Velferðarráð 5. júní 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á heimaþjónustu velferðarsviðs.

Á heilbrigðisþingi 2021 um framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu aldraðra voru málefni aldraðra rædd í þaula. Nánast allir völdu þann valkost að vera heima frekar en að fara á stofnun þegar þeim tveimur valkostum var slegið upp. Til að geta verið sem lengst heima þarf að veita meiri einstaklingsbundna aðstoð, t.d. aðstoð við að fara út úr húsi, komast sem snöggvast undir bert loft og heim aftur. Flokkur fólksins hefði viljað sjá gerða úttekt á því hvar skóinn kreppir í heimaþjónustu og aðstoð við eldra fólk sem býr heima. Margt í heimaþjónustunni er sannarlega að ganga vel. Fulltrúi Flokks fólksins er í sambandi við marga sem þiggja þjónustu og veit því að margt mætti betur fara. Alltaf er hægt að gera betur. Áður hefur verið nefnt mikilvægi þess að sýna sveigjanleika því oft er dagamunur á fólki eins og gengur. Enda þótt ekki séu skilgreindir þættir eins og sorpflokkun, setja í þvottavél eða brjóta saman þvott þá er mikilvægt að þjónustuveitandi geri það eftir þörfum. Á vetrum gætu bæst við þættir sem koma til vegna slæmra færðar t.d. að aðstoða við að fara með sorp. Þetta er í raun spurning um að gera það sem gera þarf til svo að viðkomandi geti verið sem lengst heima.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um rétt maka íbúa hjúkrunarheimila til akstursþjónustu.

Fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir að tekið yrði á dagskrá velferðarráðs umræða um “rétt maka íbúa hjúkrunarheimila til akstursþjónustu til að heimsækja maka sinn”. Margir eldri borgarar þurfa að nýta sér akstursþjónustu til að heimsækja maka sína á hjúkrunarheimili. Algengt er að fólk treysti sér ekki til að nota almenningssamgöngur vegna heilsubrests og svo missa margir færni til að aka bíl þegar þeir reskjast. Það er nógu erfitt að sjá á eftir maka sínum flytja á hjúkrunarheimili þó það bætist ekki ofan á að geta ekki heimsótt makann. Það er bæði tilfinningalega og félagslega mikilvægt fyrir báða aðila að geta haldið sambandi og hist nokkuð reglulega. Fulltrúi Flokks fólksins hefur heyrt að það sé munur á milli sveitarfélaga hvað varðar þessa þjónustu og telur fulltrúinn að það sé mikilvægt að sveitarfélögin samræmi reglur sínar hvað þetta varðar. Ágætis umræða fór fram um þetta málefni í ráðinu og þakkar fulltrúi Flokks fólksins fyrir það. Frekari umræðu er vísað til stýrihóps í málefnum eldra fólks.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um ferðaþjónustu íbúa á hjúkrunarheimilum.

Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af öllum þeim fötluðu einstaklingum sem vistaðir eru á hjúkrunarheimilum og missa rétt sinn til ferðaþjónustu. Þess vegna var óskað eftir því að fá þetta málefni á dagskrá velferðarráðs og var tillögunni vísað áfram til stýrihóps í málefnum eldra fólks. Þegar einstaklingur flytur inn á hjúkrunarheimili þá missir hann rétt sinn til akstursþjónustu nema til að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Þessi regla er sérstaklega slæm fyrir fatlað fólk sem flyst inn á hjúkrunarheimili. Fjöldi fatlaðra einstaklinga eru vistaðir á hjúkrunarheimilum vegna fötlunar en ekki vegna öldrunar. Það sem fulltrúi Flokks fólksins vill leggja áherslu á er að hér getur verið um að ræða hóp fatlaðra einstaklinga sem vistaðir eru á hjúkrunarheimili langt fyrir aldur fram. Í gögnum liggur fyrir skipunarbréf starfshóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Starfshópnum var sérstaklega falið að meta þarfir yngri einstaklinga á hjúkrunarheimilum. Starfshópurinn var stofnaður fyrir ári síðan og hefur enn ekki skilað niðurstöðum en mun gera það fljótlega. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að velferðarráð fái upplýsingar um niðurstöðurnar þegar þær liggja fyrir.

