You are currently viewing Sálfræðistofan Álfabakka 12

Sálfræðistofan Álfabakka 12

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er löggiltur sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún er einnig kennari, með kennsluréttindi bæði á grunn- og framhaldsskólastigi. Kolbrún hefur haldið fyrirlestra um félags- og sálfræðileg málefni um árabil. Fyrir um það bil 15 árum fór hún að gera eineltismálum sérstaklega skil. Eftir að hafa starfað í tíu ár sem skólasálfræðingur hafa eineltismálin orðið henni æ hugleiknari enda afleiðingar eineltis geigvænlegar. Kolbrún hefur haldið fjölda fyrirlestra um eineltismáli fyrir börn, foreldra, íþrótta og æslulýðsfélög og vinnustaði. Hún er höfundur bókar um einelti, EKKI MEIR en bókin kom út hjá Skólavefnum árið 2012.  Kolbrún hefur skrifað fjölda pistla og greina um eineltismál en einnig um ýmis sálfræðileg efni sem birst hafa víða sem og haldið úti um tveggja ára skeið sjónvarpsþáttum á ÍNN sem hétu Í nærveru sálar.

Hér á vefnum kolbrunbaldurs.is er að finna fræðslu um aðgerðir gegn einelti, forvarnir og verkferla við úrvinnslu eineltismála, auk greina og pistla um þennan málaflokk og sýnishorn af viðbragðsáætlun og tilkynningareyðublaði fyrir skóla, félög, stofnanir og fyrirtæki.

Sálfræðistofa Kolbrúnar Baldursdóttur er staðsett í Álfabakka 12, Mjódd. Stofan býður sem stendur aðeins upp á ADHD greiningu fullorðinna eftir því sem tími leyfir. Hægt er að senda fyrirspurnir um fyrirkomulag á netfangið kolbrunbald@simnet.is.

Kolbrún á aðild að eftirtöldum félögum:

– Félag sérfræðinga í klínískri sálfræði
– Sálfræðingafélag Íslands


Sjá nánar ferilskrá Kolbrúnar og ítarlegri ferilskrá og ferilskrá á ensku
FRÆÐSLUERINDI Lestu um þau fræðsluerindi sem í boði eru
STAÐSETNING STOFU Álfabakki 12, Mjódd
LESA NÁNAR Sjá nánar um ADHD greiningu fullorðinna