Forsætisnefnd 2. júní 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 29. maí 2023, varðandi breytingar á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar vegna funda borgarstjórnar.

Fulltrúi Flokks fólksins getur ekki samþykkt að klipnar séu tvær mínútur af ræðutíma þannig að í stað 10 mínútna verður tíminn 8 mínútur sbr. breytingartillögu á 1. mgr. 23. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Í raun er 10 mínútur stuttur ræðutími, ef borið er saman við tímalengd á ræðum á Alþingi munar miklu. Ræðutími á Alþingi er fyrir almennan þingmann t.d. 15 mínútur í fyrstu ræðu. Í umræðunni um breytingar á fundarsköpum og öðru fyrirkomulagi funda hefur meiri- og minnihluti einmitt viljað nálgast starfshætti Alþingis frekar en víkja enn lengra frá þeim. Alþingi er að öllu leyti til fyrirmyndar þegar kemur að fagmennsku, einnig varðandi rými til að fylgja málum eftir, þ.m.t. fyrirspurnum, munnlega og skriflega. Síðast en ekki síst heldur Alþingi úti góðri vefsíðu þar sem finna má öll mál þingmanna bæði í ræðuformi og riti. Ekkert af þessu er í boði hjá Reykjavíkurborg enda þótt fjármagn hafi verið sett í að gera slíkar viðbætur á vef Reykjavíkurborgar fyrir nokkrum árum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 10. maí 2023, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 24. apríl 2023 á breytingartillögu vegna tillögu fulltrúa ungmennaráðs Breiðholts um að lífgað verði upp á skólaumhverfi í grunnskólum Reykjavíkur.

Fulltrúi ungmennaráðs Breiðholts lagði fram tillögu á fundi borgarstjórnar 14. febrúar 2023. Í tillögunni er lagt til að borgarstjórn feli skóla- og frístundaráði að beita sér fyrir því að ákveðnu fjármagni verði veitt til nemendaráða árlega í hverjum grunnskóla frá árinu 2024 og að það verði notað til að lífga upp á skólaumhverfið. Flokkur fólksins telur að þetta sé mjög góð tillaga frá ungmennaráði Breiðholts. Flokkur fólksins telur jafnframt að skóla- og frístundaráð hefði átt að samþykkja tillöguna óbreytta og sýna þannig ungmennunum virðingu og traust.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 10. maí 2023, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 26. apríl 2023 á breytingartillögu vegna tillögu fulltrúa ungmennaráðs Breiðholts um bætt aðgengi að viðtalsmeðferð fyrir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur:

Ungmennaráð Laugardals leggur til að velferðarsvið í samstarfi við skóla- og frístundasvið finni leiðir til að bæta aðgengi grunnskólanema að ráðgjöf innan grunnskólanna í Reykjavík og að tillaga um úrbætur liggi fyrir eigi síðar en haustið 2023. Ungmenni í skólum Reykjavíkur hafa áður kallað eftir auknu aðgengi að sálfræðingum skólans og að þeir hafi fasta starfsstöð í skólum borgarinnar. Ástandið í þessum málum er sorglegra en tárum taki. Fyrir mánuði biðu 2.450 börn á biðlista eftir aðstoð fagfólks Skólaþjónustunnar. Nú bíða 2.498 börn. Um helmingur barna á þessum lista hefur aldrei fengið neina íhlutun fagfólks en reynt er að sinna þeim af bestu getu af kennara og námsráðgjafa. Í fjölda tilfella er ósk foreldra og barnanna sem bíða aðstoðar að barnið fái tækifæri til ræða við sálfræðing, aðila sem þau geta treyst og sem veit hvernig vinna á áfram í málinu. Eitt til þrjú viðtöl geta skipt sköpum og nægir til að barn opni sig um hluti sem á því liggja. Samtal við sálfræðinginn er því lykilatriði og stundum getur fátt annað komið í staðinn.