Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. febrúar 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út kaup á búnaði til endurnýjunar á gangbrautarljósum 2023 í samstarfi við Vegagerðina:
Flokkur fólksins fagnar þessu mjög enda víða pottur brotinn hvað varðar gangbrautir í borginni, gönguljós og lýsingu við gangbrautir í öryggisskyni. Gönguljós á þessum stöðum sem hér eru nefndir þarf nauðsynlega að stilla bæði til að þau henti vegfarendum og bílaumferð. Þetta hefur Flokkur fólksins ítrekað bent á. Hitt er að Flokkur fólksins er nýbúinn að leggja fram tillögu um að gerð verði úttekt á götulýsingu við gangbrautir.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 16. febrúar 2023, varðandi skýrslu regluvarðar Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. febrúar 2022 til 31. janúar 2023, ásamt fylgiskjölum. Einnig lagt fram bréf endurskoðunarnefndar, dags. 13. febrúar 2023, varðandi bókun nefndarinnar um skýrslu regluvarðar.
Flokki fólksins finnst athyglisvert það sem fram kemur í skýrslu regluvarðar Regluvörður hefur óskað eftir því við þjónustu- og nýsköpunarsvið (ÞON) að útbúa rafræna lausn við söfnun upplýsinga um innherjaskráningar frá starfsmönnum og kjörnum fulltrúum. Rafræn lausn myndi einfalda skráninguna og fækka skrefum í þessu ferli og auðvitað minnka álag á regluvörð og starfsmenn sem þurfa að standa skil á þessum upplýsingum. Beiðnin er enn í bið hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði og óvíst hvort eða hvenær hún verður afgreidd. Hér er einmitt vandamál þjónustu- og nýsköpunarsviðs í hnotskurn. Það eru fleiri sem kvarta sáran yfir hægagangi hjá sviðinu með ýmsar lausnir.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 10. október 2022, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 5. október 2022 á tillögu um viðbótarfjármagn vegna samnings um rekstur Konukots, ásamt fylgiskjölum.
Flokkur fólksins styður heilshugar tillögu velferðarráðs um viðbótarfjármagn til Rótarinnar vegna reksturs Konukots. Lagt er til að samningsupphæð við Rótina um rekstur neyðarskýlis fyrir húsnæðislausar konur verði aukin um 8,5 m.kr. á ári frá núgildandi samningi til að hægt verði að mæta starfsmati sem leiddi til launahækkana. Óskað er eftir að breytingin taki gildi frá og með 28. apríl 2022 eða frá þeim tíma er starfsmatið á starfi við þjónustu heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir var samþykkt. Aukinn kostnaður á árinu 2022 yrði 5,7 m.kr. en 8,5 m.kr. á ári eftir það. Mikil aukning hefur verið á notkun gistiskýla borgarinnar og sem dæmi var nýtingin í Konukoti 103% í ágúst. Aðstaðan í Konukoti er mjög slæm hvað varðar húsakost og þarf sem fyrst að finna lausn á þeim vanda.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki að starfsemi Borgarskjalasafns taki breytingum í samræmi við valkost þrjú í meðfylgjandi skýrslu KPMG um framtíðarhögun á starfsemi safnsins og verði verkefninu flýtt eins og kostur er. Tillagan felur í sér að skilgreind lögbundin verkefni þess verði flutt til Þjóðskjalasafns Íslands. Þjónustu- og nýsköpunarsviði verði falið að fylgja ákvörðuninni eftir m.a. með því að ganga frá samkomulagi um útfærslu og framkvæmd við Þjóðskjalasafn. Verkefni sem snúa að menningarmiðlun verði flutt til Borgarsögusafns og/eða annarra menningarstofnana á menningar- og íþróttasviði skv. nánari útfærslu. Í tillögunni felst því að Borgarskjalasafn verður lagt niður í núverandi mynd.
