Fjölbreytt námsmat undir liðnum Störf þingsins

Fjölbreytt námsmat undir liðnum Störf þingsins

Fjölþætt, breiðvirkt námsmat byggt á ólíkum mælikvörðum mun brátt komast í gagnið þegar nýtt frumvarp um matsferil verður  samþykkt sem lög frá Alþingi. Mikilvægt er að hafa hluta matsins samræmt en einnig að það sé víðtækt til að gefa góða mynd af getu nemenda og  styrkleikum þeirra.
Þegar gömlu samræmdu prófin voru við lýði gögnuðust þau einungis þeim sem stóðu sig vel í þeim greinum sem prófuð voru. Nemendur sem stóðu sig vel í öðrum greinum féllu í skuggann þegar kom að vali á inngöngu í ákveðna framhaldsskóla.

Sama mátti segja um börn með annan menningar- og tungumálabakgrunn. Spyrja má hvernig framhaldsskólar geti tekið við nemendum á grundvelli meiri jöfnuðar?
Það er mikilvægt að jafna tækifæri nemenda í innritunarferlinu þannig að allir framhaldsskólar axli ábyrgð á fölbreyttum nemendahópi.

Nú liggur fyrir frumvarp um breytingar á lögum um framhaldsskóla. Þar er lagt til að ákvæði laganna um innritun í skóla verði endurskoðuð og að skýr afstaða verði tekin til þess að heimilt verði að líta til annarra sjónarmiða en hefðbundins bóklegs námsárangurs við innritun nemenda í framhaldsskóla.

Lagt er til að heimilt verði að byggja á fleiri atriðum sem tengjast nemandanum s.s. upplýsingar um þátttöku í félagsstarfi og íþróttum og árangur í óformlegu námi ásamt öðrum upplýsingum sem varpa ljósi á færni nemandans og áhugasvið hans.

Reglur þurfa einnig að ná til mats á námsárangri þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og að skólar innriti tiltekinn fjölda nemenda með langvarandi stuðningsþarfir.