Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð 10. nóvember 2022

Bókun Flokks fólksins við framlagningu og afgreiðslu tillögu Flokks fólksins um aðgengi fatlaðs fólks sbr. 6. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 25. ágúst 2022. Jafnframt er lögð fram umsögn aðgengis- og samráðsnefndar dags. 6. október 2022:

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Flokkur fólksins lagði til að gerð yrði athugun á aðgengismálum fatlaðra. Farið verði í skipulagða úttekt á miðborginni á því hvaða staðir það eru þar sem ekki er hægt að koma við hjólastól og þar sem hættur leynast fyrir sjónskerta svo fátt eitt sé nefnt. Tillögunni var vísað til umsagnar aðgengis- og samráðsnefndar með bréfi mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu þann 1. september 2022. Í umsögn bendir aðgengis-og samráðsnefnd á að aðgengisstefna Reykjavíkur hafi verið samþykkt 3.maí 2022. Nefndin telur mikilvægt sé að úttektir séu gerðar í samræmi við aðgengisstefnuna þar sem horft sé til ólíkra og fjölbreyttra aðgengisþarfa. Flokkur fólksins hefur bent á að þessi samþykkta aðgengisstefna borgarinnar sé ekki sýnileg, ekki á vef borgarinnar. Hefur Flokkur fólksins fengið loforð um að úr því verði bætt.

 

Bókun Flokks fólksins við afgreiðslu tillögu Flokks fólksins um að fundir mannréttinda- og ofbeldisvarnaráðs verði opnir fundir, sbr. 16. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 22. september 2022:

Tillögunni er vísað frá með sex atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks Íslands gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins.

Tillaga Flokks fólksins var um að fundir mannréttinda- og ofbeldisvarnaráðs verði opnir fundir. Gagnsæi hefur oft verið í umræðunni hjá síðasta meirihluta og er þessi tillaga liður í að opna vinnu borgarfulltrúa fyrir borgarbúum. Vinna í mannréttinda- og ofbeldisráði er kjörið ráð til að hafa fundi að öllu jafna opna í þeirri merkingu að borgarbúar geti hlustað á það sem fram fer á fundum, kynningar, fræðslu og umræðu um mál sem eru á dagskrá. Mannréttindi og ofbeldismál varða okkur öll og er sjálfsagt að allir sem vilja hafi greiða aðkomu að stjórnkerfi sem fjallar um þessi mál. Ef verið er að fjalla um persónugreinanleg málefni á þessi hugmynd vissulega ekki við. Lítið mál er að stjórna því ef um er að ræða streymi eða upptöku. Auknar upplýsingar hvetja auk þess til frekari þátttöku íbúa og efla lýðræðið. Tillagan er lögð fram í ljósi þess að í samþykktum ráðsins segir að það skuli stuðla að hvers konar upplýsingagjöf og upplýstri umræðu um ofbeldi á öllum sviðum borgarinnar. Í Ráðinu eru jafnan upplýsandi og fróðlegar kynningar sem eiga erindi við borgarbúa.

 

Bókun Flokks fólksins við afgreiðslu tillögu Flokks fólksins um skipan í ráð og nefndir, sbr. 15. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 22. september 2022:

Tillögunni er vísað frá með sex atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks Íslands gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins.

Tillaga fulltrúa Flokks fólksins um skipan í ráð og nefndir: Fulltrúi Flokks fólksins vísar hér í bókun Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis þar sem gerð er athugasemd við kynjaskiptingu fulltrúa í Öldungaráði Reykjavíkurborgar 2022 – 2023. Aðalfulltrúar eru samtals níu, þar af eingöngu 3 karlar á móti 6 konum. Þar munar mestu um að aðalfulltrúar borgarstjórnar eru 3 og allir konur. Fulltrúa skipting ráðsins er þriðjungur karlar og 2/3 konur. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttindaráð beiti sér í þessu máli. Ráðið gæti sent frá sér hvatningu/yfirlýsingu til sitjandi borgarfulltrúa og til viðkomandi ráða þar sem kynjahlutföll eru í ólestri.