KPMG skýrslan er ekki vandað plagg að mati Flokks fólksins. Niðurstaðan er pöntuð. Flokkur fólksins telur að borgarstjóri og hans fólk séu fyrir löngu búin að ákveða að leggja niður Borgarskjalasafn og fengið starfsmenn KPMG til að leiða að þeirri niðurstöðu í skýrslunni. Einungis voru höfð tvö viðtöl við borgarskjalavörð og teymisstjóra eftirlits og rafrænna skila. Vinnan núna er því ólík vinnu með KPMG árið 2018. Ekkert hefur verið fundað með öllum starfsmönnum Borgarskjalasafns, engir stefnumótunar- eða verkefnafundir haldnir með starfsmönnum. Greinendur hafa ekki kynnt sér ítarlega verkefni eða störf safnsins. Ekki var haldinn fundur með forstöðumanni Borgarskjalasafns til að kynna drög að tillögum. Hér er ekki um neina stefnumótunarvinnu að ræða heldur er aðeins keyrt áfram og yfir alla sem málið varðar. Skýrslan er neikvæð, niðurrífandi og allt gert til að láta safnið líta illa út til að réttlæta að skella í lás. Ekki er minnst á styrkleika, orðalag skýrslunnar er gildishlaðið og eingöngu einblínt á vandamálin. Fela á verkefnið öðrum í stað þess að skoða leiðir til að efla safnið. Hávær mótmæli eru um áformin og telur Flokkur fólksins að borgarstjóri eigi umsvifalaust að draga þessa tillögu til baka og biðja starfsfólk Borgarskjalasafns afsökunar.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. febrúar 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjölda bíla í eigu Reykjavíkurborgar, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. janúar 2023. MSS23010117
Óskað er eftir upplýsingum um hversu margir bílar eru í eigu og notkun hjá Reykjavíkurborg og hversu margir þeirra eru rafmagnsbílar og eða metanbílar. Fulltrúa Flokks fólksins finnst svörin mjög athyglisverð og satt að segja sláandi. Samkvæmt upplýsingum frá sviðum borgarinnar og B-hlutafyrirtækjum Reykjavíkurborgar þá er meirihluti bíla dísil- eða bensínbílar. Af 72 strætisvögnum eru 50 dísilvagnar. OR á 200 bíla og 117 af þeim eru dísilbílar. Malbikunarstöðin Höfði á 17 bíla og 16 af þeim eru dísilbílar. Eignasjóður stendur sig best því þar eru eingöngu 19 dísilbílar af 102 bílum. Þarna er sóknarfæri hjá borginni til að gera betur því það sýnir ekki mikinn metnað í að flýta orkuskiptum þegar aðeins um fjórðungur bíla sem borgin notar séu knúnir af vistvænum orkugjöfum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 22. febrúar 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um starfsmannafjölda borgarinnar í júlí 2023, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 9. september 2021. FAS23020041
Spurt var um starfsmannafjölda borgarinnar og aukningu en samkvæmt mælaborði borgarinnar er þetta talan og hefur hækkað um 13% milli ára. Fram kemur að árið 2021 var meðal starfsmannafjöldi Reykjavíkur 11.382 skv. mælaborði en árið 2020 var fjöldinn 10.898. Aukningin í mælingu á meðalfjölda starfsmanna nam 4,4% á milli ára. Ráðningar hafa verið miklar hjá borginni síðustu ár. Ekki hefur þó tekist að ráða fólk til að sinna allri lögbundinni þjónustu. Í miðlægri stjórnsýslu og á þjónustu- og nýsköpunarsviði hafa bæst við tugir stöðugilda.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 27. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um tekjutap vegna læknisheimsókna á vinnutíma, sbr. 57. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. desember 2021. MSS21120222
