Barnavernd og farsæld á lokaspretti

Tvö nátengd og stór mál í þágu barna hafa nú verið afgreidd út úr velferðarnefnd Alþingis öðru sinni. Það er annars vegar frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd og hins vegar þingsályktunartillaga um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030. Bæði málin eru frá Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og hafa nú verið til meðferðar á tveimur þingum.

Lesa meira »

Hinar mörgu myndir eineltis

Sunnudaginn 8. nóvember er dagur gegn einelti. Dagurinn minnir okkur á að baráttan gegn einelti er ekki verkefni eins dags á ári heldur allra daga. Í ár langar mig að beina sjónum að yngstu börnunum. Í starfi mínu sem sálfræðingur í 30 ár kom ég að fjölda eineltismála á vettvangi skóla, íþrótta og vinnustaða. Þessi málaflokkur á ávallt ríkan sess

Lesa meira »

Skýrara og sanngjarnara námsmat

Hvernig getur það staðist að í einum grunnskóla fái rúmlega helmingur nemenda A í lokaeinkunn en í öðrum skóla enginn? Samkvæmt upplýsingum mennta- og barnamálaráðuneytisins var hlutfall nemenda sem fékk A á bilinu 0–56,7% eftir skólum. Slíkur munur vekur upp alvarlegar spurningar um samræmi í einkunnagjöf. Auðvitað getur námsárangur verið mismunandi milli skóla en þessi munur er of sláandi. Einkunnir

Lesa meira »

Atlaga gegn fátækt

Fyrir tilstuðlan Flokks fólksins hefur ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn á Alþingi tekið stór skref til að bæta kjör þeirra sem standa höllustum fæti í samfélaginu. Við látum ekki duga að tala um fátækt barna heldur leggjum fram áætlun um hvernig draga megi úr henni. Það er löngu tímabært að stjórnvöld taki fátækt barna föstum tökum með skýrri stefnu og aðgerðum sem

Lesa meira »

Íslenskan er lykillinn að samfélaginu

Framkvæmdaáætlun félags- og húsnæðismálaráðherra í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 er nú komin til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis. Þetta er mikilvægt mál og löngu tímabært. Flokkur fólksins hefur lagt ríka áherslu á að allir hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu, óháð uppruna og aðstæðum. Það er ekki erfitt að setja sig í spor þess sem ekki skilur það tungumál

Lesa meira »

Leigubremsa skynsamleg

Yfir hundrað þúsund manns búa í leiguhúsnæði hér á landi, á um fimmtíu þúsund heimilum. Hjá mörgum fer yfir 40 prósent ráðstöfunartekna til greiðslu húsaleigu. Leigjendur búa við mikið óöryggi varðandi búsetu og hækkun leiguverðs. Leigumarkaðurinn minnir oft á villta vestrið þar sem leigjendur ráða litlu um sín kjör. Nú hefur Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra Flokks fólksins lagt

Lesa meira »

Barnæskan bíður ekki

Gjafakort eða gjafabréf eru vinsælar tækifærisgjafir, stundum fyrir umtalsverðar upphæðir. Þau geta verið þægileg þegar erfitt er að vita hvað fólk langar í. Gjafakort gefa einnig viðtakandanum frelsi til að velja. Margir kannast hins vegar eflaust við að hafa gleymt gjafakorti ofan í skúffu eða veski, eða að kortið hafi týnst tímabundið og finnist kannski þegar gildistíminn er liðinn. Það

Lesa meira »

Barnæskan bíður ekki

Miklar breytingar gerast ekki með einu frumvarpi eða einni ákvörðun. Þær verða þegar mörg púsl raðast loks saman í eina heildarmynd. Þetta er einmitt að gerast um þessar mundir í málefnum barna og skóla. Á haustþingi verða tekin fyrir stór og mikilvæg mál frá mennta- og barnamálaráðherra. Frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd, þingsályktanir um farsæld barna og aðgerðir gegn

Lesa meira »

Kominn tími til að tengja

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2022. Markmið laganna voru að ýmis kerfi sem þjóna börnum tali betur saman. Að börn og fjölskyldur fái aðstoð fyrr og þurfi ekki sjálf að bera ábyrgð á því að tengja saman skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og barnavernd. Í júní birti Ríkisendurskoðun gagnrýna skýrslu um innleiðinguna. Þar kemur meðal annars

