Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum undir liðnum Störf þingsins

 

löggjafarþing 156 — 7. fundur,  18. feb. 2025.

Störf þingsins.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil taka til máls undir yfirskriftinni: Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum. Öryggismál þar sem börn koma saman eru í brennidepli núna en umræðan hefur þó komið upp af og til, ekki síst ef einhver tilvik gerast sem samfélaginu finnst eða óttast að ógni öryggi barna á vettvangi skóla- og íþróttastarfs. Samfélagið okkar hefur breyst og spyrja má hvort ekki séu komin vatnaskil í stöðu öryggismála og öryggisvörslu þegar litið er til skólasamfélagsins og annarra staða þar sem börn og ungmenni koma saman. Í umræðunni um öryggi t.d. í skólum hefur notkun öryggis- og eftirlitsmyndavéla borið einna hæst. Víða eru komnar eftirlits- og öryggismyndavélar þar sem þeirra er talin þörf. Þótt myndavélar sem slíkar komi ekki í veg fyrir að alvarlegur atburður gerist eða afbrot sé framið hafa þær fælingarmátt og auðvelda að mál sem upp koma verði upplýst. Vissulega er mikilvægt að tækjabúnaður sem þessi og gögn honum tengd séu ekki misnotuð til að hefta frelsi eða frelsistilfinningu einstaklinga. Skoða mætti hvort ekki þyrfti að losa um hindranir í persónuverndarkerfinu sem snúa að eftirlits- og öryggismyndavélum til að þær geti nýst betur og víðar. Finna þarf leiðir til að skólar séu ekki berskjaldaðir og hver sem er geti gengið hindrunarlaust inn, einhver sem ekki á þangað erindi. Í flestum stærri verslunum eru nú öryggisverðir og sú hugmynd hefur oft heyrst að í skólum ættu hiklaust að vera, auk öryggis- og eftirlitsmyndavéla, öryggisverðir. En auka þarf öryggisvörslu víðar en í skólum. Nýlega var haldinn samráðsfundur barna og ungmenna með Strætó bs. þar sem börn fengu tækifæri til að koma á framfæri sínum hugmyndum um umbætur í strætókerfinu sem lúta að því að auka öryggi þeirra. Börn upplifa sig oft óörugg í strætó enda hafa þau þar bæði orðið fyrir einelti og öðru ofbeldi.

Margt í þessari umræðu er nýtt fyrir okkur en aðstæður kalla á breytta hugsun, auknar forvarnir og nýtt mat á öryggisstöðlum. Tímabært er að ræða hvernig við viljum sjá þessum málum háttað í framtíðinni.