Spurt var um tekjutap vegna læknisheimsókna á vinnutíma og ef starfsmaður þarf að fara til læknis á vinnutíma ef hann getur ekki komið læknistíma fyrir í „styttingunni“. Hér er um raunverulegt vandamál að ræða og meira nú en oft áður er erfitt að fá tíma hjá læknum. Bið eftir sérfræðingi er stundum margar vikur, jafnvel mánuðir. Í þessum tilfellum er býsna ósanngjarnt að starfsmaður þurfi að nota sérstaka fjarvistartegund í viðverukerfinu Vinnustund til að fara til læknis ef hann hefur ekki getað fengið tíma þegar hann er í styttingu. Segir í svari að fjarvera vegna læknisheimsókna skal ekki valda tekjutapi eða vera til frádráttar frá föstum launum starfsfólks að því gefnu að tilefnið sé brýnt og ekki hafi verið unnt að hliðra til tímasetningu heimsóknarinnar. Starfsfólki ber því að stimpla sig út í slíkri fjarveru og telst þá eftir atvikum hafa ráðstafað styttingu vinnuvikunnar sem þeirri fjarveru nemur eða merkir fjarveruna með sérstakri fjarverutegund í viðverukerfi eins og segir í svari. Þar með er „styttingin“ uppurin og er ekki að nýtast sem frí/hvíld. Í þessum tilfellum finnst Flokki fólksins að viðkomandi eigi að fá frí án þess að skerða styttinguna.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 27. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar, sbr. 45. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. september 2022. MSS22090008
Flokkur fólksins vildi vita hvað væri að frétta af aðgengisstefnu borgarinnar en slík stefna var samþykkt 2020 en ekki mikið spurst af henni síðan. Fram kemur í svari að aðgengisstefna Reykjavíkurborgar hefur ekki verið kynnt sérstaklega í heild fyrir borgarbúum en stefnan er þó aðgengileg öllum á ytri vef borgarinnar. Flokki fólksins finnst skrítið að verið sé að leggja mikla vinnu í gerð stefnu. Síðan er henni skutlað á vefinn þar sem varla er hægt að finna hana og engin kynning fer fram á henni. Nú á að fara að gera eitthvað í þessu en liðið er heilt ár án þess að hafið sé ferli innleiðingar. Segir að hafa eigi samráð við aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks og að borgarbúar verði upplýstir um framgang aðgerða í aðgerðaáætlun aðgengisstefnunnar eftir því sem við á hverju sinni. Það er þó aldeilis gott.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 27. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um afdrif hugmynda um búsetuhús, sbr. 41. lið fundargerðar borgarráðs frá 4. júlí 2019. VEL23020076
Hér er verið að svara fyrirspurn Flokks fólksins frá því árið 2019. Spurt var um hugmyndir um búsetuhús sem hópur foreldra barna með þroskahömlun lagði fyrir fyrrverandi skrifstofustjóra eigna og atvinnuþróunar og fyrrverandi formann velferðarráðs fyrir u.þ.b. átta árum síðan. Fundað var alloft um þessar hugmyndir og fjöldi bréfa fór á milli aðila en síðan er ekki vitað hvað varð um þær. Segir í svari að eftir viðamikla eftirgrennslan þá verður ekki séð að þetta mál hafi komið til umfjöllunar á velferðarsviði. Engin gögn hafa verið skráð um það í skjalavistunarkerfi sviðsins. Fulltrúi Flokks fólksins ræddi við eitt af þessum foreldrum sem segir aðra sögu. Foreldrar og börnin bjuggu til sérstaka bók með hugmyndum um búsetuhús. Þessi foreldrahópur skilaði inn mikið af gögnum frá þeim og börnum þeirra. Systir eins barnsins var arkitekt og bauðst til að teikna húsið frítt og börnin máluðu málverk sem á stóð „Ekki gleyma okkur“. Þáverandi skrifstofustjóri lét að því liggja að þetta hús gæti risið í Skerjafirði. Það er alveg ljóst að eitthvað var að í skjalavörslu borgarinnar á þessum tíma.