Lesa meira »

Enginn miskunn hjá Reykjavíkurborg

Nú hefur nýr meirihluti Reykjavíkurborgar ákveðið að loka svæði fyrir hjólhýsabúa á Sævarhöfða og reka fólkið burt. En hvert á það að fara? „Engin miskunn hjá Magnúsi“ segir gamalt orðatiltæki. Mér varð hugsað til þess þegar ég las þessi nýjustu tíðindi af aðstæðum hjólhýsabúa. Flokkur fólksins hefur barist fyrir stöðu þessa hóps árum saman. Ég fór sjálf á Sævarhöfða sumarið

Lesa meira »

Farsæld í farvegi

Í umræðunni um Farsæld barna mætti stundum halda að hér væri um nýtt verkefni að ræða sem enn væri að mestu á teikniborðinu. Svo er alls ekki. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, oft kölluð „farsældarlögin“, tóku gildi árið 2022. Markmið þeirra er að börn og fjölskyldur fái aðstoð fyrr og þurfi ekki sjálf að ganga á milli

Lesa meira »

Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna

Félagsmiðstöðvar gegna margþættu hlutverki og eru ekki aðeins staður þar sem unglingar hittast eftir skóla. Félagsmiðstöð getur einnig veitt ungu fólki öryggi, verið athvarf, vettvangur vináttu og jafnvel staðurinn þar sem einhver fullorðinn tekur eftir því þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þess vegna hef ég áhyggjur af þeim mikla niðurskurði sem nú blasir við í

Lesa meira »

Hagræðing eða þjónustuskerðing?

Hagræðing eða þjónustuskerðing? Það er óþarfi að deila um hvort Reykjavíkurborg þurfi að hagræða. Borgarkerfið hefur vaxið mikið og lengi hefur verið þörf á að einfalda stjórnsýsluna, fækka stjórnendum og skoða betur hvert fjármunirnir fara. Ég þekki umræðuna vel frá árum mínum í borgarstjórn. Árið 2023 lagði ég til að stafrænt ráð yrði lagt niður og ári síðar að gerð

Lesa meira »

Nei-hópurinn í brattri brekku

Nei – hópurinn í brattri brekku Hinn 29. ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ef meirihluti segir já hefjast samningaviðræður við ESB. Segi meirihluti nei verður málið lagt til hliðar. Að vita og vita ekki Fjölbreyttur hópur fólks ætlar að segja já. Sumir eru Evrópusambandssinnar í húð og hár, aðrir telja

Lesa meira »

Drottningaviðtalið – þegar ein rödd fær sviðið

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina. Viðtalið fer að

Lesa meira »

Börn og sala áfengis á netinu

Hvernig tryggjum við að börn og ungmenni geti ekki keypt áfengi á netinu? Aðeins í um 7 prósentum tilvika var óskað eftir skilríkjum þegar áfengi sem keypt hafði verið á netinu var afhent samkvæmt niðurstöðum úttektar sem unnin var fyrir embætti Landlæknis. Rafræn skilríki voru jafnframt aðeins notuð við kaup í 36 prósentum tilvika. Það er því ljóst að full

Lesa meira »

Komstu ekki afmælispakka?

Það er auðvelt að tengja fátækt barna við skort á mat, fatnaði eða húsnæði. En veruleikinn er oft annar. Fátækt birtist líka í litlum hversdagslegum aðstæðum þar sem sum börn geta ekki tekið þátt á sama hátt og önnur. Þessi skilningur hefur dýpkað í vinnunni við mótun fyrstu stefnu og aðgerðaáætlunar gegn fátækt barna á Íslandi. Í þeirri vinnu hef

Lesa meira »

Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar

Umræða um Evrópusambandið hefur sjaldan verið háværari enda styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er eitt stærsta pólitíska álitaefni sem Íslendingar hafa staðið frammi fyrir og skiptar skoðanir eru bæði eðlilegar og nauðsynlegar. Það sem vekur þó mesta athygli er ekki ágreiningurinn sjálfur heldur hvernig umræðan fer fram. Sem sálfræðingur hef ég lengi haft áhuga á því hvernig fólk myndar sér skoðanir.

