hugðarefni sín. Geta ekki átt eðlileg samskipti við fyrirtæki og stofnanir, hvað þá stundað nám á tungumáli heimafólks. Það er einmanaleg og mjög takmarkandi staða.
Aðgerðaráætlunin sem nú er til meðferðar á Alþingi tekur meðal annars til íslenskunáms, betri móttöku innflytjenda og aðgengis að þjónustu. Áhersla er lögð á að aðgerðir byggi á rannsóknum, tölfræði og greiningu á raunverulegum þörfum. Ekki má heldur gleyma þeim sem standa höllum fæti og þurfa aukinn stuðning. Sérstaklega þarf að hlúa að börnum og eldra fólki.
Okkur þykir vænt um íslenskuna
Í Flokki fólksins er okkur annt um íslenskuna, móðurmálið okkar. Við viljum gera allt til að varðveita og efla okkar fallega tungumál. Við viljum að fólk sem sest hér að til frambúðar læri íslensku, tali hana og geti notað hana af öryggi í leik og starfi.
En það dugar ekki að segja fólki einfaldlega að læra íslensku. Við verðum að skapa fólki raunveruleg tækifæri til þess. Námið þarf að vera aðgengilegt, skipulagt og sveigjanlegt þannig að hægt sé að stunda það samhliða vinnu og fjölskyldulífi. Sérstaka áherslu þarf að leggja á talmálið; að fólk fái tækifæri til að æfa sig, gera mistök, læra af þeim og öðlast sjálfstraust.
Við sem höfum íslenskuna að móðurmáli berum mikla ábyrgð. Því miður eru mörg okkar allt of oft tilbúin að skipta sjálfkrafa yfir í ensku þegar einhver sem ekki hefur náð fullum tökum á íslenskunni reynir að tala við okkur íslensku. Gefum fólki tækifæri til að spjara sig.
Menntun má ekki fara forgörðum
Það er jafnframt mikilvægt að við nýtum betur þá menntun, þekkingu og reynslu sem innflytjendur koma með sér til landsins. Menntun er fjárfesting. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að hæfileikar allra fái að njóta sín í stað þess að fara forgörðum.
Framkvæmdaáætlunin snertir ekki eingöngu hagsmuni innflytjenda. Hún varðar hagsmuni okkar allra. Þegar fólk fær tækifæri til að læra tungumálið, standa á eigin fótum og taka virkan þátt í samfélaginu styrkjum við atvinnulífið, efnahaginn og samfélagið í heild.
Pistillinn er birtur í Morgunblaðinu 20.10. 2026