Það er ánægjulegt að sjá að loksins hefur náðst víðtæk samstaða um mál sem eldri borgarar hafa lengi kallað eftir með samþykki þingmanna allra flokka á Alþingi á frumvarpi um breytingar á lögum um ökuskírteini. Reglur um gildistíma ökuskírteina og endurnýjun þeirra hafa um árabil verið umdeildar og margir upplifað þær sem bæði ósanngjarnar og íþyngjandi.
Þetta hefur verið eitt af helstu baráttumálum Flokks fólksins árum saman. Á nýafstöðnu þingi lagði ég ásamt öðrum þingmönnum stjórnarflokkanna fram þingsályktun þess efnis að innviðaráðherra endurskoðaði ákvæði umferðarlaga um endurnýjun ökuskírteina eldri ökumanna með það að markmiði að færa íslenskar reglur nær því sem þekkist í nágrannalöndum okkar.
Fulltrúar allra flokka í umhverfis- og samgöngunefnd voru einnig á nefndaráliti þingmannafrumvarps sama efnis sem að lokum varð að lögum við þinglok. Þar er þeim skiptum sem eldra fólk þarf að endurnýja ökuskírteini fækkað úr um átján í um fjögur.
Samkvæmt áður gildandi lögum styttist gildistími ökuskírteina jafnt og þétt eftir því sem fólk eldist. Þegar einstaklingur hafði náð 72 ára aldri þurfti hann að endurnýja ökuskírteini sitt á tveggja ára fresti og eftir áttrætt á hverju ári. Þótt mikilvægt sé að tryggja umferðaröryggi er eðlilegt að spyrja hvort aldur einn og sér eigi að ráða svo miklu um réttindi fólks.
Rannsóknir og reynsla frá öðrum Norðurlöndum benda til þess að aldur sé ekki einn og sér góður mælikvarði á aksturshæfni. Margir eldri borgarar af öruggi langt fram eftir aldri og slysatölur styðja ekki þá fullyrðingu að þeir séu almennt sérstakir slysavaldar í umferðinni.
Það er því sérstaklega ánægjulegt að innviðaráðherra hafi þegar brugðist við. Hinn 12. júní gaf ráðherra út reglugerð um að ekki verði lengur sjálfkrafa krafist læknisvottorðs vegna aldurs fyrr en við 75 ára aldur í stað 65 ára áður. Sú breyting dregur úr óþarfa kostnaði, skrifræði og fyrirhöfn fyrir þúsundir eldri borgara um leið og hún léttir álagi af heilbrigðiskerfinu.
Jafnframt hefur ráðherra boðað frekari endurskoðun á umferðarlögum, meðal annars varðandi gildistíma ökuskírteina, og sú vinna er þegar hafin. Markmiðið er að byggja reglurnar á málefnalegum sjónarmiðum, raunverulegri hæfni og þeim viðmiðum sem þekkjast í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við.
Landssamband eldri borgara og Ökukennarafélag Íslands hafa bæði kallað eftir slíkri endurskoðun. Það sýnir að hér er um raunverulegt hagsmunamál að ræða sem snertir stóran hóp fólks.
Þegar góðar hugmyndir ná fram að ganga skiptir minna máli hver átti þær fyrst. Það sem skiptir máli er að eldri borgarar fái sanngjarnari og réttlátari meðferð.
Því ber að fagna.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins
Pistill birtur í Morgunblaðinu 29. júní 2026