Lesa meira »

Nú sjáum við afleiðingarnar

Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) sýnir að 46 prósent fósturheimila hafi ekki haft gilt fósturleyfi og að 38 prósent barna hafi verið í fóstri hjá aðilum án gilds leyfis. Í skýrslunni er jafnframt bent á veikleika í upplýsingaflæði, eftirliti og skráningu. Það vekur furðu að í umræðunni um þessar niðurstöður hefur nánast ekkert verið minnst á að nefndarmeðferð

Lesa meira »

Vændiskaup eru ekki einkamál

Á bak við hver vændiskaup er manneskja. Umræða um vændi vekur alla jafna sterkar tilfinningar. Það er skiljanlegt. Hér takast á ólík sjónarmið um frelsi einstaklingsins, mannréttindi, jafnrétti og ábyrgð samfélagsins. Þess vegna skiptir máli að nálgast umræðuna af yfirvegun og byggja á þekkingu fremur en fordómum. Manneskjurnar á bak við umræðuna Umræðan ætti fyrst og fremst að snúast um

Lesa meira »

Arnarnesvegur – varnaðarorðin sem voru hunsuð

Frá árinu 2020 barðist Flokkur fólksins, með aðeins einn borgarfulltrúa, ásamt Vinum Vatnsendahvarfsins og fjölmörgum íbúum, gegn þeirri útfærslu Arnarnesvegar sem nú er að verða að veruleika. Við lögðum fram fjölda bókana og tillagna, bentum á hagkvæmari lausnir og vöruðum ítrekað við því að framkvæmdin myndi ekki leysa umferðarvandann heldur færa hann til. Um leið bentum við á að náttúra,

Lesa meira »

Tími hvalveiða er liðinn

Á þeim áratugum sem atvinnuhvalveiðar hafa verið stundaðar á Íslandi hafa eflaust margir endurmetið afstöðu sína til þeirra. Það er eðlilegt.Samfélög þróast, þekking eykst og gildismat breytist. Það sem áður þótti sjálfsagt getur kallað á endurmat á nýjum tímum. Í dag gerum við ríkari kröfur en áður um velferð dýra og sættum okkur síður við óþarfa þjáningu þeirra, hvort sem

Lesa meira »

Samfélagsmiðlar eru ekki barna­leikur

Það hefur alltaf verið eitt af mikilvægustu hlutverkum samfélagsins að vernda börn gegn alls kyns hættum. Við kennum þeim að fara varlega í umferðinni, nota bílbelti og hjálma og tala ekki við ókunnuga. Við setjum aldursmörk á neyslu áfengis, tóbaks og þátttöku í fjárhættuspilum. Þetta gerum við ekki til að takmarka frelsi barna heldur vegna þess að þau eru enn

Lesa meira »

Þegar réttarbætur barna tefjast

Það eru mikil vonbrigði að frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd skyldi ekki ná fram að ganga á nýafstöðnu þingi. Frumvarpið hafði verið afgreitt úr velferðarnefnd og nefndarálit lá fyrir. Frumvarpið hafði verið afgreitt úr velferðarnefnd, nefndarálit lá fyrir og aðeins þingleg afgreiðsla málsins var eftir. Frumvarpið var hluti af þinglokasamningum og meirihlutinn gekk út frá því að afgreiðslu málsins

Lesa meira »

Skollaleikur olíufélaganna

Nýleg skýrsla Samkeppniseftirlitsins dregur upp mynd sem ætti að vekja okkur öll til umhugsunar. Þar kemur fram að olíufélögin hafi hækkað álagningu sína markvisst bæði áður en nýtt kílómetragjald tók gildi og áður en virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður. Niðurstöður skýrslunnar eru alvarlegar. Ef þær standast er hér vegið að hagsmunum almennings. Þegar stjórnvöld grípa til aðgerða sem eiga að

Lesa meira »

Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi

Á alþjóðlegum vettvangi er rætt um traust, gagnsæi og góða stjórnarhætti í íþróttum. Umræðan snýst meðal annars um hvernig megi endurheimta traust með áherslu á að uppræta spillingu og lyfjamisnotkun. Heilindi í íþróttum snúast hins vegar ekki eingöngu um það sem gerist á toppnum hjá alþjóðlegum sérsamböndum. Þau snúast líka um hvort fatlað fólk hafi yfir höfuð tækifæri til að

