Börn og sala áfengis á netinu

Hvernig tryggjum við að börn og ungmenni geti ekki keypt áfengi á netinu? Aðeins í um 7 prósentum tilvika var óskað eftir skilríkjum þegar áfengi sem keypt hafði verið á netinu var afhent samkvæmt niðurstöðum úttektar sem unnin var fyrir embætti Landlæknis. Rafræn skilríki voru jafnframt aðeins notuð við kaup í 36 prósentum tilvika. Það er því ljóst að full ástæða er til að staldra við.


Í lögum eru sett skýr aldurstakmörk á áfengiskaupum til að vernda börn og ungmenni. Við verðum að geta treyst því að aldurstakmörk séu virt hvort sem áfengið er keypt í verslun eða á netinu.


Miklar umræður hafa staðið um sölu áfengis á netinu um árabil og sitt sýnist hverjum.  Óháð þeirri umræðu ætti eitt að vera hafið yfir allan ágreining: Börn eiga undir engum kringumstæðum að geta keypt áfengi. Ekki í verslunum, ekki á netinu.

Áhyggjuefni sem verður ekki hunsað

Í þættinum Fram undan á Rás 2 fyrir skemmstu vakti Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri og sérfræðingur í atferlisbreytingum hjá embætti Landlæknis, athygli á því að foreldrar hefðu nánast daglega samband vegna þess að börn kæmust yfir áfengi á netinu. Það undirstrikar að þetta er raunverulegt vandamál.


Þeir sem standa að netsölunni hafa fullyrt að aldursstaðfesting í netsölu sé örugg. Niðurstöður úttektarinnar gefa hins vegar tilefni til að kanna hvort það er raunin. Það er ekki hægt að sætta sig við glufur í kerfinu þegar börn eru annars vegar.


Þegar úttekt leiðir í ljós að framkvæmdin stenst ekki þær kröfur sem samfélagið gerir duga góð fyrirheit skammt. Það á ekki að stefna heilsu barna í hættu með ófullnægjandi eftirliti með aldurstakmörkum.

Megum aldrei slaka á

Á undanförnum árum hefur verið lögð aukin áhersla á öryggi barna í stafrænum heimi. Í því samhengi hefur verið horft til áhrifa samfélagsmiðla, neteineltis og framboðs á efni sem getur haft skaðleg áhrif á börn. Sama ábyrgð hlýtur að gilda þegar kemur að sölu áfengis.


Ég geri mér grein fyrir að þróun rafrænna viðskipta verður ekki stöðvuð. Það breytir ekki þeirri skyldu okkar að tryggja að aldurstakmörkin virki í framkvæmd. Ef við ætlum að samþykkja netsölu á áfengi verðum við að geta svarað því hvernig tryggja megi að börn komist ekki fram hjá aldurstakmörkunum.


Það er verkefni seljenda, flutningsaðila og stjórnvalda að finna örugga leið. Það er skylda okkar að tryggja öryggi barna og að aldurstakmörk haldi þegar áfengi er selt á netinu.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins

Pistill birtur í Morgunblaðinu 18. ágúst 2026