Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagður fram að nýju trúnaðarmerktur ársreikningur A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar 2023, ódags., sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 11. apríl 2024, ásamt bréfi fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. maí 2024, varðandi ársreikning A-hluta og samantekinn ársreikning A- og B-hluta Reykjavíkurborgar 2023.
Afkoma hefur skánað frá árinu 2022 en engu að síður blikka aðvörunarljós. Þrátt fyrir bata í rekstrinum er engu að síður halli á rekstri A-hlutans sem nemur um 5 milljörðum sem ekki er ásættanlegt. Afkoma A-hlutans var afspyrnuslök og í raun hættulega léleg skv. ársreikningi Reykjavíkurborgar á árinu 2023. Rekstrartekjur A-hlutans hækka um 20 milljarða milli ára eftir því sem séð er. Þar vegur til að mynda töluvert að borgin lækkaði ekki álagningarhlutfall fasteignaskatts á móti mikilli hækkun á fasteignamati íbúðarhúsnæðis. Það er í sjálfu sér ekki mikil snilld að hækka skattheimtu á íbúana. Athygli vekur að veltufjárhlutfall (hlutfall milli veltufjármuna (lausafjár) og skammtímaskulda) lækkar úr 1,1 á árinu 2022 niður í 0,94 á árinu 2023. Veltufjármunir hækka um rúma tvo milljarða en skammtímaskuldir hækka um sex og hálfan milljarð. Hér blikkar rautt ljós. Er ekki markmiðið að veltuhlutfall sé alltaf um eða hærra en 1? Fari það mikið undir 1 gefur það til kynna aukningu lausaskulda. Í þessu sambandi vegur þó þyngst hækkun afborgana af langtímalánum og leiguskuldum. Þær hækka úr 6,2 milljörðum á árinu 2023 upp í 12,8 milljarða á árinu 2024 eða rúmlega tvöfaldast á milli ára.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf fjármála og áhættustýringarsviðs um forsendur fjárhagsáætlunar 2025 og fimm ára áætlunar 2025-2029, dags. 29. apríl 2024:
Nauðsynlegt er að hafa góða spá og umfram allt að hafa hana sannarlega til hliðsjónar. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir að búast megi við áframhaldandi óvissu hvað varðar fjölda ferðamanna, ekki síst vegna jarðhræringa. En þrátt fyrir það er spáð að fjöldi ferðamanna verði að jafnaði sá sami og 2018 þegar mest var. En hvernig ferðamenn er hér um að ræða, eru það þeir sem dvelja í Reykjavík, mun þetta þýða sambærilegan fjölda gistinátta og 2018, eða eru þetta ferðamenn sem koma rétt svo til að upplifa náttúru og fara síðan? Fram kemur í gögnum að almennt atvinnuleysi fólks á vinnualdri í Reykjavík var um 3,2% á síðasta ársfjórðungi 2023 sem er tæplega 2 stigum undir langtímameðaltali. Starfandi fólki í Reykjavík hefur fjölgað mikið á síðasta ári. Reykjavíkurborg þarf að taka mið af þessu. Góðu fréttirnar eru þó að spáð er hjaðnandi verðbólgu og hlýtur fjármálastjórn borgarinnar að halda áfram að leggja sitt af mörkum til að styðja við þessa hjöðnun. Það ber að gera með því að geyma og frysta ýmis verkefni eins og Grófarhús, Hlemm og fleiri uppbyggingarverkefni sem ekki snúa að íbúðarhúsnæði. Finna þarf leiðir til að auka tekjur án þess að seilast beint í vasa borgarbúa.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 29. apríl 2024, að fjárhagsrömmum fyrir svið borgarinnar vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025:
Augljóst er að markmiðið er að hemja fjárútlát, bruðl og sóun sem er vel því komið er að þolmörkum. Viðbætur til sviða spanna breitt svið sem er eðlilegt. Mestu viðbæturnar eru til velferðarsviðs. Viðbætur eru sambærilegar hjá skóla- og frístundasviði og menningar- og íþróttasviði. Það kemur nokkuð á óvart að hið síðara skuli vera á pari við skóla- og frístundasvið. Framtíðarsýn er sannarlega metnaðarfull, þ.e. að borgin verði sjálfbær og skuldlaus. Það er auðvitað langt frá þeim raunveruleika sem við búum við og sjáum í kortinu næstu árin. Meðal þess sem stefnt er að er að ná aðhaldi í ráðningum, sameiningu starfa og virkri forgangsröðun. Þessa þætti þyrfti þjónustu- og nýsköpunarsvið að taka alvarlega en því sviði hefur umfram önnur tekist að eyða gríðarlegu fjármagni án þess að skila á móti í sama mæli stafrænum lausnum í loftið. Ef litið er til síðustu ára þá er ekkert svið eins mikill hástökkvari í eyðslu fjármagns „út í loftið“ en þjónustu- og nýsköpunarsvið undir þeirri stjórn sem þar hefur ríkt. Athygli vekur að ekki verður gert ráð fyrir fjármagni vegna ófyrirséðra verkefna nema að litlu leyti. Eingöngu er gert ráð fyrir 0,5% af heildarútgjöldum borgarinnar í liðinn ófyrirséð.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að meðfylgjandi gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verði lækkaðar að jafnaði um 2,0% frá og með 1. júní 2024, en það felur í sér að viðeigandi gjaldskrár hækki ekki umfram 3,5% á árinu 2024 miðað við árið 2023.