Lesa meira »

Tekist á við húsnæðismarkaðinn

Staða húsnæðismála er ein stærsta áskorun samfélagsins sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð og eitt stærsta réttlætismál samtímans. Þegar fólk getur ekki treyst því að hafa öruggt þak yfir höfuðið verður allt annað erfiðara; fjölskyldulíf, nám, vinna og framtíðaráform. Húsnæðisverð hefur farið úr böndunum á undanförnum árum. Verð á leiguhúsnæði er allt of hátt og  íþyngjandi. Allt of margir,

Lesa meira »

Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks

Það er eðlilegt að boðaðar breytingar í frumvarpi á réttindagæslu fatlaðs fólks veki spurningar og jafnvel áhyggjur í þeirra röðum. Fatlað fólk og aðstandendur þess hefur í gegnum tíðina þurft að berjast fyrir réttindum sínum. Reynslan kennir okkur líka að aldrei má slaka á þegar kemur að mannréttindum og vernd þeirra sem standa höllum fæti. Þess vegna ber okkur að

Lesa meira »

Þing í gíslingu

Málþóf er eitt af þeim fyrirbærum sem flestir þekkja af nafni en þó er oft farið of léttvægt yfir það hversu mikið tjón það veldur – á tíma, á fjármunum og á trausti almennings til Alþingis sem stofnunar. Í málþófi  standa þingmenn upp einn af öðrum og flytja ræður sem oftast eru efnislega margendurteknar. Þær teygjast yfir klukkustundir, síðan daga,

Lesa meira »

Sveigjanlega byrjun í framhaldsskólum

Það er jákvætt að mennta- og barnamálaráðherra hafi lýst yfir að hún telji vel koma til greina að gera upphaf skóladags í framhaldsskólum sveigjanlegra en nú er. Sú umræða er bæði tímabær og mikilvæg. Ég tel fulla ástæðu til að skoða af alvöru hvort sveigjanlegri skólabyrjun geti bætt svefn, líðan og námsumhverfi ungmenna. Í svari ráðherra við fyrirspurn á Alþingi

Lesa meira »

ESB viðræður á ný? Já eða nei

ESB viðræður á ný? Já eða nei Flokkur fólksins hefur allt frá upphafi verið málsvari aukins beins lýðræðis og að þjóðin fái að segja sitt í stærstu málum. Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu er þess vegna algerlega í samræmi við stefnu flokksins. Spurningin verður „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við

Lesa meira »

Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla

Fáar dýrategundir  ylja manni jafn mikið um hjartarætur og kettir og fuglar. Kettirnir okkar eru dásamlegir fjölskyldumeðlimir, með sterka persónuleika, sjálfstæði og hlýju. Þegar vora tekur iðar allt af lífi og flestar inni- og útikisur fagna því að geta vappað um nágrennið, frjálsar og óháðar  á sínum eigin forsendum. En þessu frelsi fylgir ákveðin ábyrgð sem dýrelskandi eigendur þurfum að

Lesa meira »

Dagur óbærilegrar spennu

Í dag hafa kjósendur síðasta orðið um hver sitja við stjórnvölin í sveitarstjórnum landsins næstu fjögur árin. Eins og gengur verður þetta dagur sigra og ósigra og á eftir að verða mörgum minnisstæður. Ríflega þrjú þúsund frambjóðendur á landinu öllu, þar af rúmlega fimm hundruð í Reykjavík, hafa ásamt miklum fjölda fólks barist fyrir sínum málum undanfarnar vikur. Spenna og

Lesa meira »

„Fátækt“ sem enginn sér – en börnin finna

Afstæð fátækt kallast það þegar ekki er um beinan skort á lífsnauðsynjum að ræða, heldur um aðstæður sem takmarka þátttöku í því sem telst eðlilegt og sjálfsagt. Fyrir börn þýðir þetta skert aðgengi að tækifærum, með afleiðingum sem geta fylgt þeim langt fram á fullorðinsár. Þessi birtingamynd fátæktar leynist oft í samfélögum sem líta á sig sem vel megandi og

Lesa meira »

