Forsætisnefnd 15. nóv. 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar í jafnréttis- og mannréttindamálum, sbr. 5. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 15. nóvember 2024 

Þessi aðgerðaráætlun er sannarlega yfirgripsmikil. Það sem kannski vantar þó að fjalla um er hverngi á eftirfylgni að vera háttað? Það sem merkt er “viðvarandi” hvernig á að mæla árangur af því og hvernig er eftirfylgni háttað? Það skiptir máli að sjá með áþreyfanlegum hætti hvort það sem verið er að gera skili sér. Ef það er ekki að skila þeim árangri sem lagt var upp með þarf að gera breytingar. Það er ekki nóg að skrifa einhverjar áætlanir og síðan ekki söguna meir. Mælingar á árangri af þeim skiptir öllu máli

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fyrirspurn borgarfulltrúa Vinstri grænna um hagræði vegna stafrænnar vegferðar

Fulltrúi Flokks fólksins hefur undanfarin ár lagt fram bæði fyrirspurnir og bókanir í tugavís sem allar bera að sama brunni – að reyna að fá almennilegar skýringar og svör við því hvað borgarbúar hafa raunverulega verið að fá fyrir alla þá milljarða sem búið er að ausa í sviðið frá stofnun þess árið 2019. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir alla gagnrýni virðist sviðið hafa komist upp með nánast hvað sem er þegar útsvar borgarbúa er annars vegar.   Rauði þráðurinn í þessu er sá að öll eftirfylgni með öllum fjárfrekum verkefnum sviðsins, hefur vægast sagt ekki verið upp á marga fiska og dæmi um að sótt hafi verið um fjármagn í sömu verkefni oftar en einu sinni. Miklu fjármagni hefur verið eytt í erlenda ráðgjöf eins og áskriftarsamningur við Gartner í heilan áratug sem litlu sem engu hefur skilað í raunverulegum lausnum eða öðru handa borgarbúum. Staðreyndin er einfaldlega sú að þrátt fyrir allar hástemmdu upptalningarnar á þeim verkefnum sviðsins sem lýst hefur verið í  ársskýrslum þess undanfarin ár, er raunverulegur árangur og fjöldi virkra lausna í engu samræmi við það fjármagn sem búið er að veita til sviðsins hingað til.