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar Félagsbústaða, dags. 16. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um innheimtu á vegum Félagsbústaða, sbr. 32. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. janúar 2023. MSS23010200
Flokkur fólksins lagði fram fyrirspurn um hversu mörgum málum leigjenda hjá Félagsbústöðum hefur verið vísað til Motus í innheimtu vegna vanskila. Einnig var óskað eftir sundurliðun, tímalengd mála hjá Motus og fjölda nýrra mála síðustu fimm árin. Í svari segir að á árinu 2022 fór um 5% af útgefnum kröfum, eða 1828 mál, í innheimtuferli hjá Motus. Um 500 greiðendur voru að baki málanna. Miðgildi vinnslutíma mála hjá Motus var um 28 dagar á tímabilinu 2018-2022. Flokki fólksins finnst almennt að þessi mál eigi ekki að fara til Motus. Hér er um afar viðkvæman málaflokk að ræða og það eykur kvíða og angist að hafa lögfræðinga yfir höfði sér ef ekki er til peningur til að greiða leigu. Því er þó fagnað að sveigjanleiki er til staðar innan innheimtuferils til að vinna með greiðendum sem lenda í greiðsluerfiðleikum. Flokkur fólksins veit reyndar ekkert hvað nákvæmlega felst í því en það væri áhugavert að heyra í leigjendum sjálfum um hvað þeim finnst um þetta fyrirkomulag. Allir geta lent í því á einum tímapunkti í lífi sínu að geta ekki greitt reikninga.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 15. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um mælaborð vegna uppbyggingar húsnæðis, sbr. 36. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. janúar 2023. MSS23010203
Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir ítarlegum upplýsingum varðandi kostnað og þann tíma sem eytt var í gerð mælaborðs þjónustu- og nýsköpunarsviðs varðandi uppbyggingu húsnæðis í Reykjavík. Spurt var sérstaklega um hvaða rök hafi verið lögð til grundvallar ákvörðunar þjónustu- og nýsköpunarsviðs um að hefja smíði á þessu mælaborði. Eins og vitað er setti Húsnæðis- og mannvirkjastofnun upp slíkt mælaborð á svipuðum tíma. Það mælaborð sýnir á rauntíma uppbyggingu húsnæðis á landinu öllu og þar á meðal í Reykjavík. Fram kemur í svari að ekki þurfti að fara í sérstaka vinnu við að taka saman og uppfæra gögnin fyrir þetta tiltekna verkefni þar sem þau byggja á gögnum sem tekin eru saman m.a. úr landupplýsingakerfi Reykjavíkur og uppfærð reglulega í tengslum við gerð ársfjórðungsskýrslu húsnæðisáætlunar. Heildarkostnaður er 8 milljónir rúmar. Gott og vel en af hverju er ráðist í gerð þessa mælaborðs þegar til er slíkt fyrir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun? Flokkur fólksins hefur lengi kallað eftir skynsemi í fjármálastjórnun sviðsins og að forgangsraða þurfi verkefnum eftir nauðsyn.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 20. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um rekstrarhalla borgarinnar, sbr. 62. lið fundargerðar borgarráðs frá 23. júní 2022. MSS22060182