Menntamál ættu ekki að vera pólitískt þrætuefni

Þegar menntamál eru til umræðu líður oft ekki á löngu þar til einhver er farinn að tala um hægri og vinstri,  aðhald  eða fjárfestingu og hvort stefnt sé í rétta eða ranga átt.  Skyndilega snýst umræðan ekki  um börn heldur einstaka stjórnmálamenn og flokka. Í  grundvallaratriðum viljum við öll það sem er börnunum fyrir bestu. Við viljum að þeim líði

Lesa meira »

Tryggjum jafnræði í grunnskólum

Grunnskólinn á og getur verið eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Skólinn á að tryggja að öll börn hafi jafna stöðu, aðgang og möguleika, óháð efnahag foreldra/forráðamanna, bakgrunni eða búsetu. Það er bæði lagaleg og ekki síður siðferðisleg skylda skólanna og okkar að sjá um að svo verði. Hver er raunveruleikinn Í starfi stýrihóps sem mennta- og barnamálaráðherra skipaði og undirrituð fer

Lesa meira »

Skortur á fjármagni og byggingarleyfi réttlætir ekki slæma meðferð á svínum

Atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram skýrslu um aðbúnað og velferð svína samkvæmt beiðni undirritaðrar og fleiri þingmanna. Óskað var eftir að gerð yrði úttekt á meðal annars reglum og eftirliti með aðbúnað og velferð svína, sérstaklega með tilliti til halaklippinga og aðferða við aflífun á svínabúum. Það er óþolandi að vita til þess að illa sé farið með þessi dýr og

Lesa meira »

Að leiðast er ekki alltaf leiðinlegt

Hvað er að leiðast? Ef manni leiðist er líðanin gjarnan þannig að maður hafi ekkert skemmtilegt eða uppbyggilegt fyrir stafni. Engir samfélagsmiðlar, engir snjallsímar, ekkert sem grípur hugann eða enginn til að vera með og tala við. En þá gleymist oft að maður hefur jú alltaf sjálfan sig og hugsanir sínar sem bjóða upp á óendanlega möguleika. Mannshugurinn er margslunginn

Lesa meira »

Börn í klóm glæpahópa sem gera út á netinu

Tilkoma hins stafræna heims hefur leitt til margra nýunga og kannski meiri samfélagsbreytinga en við áttum okkur á. Tæknin hefur óumdeilanlega haft jákvæð áhrif. Þar má helst nefna styttri boðleiðir, aukið og einfaldað aðgengi að upplýsingum og fræðslu, einföldun þjónustu og aukin samskipti án tillits til gæða samskiptanna. Þegar horft er til breytinga á samskiptum má segja að heimurinn hafi

Lesa meira »

Börn útvistuð til glæpa á netinu

Við sem ólumst upp áður en internetið og hinn stafræni heimur komu til sögunnar getum borið saman tímana tvenna. Tilkoma þessarar tækni hefur leitt til margra nýunga og kannski meiri samfélagsbreytinga en við áttum okkur á. Tæknin hefur óumdeilanlega haft jákvæð áhrif. Þar má helst nefna styttri boðleiðir, aukið og einfaldað aðgengi að upplýsingum og fræðslu, einföldun þjónustu og aukin

Lesa meira »

Skýrsla atvinnuvegaráðherra um aðbúnað og velferð svína, samkvæmt beiðni Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur

Skýrsla atvinnuvegaráðherra um aðbúnað og velferð svína að beiðni Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur ____________________________ 1 Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurjón Þórðarson og Sigurður Helgi Pálmason. Sbr. þingskjal 78, 78. mál á 157. þingi. 2 Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Marta Wieczorek, Jónína Björk Óskarsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Elín

Lesa meira »

Börnin í fyrsta forgangi

Ríkisstjórnin hefur sett málefni barna í algeran forgang. Sérstaklega er horft til  snemmtækrar íhlutunar í leik- og grunnskóla. Öllu máli skiptir að sérfræðingar komi að málum á fyrstu stigum. Jafnframt er nauðsynlegt að vinna náið með foreldum samhliða aðstoð við barnið með ráðgjöf og fræðslu. Mikið hefur verið rætt um úrræði þegar barn er komið í stjórnlausa neyslu áfengis og

Lesa meira »