Borgarráð sameinaðist fyrir skemmstu, að mestu, um ályktun um að Reykjavíkurborg vilji greiða fyrir gerð kjarasamninga til fjögurra ára m.a. með því að halda aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum. Fulltrúi Flokks fólksins studdi þessa tillögu. Nú hefur prósentan verið skilgreind og skulu gjaldskrár lækka um 2,0% að jafnaði frá og með 1. júní 2024 sem felur það í sér að viðeigandi gjaldskrár hækki ekki umfram 3,5% á árinu 2024 miðað við árið 2023. Auðvitað hefði verið hægt að gera betur hér. Í rauninni getur Reykjavíkurborg gert hvað sem er í þessum efnum. Hér er einungis um tilmæli að ræða og er því ekkert að vanbúnaði að ganga lengra þegar um er að ræða þjónustu við börn og barnafjölskyldur. Flokkur fólksins hefur mótmælt harðlega gjaldskrárhækkunum síðustu ár sem verst hafa komið niður á bágstöddum. Gjaldskrárhækkanir hafa auk þess farið út í verðlagið og ekki hjálpað til að ná stöðugleika í fjármálum. Þó þessu sé vissulega fagnað hefði líka verið gaman að sjá borgina taka frumkvæðið þegar ljóst var að verðbólga var að fara úr böndum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 21. mars 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að hefja verkefnið Hvirfill 2.0 – uppfærsla og endurbætur á Hvirfli, m.a. til að betrumbæta viðmót og birtingu fyrir notendur og borgarbúa ásamt því tryggja betur rekstrarlegt öryggi.
Fulltrúi Flokks fólksins man eftir því þegar Hvirfillinn var kynntur til leiks á sínum tíma. Þá fylgdi greinargerð með fjárheimildarbeiðni, að Hvirfillinn hafi verið nauðsynlegur til þess að uppfæra það viðburðadagatal sem fyrir var á vefjum Reykjavíkurborgar. Rökin í greinargerð hljómuðu ekki ósvipað þeim sem koma fram í greinargerð vegna þeirrar nýju fjárheimildarbeiðni sem nú er lögð fram vegna Hvirfilsins 2.0. Fulltrúi Flokks fólksins gagnrýndi á sínum tíma áætlanir þjónustu- og nýsköpunarsviðs um að vera að stofna eigið hugbúnaðarfyrirtæki til að finna upp og smíða sinn eigin hugbúnað í beinni samkeppni við fyrirtæki á markaði. Nú getur Flokkur fólksins ekki fullyrt hvort að Hvirfillinn sé afurð áðurnefndrar hugbúnaðarverksmiðju eða hafi verið keyptur á markaði. Það væri fróðlegt að vita meira um uppruna þessa kerfis og það hvort að í boði hafi verið tilbúnar lausnir á almennum markaði. Það er nokkuð ljóst að Reykjavíkurborg er ekki ein um það að hafa verið að birta yfirlit viðburða á sínum vefjum undanfarin ár.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 29. apríl 2024, vegna samþykktar innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 29. apríl 2024, á nýjum innkaupareglum Reykjavíkurborgar:
Óreiða hefur verið í innkaupamálum borgarinnar lengi. Borgarfulltrúi Flokks fólksins fagnaði á sínum tíma að endurskoða ætti reglurnar. Breytingar eru til bóta og greinilega þarfar. Skemmst er að minnast þess að innkaupareglur í braggamálinu voru brotnar og gera má ráð fyrir að slíkt hafi átt sér stað víðar í borgarkerfinu. Ekki síst er nauðsynlegt að auka áherslu á eftirlit og að auka upplýsingaflæði til innkauparáðs. Eitt mikilvægasta atriðið er að innkauparáð geti stöðvað framkvæmd tímabundið ef ekki liggur fyrir að samningi hafi verið komið á í samræmi við innkaupareglur og/eða ef fjárheimildir eru ekki fyrir hendi. Margar athyglisverðar athugasemdir koma fram í umsögn Innri endurskoðunar og ráðgjafar. Bent er sem dæmi á að skýra þurfi betur valdsvið innkaupadeildar, það er hvenær deildin hefur heimild til að gefa sviðum/skrifstofum fyrirmæli um innkaup í því skyni að samræma innkaup borgarinnar betur en nú er og ná þannig meiri hagkvæmni. Í breytingum felst nú að innkaupa- og framkvæmdaráð er veitt svigrúm til að ákveða hverju sinni hvernig hátta skuli eftirliti með innkaupum Reykjavíkurborgar þannig að ráðið geti sagt til um hvað skuli koma fram í yfirlitum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar fjórar tillögur samningateymis Reykjavíkurborgar vegna skila á Elliðaárdal og endurheimt náttúrugæða í dalnum í samræmi við erindisbréf samningateymisins sem lagt var fram í borgarráði 25. janúar 2024.
Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á þessar tillögur samningateymis Reykjavíkurborgar vegna skila á Elliðaárdal og endurheimt náttúrugæða í dalnum. Meðal þeirra er að hafa eftirlit og reglubundna vöktun. Hagsmunir lífríkisins, útivistar og mannlífs verða að vera hafðir að leiðarljósi. Þeir sem vilja stífluna rifna rökstyðja mál sitt þannig að öðruvísi verði Elliðaárdalurinn ekki færður í fyrra form. Einnig er þetta spurning um hið „sjónræna“. Dalurinn verður þá ekki lengur tvískiptur. Lífríkisrannsóknir 2021-2023 sýna að afgerandi jákvæða útkomu fyrir lífríkið hverfi stíflan sbr. eins og segir í kynningu um málið: „Rannsóknarniðurstöður 2022 vitna um mikla velgengni laxins í Árbæjarkvísl í kjölfar þess að sá einkennisfiskur Elliðaánna endurheimti gönguleið sína þar sem og hrygningar- og uppeldissvæði, í kjölfar þess að vatnsmiðlun fyrir tilstilli manngerðs Árbæjarlóns var aflögð.“ Vistfræðilegt ástand Elliðavatns telst vera mjög gott. Afstaða fulltrúa Flokks fólksins er að varðveita náttúru eins og hægt er. Því miður hefur verið gengið freklega á græn svæði, fjörur og aðra náttúru í borgarlandinu. Nú þegar er Elliðaárdalurinn heilmikið mótaður og ræktaður af mönnum og náttúran hefur vikið. Skoðun fulltrúa Flokks fólksins er að náttúran eigi að njóta vafans og unnið verði að því að Elliðaárnar renni eins og áður en þær voru virkjaðar.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 30. apríl 2024, þar sem erindisbréf starfshóps um skipulagsvinnu og samninga vegna lífsgæðakjarna er sent borgarráði til kynningar:
Erindisbréf starfshóps um skipulagsvinnu og samninga vegna lífsgæðakjarna er lagt fram til kynningar í borgarráði. Þann 24. apríl sl. samþykkti borgarráð að fela skrifstofu borgarstjóra og borgarritara að auglýsa eftir samstarfsaðilum og hugmyndum vegna þróunar lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Reykjavík. Um er að ræða svæði á hendi einkaaðila sem setja á í forgang. Um er að ræða Reiti, Köllunarklett, Þorpið og Klasa. Mat fulltrúa Flokks fólksins er að hér þarf að gefa gott svigrúm fyrir samráð við þá sem eiga að nota lífsgæðakjarnana. Þeir aðilar þurfa nauðsynlega að koma að þessu verkefni. Staðsetja þarf hjúkrunarheimili á þessum svæðum og aðrar þjónustustofnanir sem og afþreyingu. Verkefni sem þetta nær til margra aðila og stofnana. Flokkur fólksins hefði viljað sjá fulltrúa frá hagsmunaaðilum í þessum starfshópi s.s. frá Félagi eldri borgara. Ekki dugar að eingöngu kalla eftir áhugasömu eldra fólki eins og það er orðað í erindisbréfinu heldur þarf að bjóða fulltrúum þessa hóps formlega um borð. Ef sá hópur sem á að njóta góðs af þessum verkefnum kemur ekki að hönnun og útfærslu frá byrjun er hætta á seinni tíma vandamálum. Alltof oft gleymist að hafa þá með í ráðum sem ætlað er að njóta góðs af verkefninu.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 4. apríl 2024. MSS24010035. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun er snýr að snertilausu skápakerfi:
Í svari kemur fram að til hafi staðið að funda með aðgengisfulltrúa borgarinnar til að óska aðstoðar hans við að útbúa leiðbeiningar fyrir blinda og sjónskerta um notkun á nýju snertilausu skápakerfi. Sá fundur ætti því að vera afstaðinn og næsta skref tekið. Það er afar mikilvægt að sama kerfi og nú er komið í Dalslaug og Sundhöll Reykjavíkur verði sett upp í öllum sundlaugum borgarinnar svo allir geti notið góðs af snertilausu skápakerfi, blindir og sjónskertir, án tillits til hvaða sundlaug þeir kjósa að fara í.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. apríl 2024.
