Skattur og skattur

Þingmenn stjórnarandstöðunnar opna varla munninn þessa dagana án þess að tala um skattahækkanir. Af orðræðunni að dæma mætti halda að ríkisstjórnin væri komin með hendurnar ofan í alla vasa launafólks til að taka stærri sneið af launum þeirra.

Það er alls ekki þannig.

Tekjuskattsprósentur einstaklinga hafa ekki verið hækkaðar í tíð þessarar ríkisstjórnar. Þær eru óbreyttar og um síðustu áramót hækkuðu bæði þrepamörk og persónuafsláttur.

Það þýðir hins vegar ekki að engir skattar eða gjöld hafi hækkað.

Veiðigjöld voru hækkuð með það að markmiði að þjóðin fengi eðlilegra endurgjald fyrir afnot af sameiginlegri auðlind. Langstærsti hluti veiðigjaldanna leggst á stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins.

Kílómetragjald var tekið upp fyrir alla bíla vegna þverrandi tekna af bensín- og olíugjöldum. Það er í besta falli hálfsannleikur að kalla kílómetragjaldið nýjan skatt á ökumenn. Á móti voru bensín- og olíugjöld felld niður.

Kílómetragjald hafði verið  tekið upp fyrir ákveðna bíla í tíð síðustu ríkisstjórnar og núverandi ríkisstjórn útfærði kerfið áfram og innleiddi það fyrir alla bíla. Það er eðlilegt að þeir sem nota vegakerfið mest taki ríkari þátt í að standa undir viðhaldi þess og uppbyggingu.

Það skiptir máli hvar skattbyrðin lendir. Það er ekki sambærilegt að hækka tekjuskatt á launafólk og að afla tekna með gjöldum sem tengjast ákveðinni notkun eða neyslu. Í því sambandi  má nefna hækkun VSK á aðgang í baðlón þar sem ferðamenn eru stór hluti gesta. Samt er þessu gjarnan öllu hrært saman og kallað skattahækkun á „venjulegt fólk“.

Þegar staða ríkisfjármála er þröng eru fáar leiðir færar. Það er hægt að skera niður þjónustu, fresta framkvæmdum, auka skuldir eða finna leiðir til að afla tekna. Ef við viljum verja grunnþjónustuna og halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu þarf að afla tekna.

Ekkert hókus, pókus

Það kostar að reka samfélag. Við viljum góða heilbrigðisþjónustu, fleiri hjúkrunarrými, góða skóla, örugga vegi, öfluga löggæslu og sterkt velferðarkerfi. Allt kostar þetta peninga og þeir vaxa ekki á trjánum. Hér er ekkert hókus, pókus.

Þrátt fyrir allt talið um skattahækkanir er ekki gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs taki stærri hluta af verðmætunum sem verða til í landinu á næstu árum. Þvert á móti á hlutfallið að lækka lítillega.

Stjórnmál snúast meðal annars um að forgangsraða og taka ábyrgð á því hvernig við ætlum að standa undir nauðsynlegri þjónustu samfélagsins. Það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Skattur er nefnilega ekki bara skattur. Gjald er ekki heldur bara gjald. Það skiptir máli hver borgar, fyrir hvað og hvers vegna.

Birt í Morgunblaðinu föstudaginn 18. september 2026