Flokkur fólksins óskaði eftir minnisblaði fjármálaskrifstofu um áhrif vaxtahækkunar á skuldastöðu og afborgunarþunga lána hjá borginni í ljósi 1,9 milljarða halla á A-hluta umfram áætlun. Spurt er hvar er hægt að spara eða auka hagræðingu í rekstri borgarinnar og hvort ekki sé hægt að fresta einhverjum verkefnum. Þessar spurningar eru enn meira knýjandi nú þegar verðbólga er komin yfir 10%. Huga þarf að fólki sem hefur lítið milli handanna. Búast má við frekari stýrivaxtahækkun og þá mun staða borgarinnar versna enn frekar vegna mikillar lántöku og hárra lána. Þótt vaxtahækkun Seðlabanka Íslands ein og sér hafi ekki áhrif á þau skuldabréf sem gefin voru út fyrir upphaf vaxtahækkunarferlis Seðlabankans þar sem þau eru öll með föstum vöxtum, mun svo há verðbólga sem raun ber vitni sem jafnvel fer hækkandi hafa áhrif á skuldastöðu borgarinnar þar sem um 70% af útgefnum skuldabréfum borgarinnar eru verðtryggð. Við þessu þarf að bregðast. Ekki er séð að draga eigi nægjanlega mikið úr fjárfestingum. Um þessar mundir er verið að hefja endurgerð Lækjartorgs og hefja á framkvæmdir á næsta ári. Með þetta og önnur stórverkefni á að bíða. Það er ekkert vit í að hægja ekki meira á.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð vegna myglu í skólahúsnæði, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. janúar 2023. MSS23010201
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um skilvirkni og viðbrögð nú þegar myglumálin eru orðin fjölmörg. Hversu langur tími líður frá því að upplýsingar berast um myglu áður en farið er í aðgerðir? Í svari er rakið ferlið sem fer af stað þegar grunur er um léleg loftgæði og slæma innivist. Það kerfi sýnist ágætt. Margir koma að og þá er vissulega alltaf spurning um skilvirkni. Talað er um teymi með ýmsum aðilum, mannauðsráðgjafa og Heilbrigðiseftirliti. Í svona málum hlýtur að þurfa að hafa yfirsýn og heildarmynd og að einhver einn haldi utan um verkið ef ekki á að enda í endalausum fundum sem fátt kemur út úr. Spurt var um hvort sérstaklega væri hlúð að börnum og starfsfólki hvað varðar heilsufar og mat á heilsufarsskaða vegna myglunnar. Því er svarað til að öllum starfsmönnum Reykjavíkurborgar í húsnæðinu stendur til boða að leita til trúnaðarlæknis. Flokkur fólksins vill sjá hér að hugað sé að börnunum í þessum aðstæðum og foreldrum þeirra hjálpað og þeir studdir. Lækniskostnaður gæti verið mikill og ekki allir foreldrar hafa ráð á honum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar innkaupaskrifstofu, dags. 22. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um öryggisvörslu Reykjavíkurborgar, sbr. 42. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. maí 2020. FAS23020036
Verið er að svara fyrirspurn sem lögð var fram árið 2020 og miðlægan samning vegna öryggisvörslu en Flokkur fólksins hafði frétt að það væri miðlægur samningur í gangi en velferðarsvið skipti við aðra öryggismiðstöð. Þetta er skýrt út í svarinu. Hins vegar er því velt upp hvort verið sé að velja hagkvæmustu leiðirnar í öryggismálum borgarinnar, notast við útboð og reynt að hafa þessi mál sem mest miðlæg. Ekki síður mikilvægt er að einhver hafi heildarsýn yfir öryggismálin en ekki að hver og einn sé að grúska í þessum málum í sínu horni.
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks Fólksins um breytingar á hlutverki Borgarskjalasafns, sbr. 34. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. febrúar 2023. ÞON23010028
Tillagan er felld.