Lögð var fram bókun á fundi umhverfis- og skipulagsráðs frá Flokki fólksins við kynningu á framkvæmdum á lagfæringum á miðeyjum og tíguleyjum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að verið sé að fara í framkvæmdir til að bæta öryggi og aðgengi fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur yfir Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þetta eru mjög umferðarþung gatnamót og erfið gatnamót fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Bæta á lýsingu og kanta ásamt nokkrum einföldum lagfæringum og hefja á með framkvæmdir strax í sumar. Í sumum tilfellum þarf að loka akreinum til að tryggja gönguleiðir á framkvæmdatíma. Vonandi verður framkvæmdatími ekki langur svo ekki myndist enn frekari umferðartafir við þessi gatnamót.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 17. apríl 2024.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Liður 2
Kynning á stöfum aðgengisfulltrúa. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að embætti aðgengisfulltrúa sé komið á laggirnar. Ráðning aðgengisfulltrúa hefur tafist von úr viti. Þess er vænst að hlutverk aðgengisfulltrúa verði m.a. að sjá til þess að gerðar séu úttektir á aðgengi, þ.e. á þjónustu og starfsemi viðkomandi aðila. Leiði úttekt í ljós að úrbóta sé þörf hlutist aðgengisfulltrúi til um úrbætur. En fleira þarf að koma til. Það þarf vitundarvakningu meðal allra hópa til ef aðgengi á ekki aðeins að vera viðunandi heldur fullnægjandi. Tekið er undir bókun öldungaráðsins um áherslu á aðgengi eldra fólks til og frá búsetuþyrpingum til félagsmiðstöðva og samfélagshúsa á þeim svæðum þar sem íbúðauppbygging sem sérstaklega er ætluð eldra fólki hefur risið eftir að félagsmiðstöðvar tóku til starfa eins og við Árskóga í Breiðholti”
Liður 4
Fulltrúi Flokks fólksins mótmælir fækkun fulltrúa í Öldungaráðinu. Síst af öllu ætti að fækka fulltrúum í þessu ráði. Það er mikilvægt að hafa fulltrúa frá stærstu hagsmunafélögum. Þetta er vettvangur þar sem mikilvægt er að hafa sterkar raddir og með því að fækka þeim er verið að ganga á lýðræðislegan rétt ráðsins.
Áheyrnarfulltrú Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um fund með aðgengisfulltrúa vegna snertilauss skápakerfis:
Flokkur fólksins óskar eftir upplýsingum um hvort haldinn hafi verið fundur með aðgengisfulltrúa vegna aðgengi blindra og sjónskerta að nýju snertilausu skápakerfi í sundlaugum og hverjar voru niðurstöður þessa fundar, hafi hann átt sér stað. MSS24050003
Greinargerð
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram þessa fyrirspurn í framhaldi af það sem segir í fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar fatlaðs fólks frá 4. apríl 2024. Í svari við fyrirspurn nefndarinnar um hvort leiðbeiningar fyrir blinda og sjónskerta hafi verið útbúnar um notkun á nýju snertilaus skápakerfi. Segir að aðilar á menningar- og íþróttasviði hafa verið í sambandi við aðgengisfulltrúa borgarinnar til að óska eftir aðstoð hans við að bæta aðgengi blindra og sjónskertra í sundlaugum Reykjavíkur. Til stóð að funda með aðgengisfulltrúanum í byrjun apríl og vill Flokkur fólksins vita hvort fundurinn hafi átt sér stað og hverjar voru þá niðurstöður hans