Næði og svigrúm til að syrgja

Með  frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi sem var lögfest á þriðjudag  er stigið mikilvægt skref til að styðja fjölskyldur í erfiðum aðstæðum. Ég vil hér víkja að þætti sorgarleyfisins samkvæmt lögunum  sem tekur til foreldra sem missa barn, meðal annars við andvana fæðingu eða fósturlát. Með nýju lögunum stækkar sá hópur sem fær stuðning þegar

Lesa meira »

Burt með fátækt – Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt

Flokkur fólksins var beinlínis stofnaður til að berjast gegn fátækt og þá sérstaklega barna og foreldra þeirra. Það er bláköld staðreynd að fátækt og ójöfnuður er til staðar í okkar góða landi. Þetta sýna fjölmargar  rannsóknir og  skýrslur. Þegar horft er til þess hverjir búa við fátækt  á Íslandi er oftast miðað við hlutfall einstaklinga sem eru undir lágtekjumörkum, þ.e.

Lesa meira »

Allt of stór hópur barna býr við fátækt

Flokkur fólksins var beinlínis stofnaður til að berjast gegn fátækt og þá sérstaklega barna og foreldra þeirra. Það er bláköld staðreynd að fátækt og ójöfnuður eru til staðar í okkar góða landi. Þetta sýna fjölmargar  rannsóknir og  skýrslur. Eitt af hverjum fimm börnum sem búa í leiguhúsnæði er líklegt  til að búa við fátækt og 8,2 prósent  þeirra búa við

Lesa meira »

Get ég látið vista barnið mitt í meðferð gegn vilja þess?

Foreldrar barna sem glíma við fíknivanda spyrja margir hvort þeir geti  látið vista barn sitt  í meðferð gegn vilja þess. Svarið er já. Það er hægt að svipta börn frelsi ef þau eru talin í neyð og hættuleg sjálfum sé eða öðrum. Í barnaverndarlögum eru heimildir til að úrskurða börn í vistun án þeirra samþykkis, til dæmis  í 14 daga

Lesa meira »

Upplýsingar, afþreying og ógnir á Netinu

Einkatölvan og síðar internetið hafa valdið byltingu á mörgum sviðum samfélagsins. Í flestum tilvikum eru áhrifin jákvæð en þau fela líka í sér áskoranir. Margt af því sem börn geta gert í tölvu og á netinu getur  valdið spennu, streitu og pirringi. Fyrsta áhyggjuefnið í þessum málaflokki voru tölvuleikir og áhrif þeirra á börn sérstaklega ef þau eru í leikjunum

Lesa meira »

Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast

Eineltismál geta reynst viðkvæm innan stofnana og fyrirtækja.   Margir vinnustaðir hafa sem betur fer lagt sig  fram við að fyrirbyggja slíka hegðun með ýmsum ráðum og  eru sjálfbærir í þessum efnum komi fram kvörtun.  Aðrir vinnustaðir hafa  hvorki  getu eða burði til að vinna slík mál innanhúss og leita til utanaðkomandi fagaðila. Þegar ég starfaði sem  sálfræðingur leituðu iðulega til

Lesa meira »

Bakslag í baráttunni gegn einelti

Í dag 8. nóvember er Dagur gegn einelti. Vert er að staldra við og rifja upp uppruna þessa dags og tilgang. Einelti er alvarleg tegund ofbeldis sem hefur víðtækar samfélagslegar afleiðingar. Börn sem verða fyrir langvarandi einelti geta glímt við afleiðingar þess ævilangt. Forvarnir gegn einelti eru lýðheilsumál enda getur það haft áhrif á lífsgæði og heilsu bæði þolenda og

Lesa meira »

Ástarsvik ein tegund ofbeldis gegn eldra fólki

Allir geta orðið fyrir netsvikum og það er ekkert til að skammast sín fyrir. Svikahrappar á netinu eru margir sérfræðingar í að leika á fólk og freista einskis í þeim efnum. Þeir sem telja sig hafa flækst í slíkan svikavef ættu skilyrðislaust að leita sér hjálpar hjá bönkum, lögreglu og eftir atvikum aðstandendum, allt eftir eðli málsins. Margir eldri borgarar

Lesa meira »

