Skýrara og sanngjarnara námsmat

Hvernig getur það staðist að í einum grunnskóla fái rúmlega helmingur nemenda A í lokaeinkunn en í öðrum skóla enginn? Samkvæmt upplýsingum mennta- og barnamálaráðuneytisins var hlutfall nemenda sem fékk A á bilinu 0–56,7% eftir skólum. Slíkur munur vekur upp alvarlegar spurningar um samræmi í einkunnagjöf. Auðvitað getur námsárangur verið mismunandi milli skóla en þessi munur er of sláandi. Einkunnir hafa áhrif á möguleika nemenda til inngöngu í framhaldsskóla. Því skiptir máli að allir sitji við sama borð.

Biðin hefur verið nógu löng

Bókstafakerfið hefur verið við lýði í rúman áratug og lengi hefur verið kallað eftir skýrara og samræmdara námsmati. Nú hefur Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra ákveðið að taka af skarið. Tölueinkunnir eiga að koma í stað bókstafa við útskrift úr 10. bekk næsta vor. Gagnrýni á undirbúninginn þarf að skoða, en hún má ekki verða til þess að nauðsynlegum breytingum sé frestað enn á ný. Vandinn hefur verið þekktur lengi og ekki forsvaranlegt að fresta breytingum.

En hvernig er þessi hæfni mæld?

Hvað þýðir að fá 7, 8, 9 eða 10? Nýja kerfið byggir áfram á hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Lokaeinkunnir verða á bilinu 4–10. Einkunnin 7 merkir að nemandi hafi náð skilgreindri lágmarkshæfni en 8, 9 og 10 lýsa stigvaxandi meiri dýpt, sjálfstæði og færni í að beita þekkingunni.

Tökum dæmi úr íslensku. Nemandi getur sýnt góðan lesskilning með því að svara spurningum um texta. Annar getur auk þess túlkað boðskapinn, borið saman sjónarmið, dregið sjálfstæðar ályktanir og rökstutt þær. Þannig má meta meiri dýpt í skilningi. Sambærileg verkefni má leggja fyrir í öðrum námsgreinum, þar sem reynir á skilning, rökhugsun og sjálfstæða úrlausn.

Ekki geðþóttamat kennara

Lokaeinkunn byggir á fjölbreyttum gögnum yfir skólaárið, svo sem prófum, verkefnum, ritgerðum og öðrum úrlausnum, ásamt faglegu heildarmati kennara. Ráðuneytið hefur nú birt leiðbeinandi vægi mismunandi hæfniþátta innan námsgreina. Þannig er verið að setja skýrari ramma um hvernig einstakir þættir vega í lokaeinkunn. Endanleg útfærsla vægisins verður ákveðin að loknu frekara samráði.


Kennarar fá jafnframt leiðbeiningar og stuðning við innleiðinguna, meðal annars til að skýra betur muninn á einkunnunum 7, 8, 9 og 10. Tölustafir einir og sér tryggja ekki samræmi. Það gera skýr viðmið og sameiginlegur skilningur á því hvað hver einkunn merkir.


Fram undan er einnig heildarendurskoðun aðalnámskrár grunnskóla. Breytingin er því hluti af stærra verkefni.


Markmiðið er einfalt. Einkunn á að segja til um hæfni nemandans, ekki í hvaða skóla hann gekk. Það er löngu tímabært að tryggja börnum sanngjarnara og gagnsærra námsmat.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, alþingimaður og formaður velferðarráðs Alþingis