Á vordögum tókst blessunarlega að afgreiða frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra, Ingu Sæland, um sorgarleyfi. Markmið frumvarpsins var að viðurkenna áhrif sorgarinnar vegna barnsmissis, ásamt því að auka líkur á að foreldrar eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað.
Frumvarpið var byggt á tillögum frá Gleym-mér-ei styrktarfélagi og Sorgarmiðstöðinni. Með lögunum er foreldrum á vinnumarkaði tryggt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap á tilteknu tímabili í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis.
Með nýju lögunum ná sorgarleyfi einnig til foreldra sem missa maka og eiga börn yngri en 18 ára. Foreldrar sem ekki eru í vinnu eða í minna en 25 prósenta starfi geti átt rétt á sorgarstyrk. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. Lögin öðlast gildi í janúar 2026. Aðeins einn, þingmaður úr hópi Miðflokksins greiddi atkvæði gegn frumvarpinu um sorgarleyfi.
Gleym-mér-ei
Í dag 23. ágúst er Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Hlaupurum gefst kostur á að hlaupa til styrktar góðs málefnis. Hægt er að velja á milli fjölmargra góðgerðafélaga. Til að undirstrika mikilvægi nýrra laga um sorgarleyfi vil ég nýta krafta mína og hlaupa til styrktar Gleym-mér-ei styrktarfélags. Gleym-mér-ei er félag foreldra sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Tilgangur félagsins er að styrkja málefni tengt missi barna svo að lítil ljós fái að lifa áfram í minningunni og að hjálpa foreldrum að ná fótfestu í nýjum veruleika. Félagið stendur að fjölda verkefna, heldur utan um foreldra sem eru að fara í gegnum þessa erfiðu lífsreynslu og tryggir að þeir upplifi sig ekki eina í sorginni.
Sorgin spyr hvorki um stað né stund
Engin veit sína ævi fyrr en öll er. Áföll gera sjaldnast boð á undan sér. Það er engin ein rétt leið til að syrgja. Sorg er heldur ekki eitthvað sem hægt er að reka á eftir eða drífa af. Þess vegna er mikilvægt að hver og einn fái sinn tíma og næði til að fara í gegnum sorgarferlið á eigin forsendum. Samfélaginu og innviðum þess ber skylda til að standa þétt að baki einstaklingum sem glíma við sorg og missi sem og önnur áföll. Tíminn getur aldrei læknað öll sár en hann, ásamt hlýjum, umvefjandi stuðningi mildar sannarlega sársaukann. Ný lög um sorgarleyfi veitir fjölskyldum rými til að safna hugrekki til að lifa áfram með sorginni. Þetta eru þannig manneskjuleg lög sem skipta miklu máli. Takk Gleym mér ei fyrir tilveru ykkar og alla vinnu í þágu þessa mikilvæga og viðkvæma málefnis. Takk Inga Sæland fyrir þetta góða frumvarp sem nú er orðið að lögum.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins
Greinin birtist í Morgunblaðinu 23. ágúst 2025