Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um hækkun launa í Vinnuskóla Reykjavíkur:
Fulltrúi Flokks fólksins styður heilshugar þessa tillögu um hækkun launa í Vinnuskóla Reykjavíkur. Laun ungmenna sem starfa í Vinnuskóla Reykjavíkur hafa verið langt undir því sem unglingar fá í öðrum sveitarfélögum fyrir sambærileg störf. Kallað er eftir því að unglingum sé ekki mismunað eftir því hvar þeir búa, jafnræði sé tryggt og að laun í Vinnuskólanum fylgi launaþróun í landinu. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að hlúa að vinnuskólanum að öllu leyti. Vinnuskólinn þjónar mikilvægu hlutverki. Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla uppbyggileg sumarstörf, fræðslu og tækifæri til að starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni. Laun í Vinnuskólanum þurfa að vera vísitölutengd enda ekki annað sanngjarnt. Þótt verðbólga sé eitthvað að síga niður má ætla að langur tími sé í einhvern viðvarandi stöðugleika í efnahagslífinu. Laun þessa hóps eiga að lúta almennum verð- og kjarabótum eins og laun annarra í samfélaginu.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að tryggja starfsemi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar:
Starfsemi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar. Þessi félagsmiðstöðin hefur gengið sérlega vel og verið mjög vinsæl. Festa þarf hana í sessi til lengri tíma. Öll óvissa um framhaldið og framtíð félagsmiðstöðvarinnar er óþolandi. Samverustaður fyrir öll ungmenni er gríðarlega mikilvægur. Ungmennin þurfa að geta komið saman á öruggum stað til þess að kynnast og tengjast. Eins og segir í greinargerð með tillögunni er “mikilvægt að þekkja einhvern eins og mann sjálfan til að finna ekki fyrir einmanaleika eins og mörg upplifa og þangað koma margir krakkar í hverri viku.” Fulltrúi Flokks fólksins vill að börn og ungmenni verði sett í meiri forgang þegar kemur að þjónustu við þau en gert hefur verið á þessu og síðasta kjörtímabili.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um innleiðingu nýrrar strætóleiðar fyrir íbúa Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts samhliða vinnu við nýja Borgarlínu:
Hér er lagt til að ný strætóleið verði innleidd fyrir íbúa Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts samhliða vinnu við nýja Borgarlínu eins og segir í tillögunni. Segir í greinargerð með tillögunni að ungmenni séu orðin langþreytt á afskiptaleysi Strætó og hversu fáar strætóleiðir eru í þessum ört stækkandi hverfum. Ungmennaráð Árbæjar og Holta gerði rannsókn þar sem ungmenni í 8.-10. bekk tóku þátt og sögðu yfir 90% að þau myndu nýta sér strætóleið sem gengi frá Mosfellsbæ til Mjóddar með stoppistöðvum í Grafarholti, Úlfarsárdal, Grafarvogi, Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti. Strætó bs eru einu almenningssamgöngur Reykvíkinga. Strætó er byggðasamlag. Gallar eru við þetta fyrirkomulag sem felst í því að Reykjavík er stærsti eigandi Strætó en hefur ekki ákvarðanavald í samræmi við eigendaprósentu. Þjónusta er víða afleit og illa gengur að bæta úr. Sárlega þarf að breyta þessu fyrirkomulagi. Strætó hefur lengi róið lífróður. Vandinn er á flestöllum sviðum,, nýtt greiðslukerfi reynst illa og þjónustustefnu fyrirtækisins virðist illa fylgt. Í ljósi reynslunnar og fjárhagsstöðu Strætó bs. eru því miður ekki miklar væntingar um að þessi tillaga nái fram að ganga.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis um tvær kvöldopnanir á viku í sértæku félagsmiðstöðinni Öskju:
Ungmennaráð Laugardals, Bústaða og Háaleitis leggur til breytingu á á opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar Öskju þannig að hægt sé að vera með tvær kvöldopnanir vikulega frá og með hausti 2024. Hér er um að ræða félagsmiðstöð fyrir nemendur á unglingastigi í Klettaskóla og hún er með kvöldopnun einu sinni í viku á miðvikudögum kl. 19:00 til 21:00. Meðaltalsmæting ungmenna á kvöldopnanir á síðasta ári var um 50% sem sýnir mikinn áhuga. Fram kemur í greinargerð að í dag sé fjármagn fyrir kvöldopnanir í Öskju dregið frá úthlutaðri yfirvinnu starfsfólks og því í raun ekki úthlutað sérstöku fjármagni fyrir kvöldopnanir. Þetta þarf að endurskoða þannig að félagsmiðstöðin Askja geti haft kvöldopnanir tvisvar í viku kl. 19:00 til 21:00 og að fjármagn sem úthlutað er nú þegar verði hækkað í ljósi mætingarhlutfalls og áhuga. Þessi hópur barna á það til að einangrast heima. Þetta er e.t.v. eini staður sumra til að koma og hitta aðra, kynnast og mynda tengsl. Fulltrúi Flokks fólksins telur það afar mikilvægt að þessi tillaga nái fram að ganga.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis um að lengja opnunartíma í félagsmiðstöðvum og aukið samráð við ungmenni:
Fulltrúi Flokks fólksins hefur haft áhyggjur af skerðingum á starfsemi félagsmiðstöðva og bókað um það nokkrum sinnum áður. Hagræðing meirihlutans hefur komið allt of mikið niður á börnum og öðrum viðkvæmum hópum en einnig almennri þjónustu í þágu fjöldans. Ekki hefur verið haft samráð við ungmennin þegar ákvörðun er tekin um að stytta opnunartíma eða hætta að hafa opið einstaka kvöld. Ekkert samráð er haft við ungmennin þegar meirihlutinn ákveður að skella félagsmiðstöð í lás. Félagsmiðstöðvar eru gríðarlega mikilvægar fyrir þennan aldurshóp. Þetta er sá staður sem þau geta hist og átt samverustund með öruggum hætti í stað þess að mæla göturnar. Flokkur fólksins vill að meirihlutinn láti þjónustu við börn, ungmenni og aðra viðkvæma hópa í friði þegar hugmyndir um sparnað koma upp enda er þjónusta við börn rýr og víða brotakennd. Minna má á biðlista barna eftir skólaþjónustu en 2086 börn bíða nú aðstoðar sálfræðinga og talmeinafræðinga. Horfa má frekar til þess að draga úr óþarfa kostnaði eins og leigubílanotkun sálfræðinga til og frá þjónustumiðstöðvum og skóla. Með því að hafa aðsetur sálfræðinga í skólum sparast margar milljónir í leigubílakostnað auk þess sem sálfræðingar skólanna eru þá nær börnunum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness um aukna tíðni strætóferða til og frá Kjalarnesi og beiti sér fyrir því að tíðni strætóferða til og frá Kjalarnesi verði að minnsta kosti á klukkustundar fresti og að viðeigandi aðstaða sé á stoppistöðvum á akstursleiðinni:
Fulltrúi Flokks fólksins þakkar fyrir þessa tillögu Ungmennaráðs Kjalnesinga. Lagt er til að tíðni strætóferða til og frá Kjalarnesi verði að minnsta kosti á klukkustundar fresti og telur fulltrúi Flokks fólksins það algjört lágmark til að það gagnist farþegum en í dag líða allt að fjórar stundir á milli ferða. Einnig er lagt til að gerðar verði endurbætur á strætóskýlum strætóstoppistöðvum á akstursleiðinni til og frá Kjalarnesi. Vandamál með strætóferðir á Kjalarnesi eru ekki ný af nálinni. Líta má aftur til ársins 2013 en þá voru stopular strætóferðir um Kjalarnes ræddar í Hverfisráði Kjalarness. Börn gátu þá ekki notað strætó til að komast í skóla eða til að fara í vettvangsferðir eða sækja tómstundastarf. Ljóst er að lítið hefur breyst til batnaðar. Strætó er byggðasamlag. Gallar eru við þetta fyrirkomulag sem felst í því að Reykjavík er stærsti eigandi Strætó en hefur ekki ákvarðanavald í samræmi við eigendaprósentu. Sárlega þarf að breyta þessu fyrirkomulagi. Strætó hefur hefur lengi róið lífróður. Vandinn er á öllum sviðum, vagnar hafa bilað, nýtt greiðslukerfi hefur reynst illa og þjónustustefnu fyrirtækisins virðist illa fylgt. Fulltrúi Flokks fólksins er því miður ekkert of bjartsýnn á neinar breytingar til batnaðar. Það hefur reynslan sýnt.