Borgarmeirihlutinn er að gera stór mistök með því að leggja niður Borgarskjalasafn. Flokkur fólksins er með þessari tillögu að reyna að koma í veg fyrir stórslys. Eina skynsama leiðin er að allar skjalaeiningar Reykjavíkurborgar ásamt gagnaþjónustu verði færðar undir Borgarskjalasafn. Með því er allri skjala- og gagnavinnslu Reykjavíkurborgar ásamt innleiðingu upplýsingastjórnunarkerfa, komið á einn stað sem auðveldar heildaryfirsýn allra skjalamála. Borgarskjalasafn er kjölfestan í skjalamálum borgarinnar og heldur safnið úti öflugri starfsemi. Borgarskjalasafni er best treyst til að vera yfirstofnun annarra skjalavörslusafna í borginni. Það er einnig komið vel af stað í stafrænni umbreytingu, til að uppfylla breyttar áherslur í rafrænni skjalastjórn. Safnið hefur staðið sig hvað best innan borgarinnar í að innleiða stafræna umbreytingu. Eðlilegt er því að Borgarskjalasafn hafi umsjón með skjalavörslu borgarinnar. Á Borgarskjalasafni starfa sérfræðingar á sínu sviði, svo sem lögfræði, skjalfræði, safnfræði, sagnfræði, kerfisfræði og miðlun. Safnið heldur úti öflugri starfsemi og er leiðandi hjá héraðsskjalasöfnum. Það hefur birt á þriðja hundrað síðna af skjölum á vefsíðu sinni, sem nú er unnið að því að endurgera. Í undirbúningi er að deila sameiginlegu húsnæði með Þjóðskjalasafni en bæði söfnin yrðu áfram sjálfstæð. Húsnæðisgreiningar og mannaflaþörf hafa verið unnar fyrir næstu 30 árin til að dreifa kostnaði.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar frá 16. febrúar 2023. MSS23010026
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:
Drög að tillögu aðgengis- og samráðsnefndar vegna breytinga á fyrirkomulagi varðandi akstursþjónustu fatlaðs fólks. Flokkur fólksins væntir þess að agnúar verði skornir af akstursþjónustu fatlaðra og að gerðar verði breytingar á fyrirkomulagi akstursþjónustunni þannig að auðveldara verði að komast að í símaveri til að panta akstursþjónustu. Jafnframt er kvartað yfir því að bílstjórar yfirgefi viðkomustaðinn ef þjónustuþeginn er ekki sýnilegur strax. Þetta skapar mikið stress svo ekki sé talað um að ef fólk óttast að bílstjórinn bara fari ef hann sér ekki fólk koma út í hvelli. Hér er verið að tala um fatlað fólk. Það er ekki nægt svigrúm og skilningur fyrir því að fólk er misfljótt að athafna sig.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 14. febrúar 2023. MSS23010027. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:
Erindi íbúaráðs um að fá fund með Strætó bs. Flokkur fólksins á erfitt með að skilja af hverju ekki fást úrbætur í almenningssamgöngum tengdum hverfunum. Það hlýtur að verða að tryggja að góðar almenningssamgöngur eftir hverfinu endilöngu, t.d. að tryggt sé að fólk, ekki hvað síst börn, geti sótt þjónustu á milli hverfishlutanna, allt frá Ártúnsholti að Norðlingaholti. Einnig þarf að bæta almenningssamgöngur þvert á hverfin austan Elliðaáa, þar sem íbúum hverfisins er ætlað að sækja þjónustu, s.s. í Egilshöll og Borgarholtsskóla í Grafarvogi og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Staða almenningssamgangna hefur versnað mikið síðustu misseri og ekki sést til sólar í þeim efnum. Þessi mál þarf að ræða og umfram allt leysa.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 15. febrúar 2023. MSS23010029. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið fundargerðarinnar:
Umsögn um skýrslu starfshóps um framtíð skóla- og frístundastarfs við Ingunnar-, Dals-, og Sæmundarskóla. Flokkur fólksins telur það vera raunverulega ógn og veikleika í framtíðarspám borgarinnar sú óvissa um hvort nemendum i Dalskóla eigi eftir að fjölga meira og hraðar en nemendaspáin gerir ráð fyrir, m.a. vegna stefnu núverandi borgaryfirvalda um hraðari uppbyggingu á byggingarreitum. Það hlýtur að blasa við að mikil fjölgun á eftir að verða í þessu hverfi enda innviðir til staðar. Nú óttast Flokkur fólksins að sagan endurtaki sig, þ.e. að fjölgun nemenda verði stórlega vanáætluð.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 13. febrúar 2023. MSS23010033. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:
Flokkur fólksins vill ítreka mikilvægi samráðs við íbúa í öllum málum, þ.m.t. málefni um smáhýsin í Laugardal. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að gefa ekki tækifæri á góðu samtali við íbúa hverfisins.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. febrúar og 1. mars 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar frá 1. mars:
Skipulagsyfirvöld óska heimilda til að hefja undirbúning og verkhönnun á Lækjartorgi og gerð útboðsgagna vegna endurhönnunar, en ekki á að hefja framkvæmdir á þessu ári. Nú er verðbólga hærri en áætlað var og vænta má fleiri aðgerða Seðlabankans í formi hækkana stýrivaxta. Þess vegna telur Flokkur fólksins að bíða eigi með að hefja undirbúning og verkhönnun Lækjartorgs í nokkur ár. Áætlaður kostnaður fyrir þennan hluta sem er torgsvæðið, er um 355 milljónir og er þá ekki talinn með kostnaður við hitalagnir. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem má bíða betri tíma. Vissulega er Lækjartorg lykilrými í miðborginni og á sinn sess í hugum fjölmargra. Vinningstillagan er vissulega glæsileg. Um það er ekki deilt. Sama gildir um Kirkjustræti. En nú er staðan þannig að borgin getur ekki sinnt lögbundinni þjónustu sómasamlega. Nú bíða 2291 börn eftir nauðsynlegri þjónustu sálfræðinga og annars fagfólks í skólum. Eitthvað verður undan að láta. Það er ekki alltaf hægt að taka meiri lán og stefna borginni í gjaldþrot. Það segir sig sjálft að meðal slíkra verkefni er hvorki endurgerð Lækjartorgs eða Kirkjustrætis. Það er einfaldlega ekki um neyðarástand að ræða hvað þessi torg varðar og má þetta því bíða betri tíma.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 17 mál. MSS23020106
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 13. lið yfirlitsins:
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir fyrirvara við þá hugmynd að Þjóðarhöll leysi aðstöðuvanda íþróttafélaganna í dalnum. Hér er ekki nýtt áhyggjuefni. Enn hefur ekki verið lögð fram greining á afkastagetu Þjóðarhallarinnar á þeim tímum sem hægt er að hafa æfingar. Er þar verið að horfa til tímabilsins milli klukkan 14 og 22 virka daga, 10 til 16 laugardaga, og þá fyrst og fremst mánuðina frá september til og með maí. Flokkur fólksins er sammála því mati að mannvirkið eins og það hefur verið kynnt muni ekki anna þörf hverfisfélaganna fyrir æfingatíma fyrir börn, unglinga og meistaraflokka. Óttast er að æfingar félagsfólks, barna, unglinga og fleiri muni verða víkjandi í starfsemi mannvirkisins, eins og staðan er nú, þegar kemur að æfingum í Laugardalshöll. Það er óviðunandi af hálfu félaganna. Flokkur fólksins hefur margsinnis ávarpað þetta mál í samhengi við umræðu um framtíðarskipulag skóla og íþróttamála í dalnum. Tekið er undir það sem fram kemur í þessari ályktun að „aðstöðuvandi hverfisfélaganna í Laugardal er bráðamál. Brotthvarf yngri iðkenda vegna skorts á æfingaaðstöðu er raunverulegt vandamál sem félögin glíma við af vaxandi þunga“. Þessi skortur hamlar uppbyggingu íþrótta- og æskulýðsstarfs í Laugardalnum. Við þessu ástandi þurfa borgaryfirvöld að bregðast strax.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um afslátt vegna skerðingar þjónustu leikskóla:
Undanfarið hafa foreldrar þurft að sækja börn sín fyrr á leikskóla vegna þess að ekki tekst að manna daginn. Einnig hefur þurft að skerða þjónustu leikskóla kerfisbundið vegna manneklu. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvort leikskólagjöldin hafi verið lækkuð í hlutfalli við skerðingu þjónustu.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn öryggismál í skólum og íþróttamiðstöðvum ef ógn eða ytri vá stendur fyrir höndum:
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvernig öryggismálum er háttað í leik- og grunnskólum og íþrótta- og tómstundastarfi á vegum borgarinnar, t.d. verklagi ef vá stendur fyrir dyrum. Hér er t.d. átt við ef fram kemur ógn eða hótun um að skaða börn og starfsmenn. MSS23030011