 

UMRÆÐUR

Bókun Flokks fólksins við umræðu um stöðu eineltismála:

Það eru allir slegnir yfir þeim hræðilegu eineltismálum sem hafa opinberast undanfarið. Flokkur fólksins vill að þessi mál verði tekin alvarlega og að farið verði í að skoða hvernig staðan er hjá Reykjavíkurborg og leggur áherslu á að allir eineltisferlar verði skoðaðir í grunnskólum Reykjavikur. Hér er um samvinnuverkefni okkar allra að ræða. Skólar- og íþróttafélög eru í lykilstöðu í þessum málum. Í þessu sambandi má nefna að á næsta fundi borgarstjórnar mun Flokkur fólksins leggja fram tillögu um að sett verði upp mælaborð þar sem hægt er að sjá hvaða úrræði skólar, íþrótta- og tómstundafélög Reykjavíkurborgar, hafa tiltæk þegar upp koma eineltis eða önnur ofbeldismál. Í sérhverri verkfærakistu skóla og félaga þurfa að vera til eftirfarandi gögn og þau aðgengileg á heimasíðu eða í snjallforriti: Stefna í eineltis- og öðrum ofbeldismálum, Viðbragðsáætlun þar sem raktir eru verkferlar ef tilkynning berst um einelti, Tilkynningareyðublað, Upplýsingar um hverjir sitja í eineltisteyminu. Gagnsemi mælaborðsins er margþætt m.a. Að foreldrar geta kynnt sér viðbragðsferilinn áður en barn byrjar í skólanum eða í íþróttafélagi.

 

Bókun Flokks fólksins við umræðu um ofbeldi meðal ungmenna:

Stýrihópur sem kortleggur aukinn vopnaburð eggvopna meðal ungmenna í Reykjavík. Einnig meta viðbrögð borgarinnar sem lýtur að forvörnum. Mikilvægt er að fá upp á borðið hugmyndir að fjölbreyttum aðgerðum sem hafa það að markmiði að ná til barnanna, foreldra og annarra sem tengjast börnum í starfi þeirra. Kalla þarf eftir félagslegri umræðu og skerpa á ábyrgð foreldra, skólasamfélagsins og íþrótta og tómstunda hreyfinga. Allir aðilar þurfa að taka ábyrgð og koma að fræðslu og forvörnum. Við þurfum að ræða hver er aðkoma samfélagsmiðla að þessari þróun en allt of stór hópur barna er á samfélagsmiðlum sem hafa ekki aldur til þess. Fyrst og fremst verðum við að eiga samtal um þessa þróun og hlusta og bregðast við. Stoppa þarf þessa þróun með öllum ráðum og dáð.

 

Bókun Flokks fólksins undir umræða um hatursorðræðu og aukið aðkast sem hinsegin ungmenni verða fyrir:

Þessi aukning á hatursorðræðu og fordómum í garð hinsegin ungmenna er hræðileg eins og allt ofbeldi. Hatursorðræða er ofbeldi sama hverjum það beinist að. Hver sem verður fyrir fordómum eða ofbeldi verður að finna að það sé tekið mark á honum/henni og að viðkomandi fái stuðning frá nærsamfélaginu. Sennilega er þessi aukning hluti af þeim vanda sem er að birtast okkur í öðrum ofbeldismálum og hugsanlega tengd vanlíðan ungs fólks sem fram hefur komið í ýmsum skýrslum. Þessir fordómar og hatursorðræða virðist fyrst og fremst birtast á samfélagsmiðlum. Eitt af meginmarkmiðum ætti því að vera að stuðla að vitundarvakningu um hatursáróður og hatursorðræðu á netinu til að vara og vernda börn og ungmenni. Gerendur í þessum málum gera sér sennilega ekki grein fyrir því hvað gerðir þeirra hafa alvarlegar afleiðingar og þá ekki bara fyrir þolendur heldur líka fyrir gerendur. Þess vegna er mikilvægt að styðja alla aðila í slíkum málum og hefjast handa við að fræða börn og ungmenni um hvað svona hegðun er meiðandi og skaðleg. Flokkur fólksins vonar og trúir því að allir flokkar í borgarstjórn taki þessa þróun alvarlega og bregðist við eins fljótt og auðið er.

 

Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um stofnun stýrihóps sem kortleggur aukinn vopnaburð eggvopna meðal ungmenna, sbr. 4. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 18. október.

Greinagerð fylgir tillögunni

Frestað.

 

Tillaga fulltrúa Flokks Flokks fólksins um samvinnu vegna aukins ofbeldis ungmenna þar sem eggvopn koma við sögu, sbr.13. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. september 2022.

Frestað.

 

Tillaga fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um auknar forvarnir, sbr. 17. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 22. september 2022.

Frestað.

 

Tillaga fulltrúa Flokks fólksins um að fjármagn til NPA samninga sé ekki nægjanlegt, sbr. 12. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 27. október 2022. MSS22100261

Frestað.

 

Tillaga fulltrúa Flokks fólksins um að kynningar í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði verði opnar borgarbúum, sbr. 13 lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 27. október 2022.

Frestað.

 

Tillaga fulltrúa Flokks fólksins um myndavélar á leikvöllum borgarinnar, sbr. 14. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 27.október 2022. MSS22100263

Frestað.