Ofbeldi gegn öldruðum er falið vandamál

Margt bendir til að heimilisofbeldi gegn fólki á efri árum sé falið samfélagslegt vandamál sem flestir ættu að vera sammála um að þurfi að taka alvarlega. Ein algengasta ástæða fyrir útkalli lögreglu er ofbeldi gegn fullorðnu fólki inn á heimilum þess. Rannsóknarniðurstöður sýna að gerendur eru oftast einhver í nánasta umhverfi þess sem ráðist er á, jafnvel einhver sem viðkomandi

Lesa meira »

Peningaspil og algengi spilavanda meðal 16 til 18 ára framhaldsskólanemenda : mat á áhættuþáttum Kolbrún Baldursdóttir, Daníel Þór Ólason ofl. University of Iceland

Peningaspil og algengi spilavanda meðal 16 til 18 ára framhaldsskólanemenda : mat á áhættuþáttum Kolbrún Baldursdóttir, Daníel Þór Ólason, Sigurður J. Grétarsson, Ágústa Rakel Davíðsdóttir, Ása Margrét Sigurjónsdóttir Abstract Könnuð var spilahegðun og algengi spilavanda meðal 16 til 18 ára nemenda í 15 framhaldsskólum veturinn 2005 til 2006. Þátttakendur voru 1513, 783 stúlkur og 730 drengir. Helstu niðurstöður voru að 62% nemenda

Lesa meira »

Börn með fjölþættan vanda – horft til framtíðar

Fyrsta umræða um  fjárlög 2026 fór fram á Alþingi í síðustu viku. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að taka til í ríkisfjármálunum til að auka skilvirkni þeirra án þess að það komi niður á helstu þáttum velferðarkerfisins. Þar er af mörgu að taka, t.d. varðandi þjónustu við minnihlutahópa, eldri borgara og öryrkja. Heilbrigðiskerfið hefur verið svelt í mörg ár. Fjármagn til

Lesa meira »

Vangaveltur um fordóma

Mikið hefur verið fjallað um fordóma síðustu daga og misseri, ekki síst möguleg áhrif þeirra og afleiðingar. Reyndar er umræða um fordóma meira og minna  stöðug en mismikil eftir því hvað er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Það er því fróðlegt að skoða fordóma út frá sjónarmiði sálfræðinnar. Hugtakið fordómar er neikvætt í eðli sínu. Enginn fæðist með fordóma í

Lesa meira »

Skólar hafa stigið skrefið með góðum árangri

Það er fagnaðarefni  að yfir 70 prósent  skóla hafa sett reglur um notkun farsíma innan skólanna. Börnin ganga nú inn í skólastofuna án farsíma sinna eða með  slökkt á þeim  í skólatösku. Það er almennt mat kennara og þeirra barna sem rætt hefur verið við um farsímabann í skólum að félagsleg samskipti  aukist.  Börnin tali meira saman og leiki sér

Lesa meira »

Litlu ljósin gleymast aldrei

Á vordögum tókst blessunarlega að afgreiða frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra, Ingu Sæland, um sorgarleyfi. Markmið frumvarpsins var að viðurkenna áhrif sorgarinnar vegna barnsmissis, ásamt því að auka líkur á að foreldrar eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað. Frumvarpið var byggt á tillögum frá Gleym-mér-ei styrktarfélagi og Sorgarmiðstöðinni. Með lögunum er foreldrum á vinnumarkaði tryggt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá

Lesa meira »

 Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk 

Nú eru skólar landsins byrjaðir og þúsundir nýir nemendur hafa hafið skólagöngu í fyrsta sinn. Flest 6 ára börn hafa beðið spennt eftir að ná þessum áfanga á meðan önnur kunna að kvíða honum. Þótt börn í fyrsta bekk séu öll fædd á sama árinu og tilheyra þar af leiðandi sama þroskaskeiðinu er félags- og tilfinningaþroski þeirra mislangt á veg

Lesa meira »

Ætla þau að halda áfram að skemma?