 

Bókun Flokkks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um samanburð á líðan, ástundun og námsárangri barna í símalausum skólum og skólum sem leyfa símanotkun.

Flokkur fólksins lagði til að gerð verði könnun á líðan barna og námsástundun og árangri í þeim skólum sem hafa sett sér reglur um símalausan skóla annars vegar og hins vegar skólum sem leyfa notkun á símum og niðurstöður beggja hópa bornar saman. Tillögunni er vísað áfram til skóla- og frístundaráðs. Hér er um mikilvægt málefni að ræða og afar brýnt að hefja strax samanburðarrannsóknir á hvort finna mætti marktækan mun á líðan barna í þeim skólum sem sett hefur verið á símabann. Þetta skiptir máli fyrir framhald á þróun þessara mála. Ef í ljós kemur að líðan og námsárangur barna eru marktækt betri í skólum sem hafa sett símabann en barna þar sem farsímar eru að mestu leyfðir þá styður það enn frekar að viðhafa símabann í grunnskólum. Eins og staðan er í dag er misjafnt hvaða reglur gilda um farsímanotkun í grunnskólum og það eitt og sér er ekki gott. Flokki fólksins finnst að skóla- og frístundasvið og velferðarsvið hefðu átt að beita sér með meira afgerandi hætti í þessu máli og setja miðlægar reglur um að inn í skólastofuna fari ekki farsími. Það er of mikið hik á sviðinu og hræðsla við að taka af skarið.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, dags. 21. maí 2024, um niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk.

Fulltrúa Flokks fólksins finnst niðurstöður sláandi. Fram kemur í gögnum að það skorti á upplýsingar á vefsíðum Reykjavíkurborgar varðandi þjónustu við fatlað fólk. Úr þessu þarf að bæta. Einnig kom fram að aðgengi að upplýsingum væri ábótavant, t.d. varðandi umsóknir og umsóknarferli vegna þjónustunnar. Í kjölfarið var framkvæmd athugun á vefsíðum nokkurra sveitarfélaga og kom í ljós að upplýsingagjöf var ábótavant á ýmsum sviðum, t.d. var ekki vísað í núgildandi löggjöf. Ákveðið var að fylgja eftir fyrri athugun og kom þá enn skýrar fram að erfitt er að nálgast upplýsingar með einföldum hætti. Flokkur fólksins hvetur velferðarsvið og ráð að gera allt sem hægt er til að gera upplýsingar aðgengilegar. Flokkur fólksins hefur áður lagt til að gerður verði upplýsingabæklingur þar sem finna má upplýsingar um réttindi og þjónustu við fatlað fólk á einum stað því ekki allir sækja sér gögn á netinu.

 

Bókun Flokkks fólksins undir liðnum: Lögð fram til kynningar ársskýrsla Skjóls 2023.

