Málþófi stjórnarandstöðunnar mótmælt undir liðnum Fundarstjórn forseta

Virðulegi forseti. Ég ætlaði nú ekki að taka til máls undir þessum lið en tel mig bara nauðbeygða. Ég er ný á Alþingi og eftir að hafa verið hérna og hlustað síðustu daga þá hefur mér hreinlega blöskrað. Hér er náttúrlega ekkert nema um augljósa tafaleiki að ræða undir bara öllum mögulegum tækifærum sem stjórnarandstöðuliðarnir geta mögulega fundið. Bara að hlusta hérna hvernig var farið yfir raforkulögin tímunum saman; málefnalega var ekkert að gerast. Það voru í rauninni allir sammála meira og minna. Og í gær — þetta blasir við. Það þarf ekkert að leika einhverja leiki hérna, einhverjir stórkostlega alvarlegir hlutir að það vanti gögn. Við reynum auðvitað bara að mæta þessu af skynsemi og ró en það er býsna erfitt. Þið komið hérna, stjórnarandstöðuliðarnir, hver upp á fætur öðrum, mun fleiri en fólk úr stjórnarliðinu, til þess að gera úr þessu stórkostlega alvarlega hluti. Það er eiginlega komið gott. (Forseti hringir.) Nú er tími til að halda áfram og fara að vinna hér vinnu á þingi eins og þið voruð kosin til.