Nú er sumri að halla og undirbúningur næsta löggjafarþings Alþingis hafinn. Tafaleikir og málþóf síðasta þings, lengst í frumvarpi um breytingar á veiðigjaldi, höfðu þær afleiðingar að ekki tókst að afgreiða fjölda mikilvægra mála. Meðan á 160 klukkustunda málþófi stjórnarandstöðunnar stóð biðu þrjátíu og fimm stjórnarfrumvörp og þrjú nefndarfrumvörp lokaafgreiðslu í annarri og þriðju umræðu. Allt voru þetta þjóðþrifamál, mörg

Lesa meira »

Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjald

Þau sjö ár sem ég sat í borgarstjórn gagnrýndi ég þann frumskóg sem bílastæðagjöld eru í Reykjavík. Ég lagði fram fjölmargar bókanir og tók málið oft upp á fundum. Í dag er staðan þannig að þeir sem eru sektaðir er ekki lengur gert viðvart um það með sektarmiða á framrúður bíla og fjölmörg fyrirtæki hafa fengið leyfi frá borginni til

Lesa meira »

Fíkn fer ekki í sumarfrí

Flokkur fólksins hefur árum saman barist fyrir þá sem glíma við fíkn og hefur flokkurinn viljað standa vörð um meðferðarúrræði og að þau séu opin árið um kring. Segja má að þessi málaflokkur hafi verið vanræktur síðustu ár. Þeir sem hafa farið í meðferð á sjúkrahúsinu Vogi yfir sumartímann hafa staðið að mestu óstuddir að henni lokinni. Eftirmeðferð hefur vantað

Lesa meira »

Tafaleikir og málþóf heimskulegt útspil fallandi flokka

Nýleg könnun Maskínu sýnir sterka vísbendingu um að málþóf og tafaleikir stjórnarandstöðunnar skili henni engu nema fylgistapi og skömm. Það hefur legið fyrir í nokkrar vikur að tafaleikir stjórnarandstöðunnar og málþóf féllu ekki í góðan jarðveg hjá þjóðinni. Engu að síður héldu þessir þrír flokkar áfram skemmdarverkastarfsemi sinni og þæfðu mál ríkisstjórnarinnar, jafnvel mál sem áttu rætur að rekja til

Lesa meira »

Minnihlutinn á miklum villigötum

Flestir vita hvaða ástand hefur ríkt á Alþingi síðustu vikur og mánuði. Þetta er alvarleg staða og hefur farið stigversnandi síðustu tvær til þrjár vikur. Ástandið tók á sig nýja birtingarmynd þegar þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og einn af sex varaforsetum Alþingis sleit þingfundi án umboðs forseta á miðvikudagskvöld. Mér sem nýkjörnum þingmanni og einum af varaforsetum þingsins var brugðið við þessi

Lesa meira »

Gerum þetta saman

Á dagskrá Alþingis 25. júní sl. var 2. umræða um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Inga Sæland  félags- og húsnæðismálaráðherramælti fyrir í upphafi vorþings. Með frumvarpinu er lagt til að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni. Samningurinn , sem samþykktur var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 13. desember

Lesa meira »

Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum

Frumvarp Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra um lögleiðingu Samnings Sameinuðu þjóðanna sem nú býður afgreiðslu á Alþingi felur í sér gríðarlega réttarbót fyrir allt fatlað fólk á Íslandi. Það vekur hins vegar athygli að frumvarpið mætir töluverðri andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins og annarra þingmanna í stjórnarandstöðu. Vegurinn að lögleiðingu samningsins hefur verið langur eða 18 ár frá því hann var staðfestur

Lesa meira »

Á hvaða vegferð eru þau?

Það hefur verið undarlegt að fylgjast með stjórnarandstöðunni og helstu hagsmunasamtökum stórfyrirtækja undanfarna mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkur og Framsókn virðast vera sammála um það eitt að tefja framgöngu þjóðþrifamála. Það virðist vera nánast línuleg fylgni á milli þess hve vinsæl málin eru í augum almennings og hversu hart stjórnarandstaðan berst gegn þeim. Skýrasta birtingarmyndin er Íslandsmetið í 1. umræðu um veiðigjaldafrumvarpið,

Lesa meira »

Bindum enda á kjaragliðnun

Velferðarnefnd lýkur brátt umræðu sinni um um frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar. Með frumvarpinu, sem Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, lagði fram, er verið að fylgja eftir stefnu ríkisstjórnarinnar um að rétta við hlut þeirra sem lakast standa í samfélaginu, sérstaklega þeirra sem fá litlar eða engar greiðslur úr lífeyrissjóðum. Stærsta aðgerðin í frumvarpinu er breyting á 62.

Lesa meira »