Fulltrúa Flokks fólksins er umhugað um hvernig heimilisfólkinu á Skjóli líður eins og á öðrum sambærilegum stofnunum. Við hraða yfirferð á ársskýrslunni má leiða að því sterkum líkum að umönnun er góð og þörfum heimilisfólksins er vel sinnt. En hvað með andlegar þarfir? Hvergi er að finna neitt um hvernig andlegri heilsuheimilisfólksins er sinnt. Til dæmis hefur það komið fram í rannsóknum að einmanaleiki er víða á hjúkrunarheimilum jafnvel þótt fólk búi innan um og umgangist annað fólk. Þessa þætti þarf að skoða á Skjóli eins og annars staðar. Er séð til þess að það sé rými fyrir stund til að spjalla við heimilisfólkið? Það er nándin, tengslin og snertingin sem skiptir máli en umfram allt er það samtalið sem er besta forvörnin gegn einmanaleika. Starfsfólk hjúkrunarheimila er oft undir álagi t.d. vegna undirmönnunar og hefur því lítinn tíma í gæðastundir með heimilisfólki. Einnig eru aðstæður nú víða þannig að meirihluti starfsfólks skilur ekki mikla íslensku og talar hana jafnvel takmarkað. Fulltrúa Flokks fólksins er ekki kunnugt um hvert hlutfall starfsfólks af erlendum uppruna á Skjóli er. Velferðartækni (skjáheimsóknir) hefur vissulega rutt sér til rúms og skilað góðum árangri en slík tækni kemur aldrei í staðinn fyrir félagsskap manneskju.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 3. júní 2024, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um verkferla við afhendingu íbúða og aðstoð við húsbúnað umfram greiðslu húsbúnaðarstyrks.

Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um hvort eitthvað verklag væri til staðar hjá velferðarsviði þegar einstaklingi er afhent íbúð og einstaklingurinn á ekkert nema fötin sem hann klæðist. Einnig var spurt um aðstoð við að fá nauðsynlegan húsbúnað umfram húsbúnaðarstyrk sem einstaklingar hafa rétt á samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar? Í svari kemur fram að almennt er húsnæði Félagsbústaða ekki útbúið hefðbundnum húsbúnaði við úthlutun að undanskildum smáhýsunum en þar fylgir húsbúnaður. Einnig kemur fram að ekkert formlegt verklag er til staðar hjá velferðarsviði þegar einstaklingi er afhent íbúð með tilliti til þess að kanna hvaða húsbúnað viðkomandi þarfnast. Fulltrúi Flokks fólksins vill hvetja velferðarsvið til að koma sér upp ákveðnum verkferlum þegar fólk í viðkvæmri stöðu fær afhent húsnæði. Það mætti t.d. vera regla að farið sé yfir hvort einstaklingur hafi bráðnauðsynlegan húsbúnað eins og dýnu til að sofa á og ef ekki þá verði viðkomandi bent á þær hjálparstofnanir sem gætu komið til hjálpar. Aðalatriðið er að fólk sé ekki skilið eftir án bráðnauðsynlegs búnaðar og í algjöru reiðileysi.

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn Flokks fólksins:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir greinargóðum skýringum á hvað niðurfelling á hækkun á fjárhagsaðstoð vegna meðlagsgreiðslna þýðir fyrir einstaklinga í þessari stöðu? Hver verður framfærsla þessara einstaklinga eftir breytinguna? Fulltrúi Flokks fólksins spyr líka hvenær þessi breyting tekur gildi og hversu löngu fyrir breytinguna einstaklingar á fjárhagsaðstoð fengu tilkynningu um breytinguna?

Greinargerð:
Áhyggjufullur einstaklingur hafði samband við fulltrúa Flokks fólksins vegna þessara breytinga á fjárhagsaðstoð. Einstaklingurinn hefur miklar áhyggjur af afkomu sinni því nú þegar nær hann ekki endum saman. Meðlagsgreiðslur eru um það bil 46.000 kr. og ef þær dragast frá núverandi framfærslu verður ekkert eftir. Viðkomandi einstaklingur fékk bréf um breytingu á fjárhagsaðstoð 28.maí síðastliðinn en þar segir “ Þann 1. júní 2024 tóku gildi breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg og fellur 13. gr. reglnanna á brott” Það er sérkennilegt að segja “tóku gildi “ því 1.júní er ekki liðinn þegar bréfið er sent og ef rétt reynist að þessar reglur taka gildi 1. júní 2024 þá er mjög skammur tími fyrir skjólstæðinga að gera einhverjar ráðstafanir þ.e eingöngu fjórir dagar.