Á hvaða vegferð eru þau?

Það hefur verið undarlegt að fylgjast með stjórnarandstöðunni og helstu hagsmunasamtökum stórfyrirtækja undanfarna mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkur og Framsókn virðast vera sammála um það eitt að tefja framgöngu þjóðþrifamála. Það virðist vera nánast línuleg fylgni á milli þess hve vinsæl málin eru í augum almennings og hversu hart stjórnarandstaðan berst gegn þeim. Skýrasta birtingarmyndin er Íslandsmetið í 1. umræðu um veiðigjaldafrumvarpið, sem stjórnarandstaðan þreytist samt ekki á að minna okkur á að hafi alls ekki verið málþóf. Þrátt fyrir að þar hafi nánast hver einasti stjórnarandstöðuþingmaður fullnýtt sinn ræðurétt og fengið á sig full andsvör, frá öðrum stjórnarandstöðuþingmönnum. En fleiri eru málin sem stjórnarandstaðan hefur barist á móti, þrátt fyrir víðtækan stuðning almennings, svo sem umbótum á almannatryggingakerfinu og lögfestingu samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Af öllu því sem formaður Sjálfstæðisflokksins hefði getað tekið fyrir í ræðu sinni á Eldhúsdegi fyrr í vikunni einbeitti hún sér öðru fremur að því að vara við frumvörpum sem miða að því að tryggja öryrkjum og eldri borgurum kjarabætur til jafns við aðra samfélagshópa.

En það eru ekki bara stjórnarandstöðuþingmenn sem hafa lagt til hliðar allt sem kallast almannahagsmunir. Viðskiptaráð hefur sent kvörtun til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna þess að það telur að félagsleg uppbygging íbúðarhúsnæðis feli í sér afskipti ríkis af samkeppnismarkaði. Það er sem sagt ógn við samkeppni að einhverjir aðrir en hagnaðardrifnir einkaaðilar komi að því að byggja íbúðir fyrir fólkið í landinu. Almenna íbúðarkerfið hefur verið eina viðspyrnan við gegndarlausu gróðrabraski einkaaðila á íbúðamarkaði, sem hafa sýslað með lóðir eins og hlutabréf, og hækkað leiguverð með litlum sem engum fyrirvara um tugi prósenta. Ef ekki væri fyrir félög eins og Bjarg, Blæ og Bríeti veit ég ekki hvar samfélagið væri statt – enda hefur uppbygging á vegum þessara félaga tryggt öruggt húsnæði á sanngjörnu verði fyrir þúsundir landsmanna. Eitt er víst – að ríkisstjórnin mun standa vörð um félagslega húsnæðisuppbyggingu, alveg sama hvað Viðskiptaráð aðhefst.

Ríkisstjórnin hefur strax á fyrst hálfa starfsári sínu rofið kyrrstöðu í fjölda málaflokka, þar sem vandamálin höfðu vaxið vegna vanrækslu fráfarandi ríkisstjórnar. Hvort sem það eru útlendingamál, orkumál, málefni barna eða hjúkrunarheimili. Stöðnun og kyrrstaða í okkar mikilvægustu málaflokkum er liðin tíð. Nú er tími framþróunar, umbóta og vaxtar. Alveg sama hvað stjórnarandstaðan tautar og raular.