Reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga Reykjavík 8. nóvember 2024
Sölvhólsgötu 7
101 Reykjavík
Efni: Fyrirspurn frá fulltrúa Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur er varðar ákvæði í reikningsskilum sveitarfélaga
Að gefnu tilefni óskar borgarfulltrúi Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur eftir því að Reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga upplýsi um eftirfarandi atriði er varðar reikningsskil sveitarfélaga:
Í kynningu borgarstjóra Reykjavíkur á fjárhagsáætlun borgarinnar þann 5. nóvember sl. kom fram, að útkomuspá um afkomu rekstrarreiknings borgarinnar fyrir árið 2024, mun sýna jákvæða niðurstöðu um rúmlega hálfan milljarð.
Ein af forsendum þessarar jákvæðu niðurstöðu á rekstrarreikningi borgarsjóðs fyrir árið 2024 er að söluferli fasteignarinnar Perlan að Varmahlíð 1 verði lokið fyrir áramót.
Uppsett verð fasteignarinnar er 3,5 milljarðar króna.
Í þessu sambandi er spurt hvort það samræmist ákvæðum auglýsingar nr. 414/2001, (með síðari breytingum), um flokkun og greiningu í reikningsskilum sveitarfélaga, að færa svo háa fjárhæð, sem fellur til vegna eignasölu, sem ,,aðrar tekjur“ á rekstrarreikningi.
Ef ekki þá er óskað eftir leiðbeiningum um hvar skuli færa söluandvirði verðmætra eigna í eigu sveitarfélaga í reikningsskilum sveitarfélaga.
Óskað er eftir svari sem fyrst og helst fyrir lok nóvember en seinni umræða um Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 fer fram í borgarstjórn 3. desember 2024
Virðingarfyllst
Reykjavík. 8. nóvember 2024
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
Borgarfulltrúi Flokks fólksins
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga Reykjavík 8. nóvember 2024
Sölvhólsgötu 7
101 Reykjavík
Efni: Fyrirspurn frá Flokki fólksins er varðar reikningsskil sveitarfélaga – Söluferli Perlunnar
Með hliðsjón af því að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur ritað Reykjavíkurborg bréf með athugasemdum um fjárhagsstöðu A-hluta borgarsjóðs vill fulltrúi Flokks fólksins koma eftirfarandi fyrirspurn á framfæri:
Í kynningu borgarstjóra Reykjavíkur á Fjárhagsáætlun borgarinnar þann 5. nóvember sl. kom fram, að útkomuspá um niðurstöðu rekstrarreiknings borgarinnar fyrir árið 2024, mun sýna jákvæða niðurstöðu um rúmlega hálfan milljarð.
Ein af forsendum þessarar niðurstöðu er að söluferli fasteignarinnar Perlan að Varmahlíð 1 verði lokið fyrir áramót.
Uppsett verð er 3,5 milljarðar króna.
Í þessu sambandi er spurt hvort eðlilegt sé að færa söluandvirði svo verðmætrar eignar sem ,,aðrar tekjur“ á rekstrarreikningi?
Erindi þetta er sent sérstaklega til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga sökum þess að fjárhagsstaða A-hluta borgarsjóðs er undir eftirliti eftirlitsnefndarinnar.
Óskað er eftir svari sem fyrst og helst fyrir lok nóvember en seinni umræða um Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 fer fram í borgarstjórn 3. desember 2024.
Virðingarfyllst
Reykjavík 8. nóvember 2024
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
Svar
3. desember 2024
Svar við fyrirspurn Kolbrúnar Baldursdóttur fyrir hönd borgarstjórnarfl. Flokks fólksins
vegna færslu hugsanlegrar sölu Perlunnar í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Söluverð eigna er sem slíkt er aldrei fært í rekstrarreikning við reikningsskil en söluhagnaður eða
sölutap eigna, eftir atvikum, er fært þar. Reikningsskilaaðferðir sveitarfélaga gera ráð fyrir að
söluhagnaður eða sölutap eigna sé aðgreint í reikningsskilum þeirra og sýnt sérstaklega.
Þá vill nefndin taka fram til að taka af allan vafa, vegna orðalags í fyrirspurninni, að A-hluti
Reykjavíkurborgar er ekki undir sérstöku eftirliti umfram önnur sveitarfélög landsins enda hefur
fjárhagur borgarinnar ekki gefið tilefni til inngrips á grundvelli VIII. kafla Sveitarstjórnarlaga.
F.h. eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga
Þórir Ólafsson, formaður Árni Sverrir Hafsteinsson