Bókanir á fundi Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram verklýsing/drög að tillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir skotæfingasvæði Álfsnesi, sbr. 1. og 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með þessari verklýsingu eru boðaðar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 til að skapa skilyrði fyrir starfsemi skotfélaga til skemmri tíma á meðan fundin er framtíðarstaðsetning fyrir félögin. Flokkur fólksins óttast að hér verði ekki um að ræða til “skemmri tíma”. Það mun vissulega byggjast á Sundabraut og þeim iðnaði sem stefnt er að stilla upp þarna. Minnt er á að úrskurðurinn um að fella leyfin úr gildi var ekki að ástæðulausu. Í sextán ár hafa íbúar Kjalarness mátt þola hljóðmengun auk þess sem blý hefur safnast í jarðveginn, sjóinn og á ströndina. Skothvellir eru enginn venjulegur hávaði. Gönguleiðin á Esjuna er í 700 m fjarlægð og bergmál skothvellanna mikið. Einhverjar leiðir hafa verið nefndar sem mótvægisaðgerðir en áhrif þeirra eru óljós. Fulltrúi Flokks fólksins hefur staðið með íbúaráðinu og íbúum sem mótmælir því að þessi starfsemi sé þarna og vill að viðeigandi svæði verði fundið fyrir þessa íþrótt. Hér er um íþrótt að ræða sem er óvenjuleg af því leyti að mikil neikvæð umhverfisáhrif hljótast af henni og er hún skaðleg fólki, lífríki og náttúru. Flokkur fólksins er ekki tilbúinn að fórna svo stóru útivistarsvæði fyrir fámennari hóp skotveiðimanna.
Bókanir á fundi Flokks fólksins undir liðnum: Samgöngustjóri leggur til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi sérákvæði fyrir umferð. Að óheimilt verði að leggja ökutæki í norðurkanti Eggertsgötu, milli Ingunnargötu og Suðurgötu. Að óheimilt verði að leggja ökutæki í suðurkanti Eggertsgötu, milli Suðurgötu og Njarðargötu:
Skipulagsyfirvöld leggja til að óheimilt verði að leggja ökutæki í norðurkanti Eggertsgötu, milli Ingunnargötu og Suðurgötu. Að óheimilt verði að leggja ökutæki í suðurkanti Eggertsgötu, milli Suðurgötu og Njarðargötu þar sem borið hefur á því að bílum sé lagt í Eggertsgötu með þeim afleiðingum að ökumenn eiga erfitt með að mætast og getur það skapað hættu fyrir bæði akandi og gangandi vegfarendur. Hefur þetta verið rætt við íbúa við Eggertsgötu og er þetta gert í sátt við a.m.k. meirihluta þeirra? Í sjálfu sér má skilja þessa tillögu en það þurfa þá að vera stæði eða annað úrræði fyrir þá bíla sem ella væri lagt á Eggertsgötu.
Bókanir á fundi Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Laugardals. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóð F og byggingarreitur Laugardalshallar stækka en innan byggingarreitsins er gert ráð fyrir þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir og viðburði.
Breytingin felur í sér umtalsverðar breytingar á nærumhverfinu. Lóðir umhverfis minnka og að sama skapi og bílastæðum. Ekki er gert ráð fyrir nýjum bílastæðum á lóðinni, einungis nauðsynlegum aðkomusvæðum vegna viðburða. Með því reisa mannvirki þarna segir það sig sjálft að eitthvað þarf að láta undan. Mestu áhyggjurnar eru samnýting hallarinnar og óvissunni í því sambandi. Munu Ármann og Þróttur fá þarna trygga aðstöðu? Munu nemendur og félög Laugardalsins fá þarna trygga íþrótta- og æfingaaðstöðu? Ekki hefur lengi verið rætt við skólayfirvöld eða foreldra barna í Laugardal um þessi mál og þau aldrei hvorki spurð né boðið að borðinu þegar rætt er um samnýtingu. Fyrir liggur yfirlýsing frá aðalstjórn Þróttar og Glímufélagsins Ármanns þar sem fram kemur að mannvirkið eins og það er kynnt muni ekki leysa aðstöðuvanda íþróttafélaganna í dalnum. Það mun ekki anna þörf hverfisfélaganna fyrir æfingatíma fyrir börn, unglinga og meistaraflokka né æfingar félagsfólks og barna. Þessi félög sem hér eru nefnd munu mæta afgangi ef svo fer sem horfir. Flokkur fólksins vill að farið verði „aftur“ í umræðu um þessi mál strax þar sem ráðist verði í að tryggja aðstöðu hverfafélaganna í Laugardal enda um bráðamál að ræða.
Bókanir á fundi Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Sundhöll við Barónsstíg, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 23. nóvember 2022 ásamt umsögn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 7. mars 2023:
Það á að setja LED perur í stað þeirra gömlu og bæta þar með lýsinguna samkvæmt umsögn. Hér má alveg staldra við og leggja meira í verkið, gera t.d. lýsinguna fallegri og beina ljósgjöfum á mikilvæga staði og jafnvel minnka ljósmengun til himins. Þetta verk má hugsa upp á nýtt í stað þess að hugsa aðeins “staura með sterkum perum”. Ekkert mjög hlýlegt við það og fallegt.
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fækkun bílastæða, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. mars 2023.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. USK23030014
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um tafir á nýjum tunnum, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 15. febrúar 2023.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða. USK23020174
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um tafir á sorphirðu, sbr. 19. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 15. febrúar 2023.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða. USK23020173
Ný mál:
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn vegna hringtorgs í Vesturbæ
Uggur er í Seltirningum varðandi mögulegar breytingar í sambandi við hringtorgið í Vesturbæ við JL húsið og að setja eigi svo kölluð T gatnamóta. Ef úr verður, verður ekki lengur hægt að taka vinstri beygju frá vesturenda JL-hússins, Hringbrautar 121 inn á Eiðisgrandann í Vesturátt út á Seltjarnarnes. Flokkur fólksins spyr hvort ekki eigi að ræða við Seltirninga um útfærslur og áhrif þeirra. Hér er einmitt mál af þeirri stærðargráðu að hafa á samráð eða eiga samtal við nágrannasveitarfélag? Vegagerðin er með þetta mál enda þjóðvegur í þéttbýli. Borgin er vissulega með skipulagsvaldið. USK23030208
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn vegna lokunar Flokkunarstöðvarinnar í Álfsnesi:
Flokkur fólksins er með nokkrar spurningar um ófarir GAJU og flokkunarstöðvarinnar (lokun hennar) og óskar eftir upplýsingum um málið. Spurt er hver sé ábyrgð fulltrúa meirihlutans í stjórn fyrirtækisins á því tímabili sem ákvarðanir um þetta mál var tekið? Spurt er hvort gera eigi úttekt á rekstri Sorpu af óháðum aðila? Óskað er jafnframt eftir að fá upplýsingar um hver staðan er í rekstri þessa fyrirtækis sem kostað hefur skattborgara milljarða króna. Í umfjöllun blaða um flokkunarstöð Sorpu er haft eftir framkvæmdastjóra að milljarður hafi farið í súginn vegna flokkunarstöðvarinnar. Í sömu tilvitnun segir framkvæmdastjóri að með lokun stöðvarinnar sparist einnig árlega 250 milljóna rekstrarkostnaður. Þetta er afar óljóst og lítur einna helst út að þær 250 milljónir hafi á síðustu 4 árum farið a.m.k. að einhverju leyti í sóun á fjármunum. Flokkur fólksins óskar skýringa á þessu. USK23030213