Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Brú Áfangaheimili
Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið upplýsingar um að Félagsbústaðir hafi sagt upp leigusamningi við áfangaheimilið Brú sem rekið er af Samhjálp. Brú er langtíma meðferðarúrræði sem hefur skilað gríðarlega góðum árangri fyrir alkóhólista og aðra vímuefnaneytendur en þar hefur batinn verið um 80%. Samkvæmt upplýsingum þá á áfangaheimilið að yfirgefa húsnæðið 1. febrúar þannig að lítill tími er til að bregðast við. Ljóst er að um neyðarástand er að ræða sem okkur ber skýlaus skylda að bregðast við og finna annað húsnæði fyrir þennan viðkvæma hóp. Flokkur fólksins hvetur til góðrar samvinnu borgarinnar við Samhjálp og við notendur þjónustunnar.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: kynning á drögum að nýjum reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð til framfærslu.
Kynning á breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð til framfærslu. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að yfirfara og lagfæra reglur reglulega enda margar orðalagsbreytingar gerðar vegna breyttra aðstæðna. Það er greinilegt að það er verið að herða reglur til að koma í veg fyrir misnotkun á fjárhagsaðstoðinni eins og það að þiggja greiðslur frá fleiri aðilum á sama tíma eða stunda svarta atvinnustarfsemi. Flokkur fólksins vill vara við slíkri tortryggni gagnvart fólkinu í borginni. Það er greinilegt að ýmsar breytingar eru gerðar til að hvetja einstaklinga til að taka þátt í virkniúrræðum og sýna fram á virka atvinnuleit. Þetta eru ágætis markmið því vitað er að það er mikilvægt öllum að taka þátt í samfélaginu og stunda atvinnu. Fulltrúi Flokks fólksins vill leggja áherslu á að farið verði í slíkar breytingar með varfærni og horft sé til mannúðar. Flokkur fólksins leggur ríka áherslu á að áður en farið verði í breytingar þá verði þær kynntar vel fyrir notendum aðstoðarinnar. Flokkur fólksins fagnar að verið sé að taka út 13. greinina þar sem kveðið er á um að hægt sé að greiða meðlagsgreiðslur einstaklinga með fjárhagsaðstoð. Fjárhagsaðstoð dugir rétt svo fyrir grunnþörfum og því ekki réttlætanlegt að skerða hana vegna meðlagsskulda.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: tillaga sviðsstjóra, dags. 15. nóvember 2023, um hækkun grunnfjárhæða fjárhagsaðstoðar til framfærslu:
Fulltrúi Flokks fólksins vill benda á nokkur atriði í umræddri tillögu. Lagt er til að hækka grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar til framfærslu um 4,9% um næstu áramót í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. Vert er að taka fram að vegin meðalhækkun launa ríkisstarfsmanna á yfirstandandi ári er 7,3%. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 6,75% samkvæmt kjarasamningum, þó ekki minna en 35.000 kr. Auk þess mældist vísitala neysluverðs 7,9% síðastliðinn október og hefur hækkað um 7,9% síðustu tólf mánuði, sbr. nýjustu tölur Hagstofunnar. Eðli málsins samkvæmt rýrnar fjárhagsaðstoðin þar sem hækkunin heldur ekki í við laun og verðlag. Þetta telur fulltrúi Flokks fólksins að þurfi að taka til greina þegar hækkun fjárhagsaðstoðar er ákvörðuð.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Kynning á drögum að stafrænni stefnu Reykjavíkurborgar.
Stafræn stefna borgarinnar er alltof almennt orðuð og lýsing á framkvæmd hennar er því löng, ómarkviss og flókin. Hún er einskonar samantekt og upptalning á þeim almennu hugtökum sem þjónustu- og nýsköpunarsvið hefur verið að nota í kynningum sínum undanfarin ár. Stafræn þjónusta Reykjavíkurborgar og Reykjavík almennt séð á að vera á heimsmælikvarða. Hér skortir ákveðið raunsæi að mati Flokks fólksins. Erfitt er að sjá hvernig borgin á að geta sigrað heiminn ef hún ætlar að vera hálfgert eyland. Samstarf við aðra og samvinna er það eina sem gildir til að koma lausnum sem fyrst í loftið. Enn á að hanna og þróa sem mest upp á eigin spýtur í stað þess að leita skipulega meira samstarfs við aðra hvað stafrænar lausnir í almannaþjónustu varðar. Ákveðið samstarf er þó hafið við ríkið sem er gleðilegt en það er hlutfallslega lítið miða við önnur sveitarfélög. Samstarf við ríkið átti að hefjast strax 2019 og 2020 og gæti verið meira en það er núna. Hröðun hefur verið of hæg og allt of margar lausnir tafist eða dagað uppi. Milljarðar hafa farið í stafræna vegferð frá árinu 2019. Lausnir “í loftið” eru ekki í samræmi við þessa gríðarlegu fjármuni.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: svar sviðsstjóra, dags. 15. nóvember 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um stefnu og aðgerðir til að uppræta fátækt barna.
Fulltrúi Flokks fólksins spurði hvort borgarmeirihlutinn hyggist grípa til einhverra sértækra aðgerða til að mæta vaxandi fjölda barna sem búa við fátækt í Reykjavík og vísar í fyrirspurn sinni til nýlegrar könnunar Gallup. Þar kom fram að hlutfall þeirra sem ekki ná endum saman fjárhagslega hefur ekki verið jafn hátt síðan fyrir sjö árum. Um þriðjungur þekkir fátækt af eigin raun og leigjendur eiga sérlega erfitt með að ná endum saman ef samanborið er við húsnæðiseigendur eða þau sem búa í foreldrahúsum. Nú hafa allar aðgerðir sem settar voru fram í aðgerðaáætlun meirihlutans þegar komist í framkvæmd samkvæmt svari. Engu að síður fer staðan versnandi. Fulltrúi Flokks fólksins veltir því fyrir sér hvort „velferðarkerfi“ borgarinnar séu ekki að ná að tala saman og því náist ekki að vinna með nógu skilvirkum hætti. Sem dæmi er óljóst vægi ákvarðana annars vegar milli velferðarsviðs og hins vegar Félagsbústaða og einnig er spurning hvernig þjónustumiðstöðvar spila í þessum þríhyrning. Flokkur fólksins veit til þess sem dæmi að velferðarsvið var ekki nægjanlega upplýst um að nú stendur til að hækka leigu hjá Félagsbústöðum umfram vísitölu og verðlag. Engar hugmyndir eru um mótvægisaðgerðir til að mæta þeim verst settu sem ekki ráða við þessa hækkun.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Svar sviðsstjóra, dags. 15. nóvember 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð við fátækt barna.
Svar hefur borist við fyrirspurn Flokks fólksins um viðbrögð við fátækt barna. Spurt var hvort Reykjavíkurborg sé með slíka stefnu eða áætlun til að uppræta fátækt barna í Reykjavík? Um 10 þúsund íslensk börn búa við fátækt og ýmsar ábendingar hafa komið um að fátækt hafi aukist. Þess þarf að gæta að varpa ekki allri sök á verðbólgu og hækkun vaxta þótt vissulega séu það stórir áhrifaþættir sem bitna mest á þeim tekjulægstu. Velferðaryfirvöld verða að taka ábyrgð. Það hefur ekki tekist að fylgja eftir fjórum tillögum sem settar voru fram í skýrslunni Lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004-2016, sem unnin var fyrir Velferðarvaktina en þær voru: Brúa umönnunarbilið, auka tilfærslur til einstæðra foreldra, ókeypis skólamáltíðir og aukin niðurgreiðsla tómstundastarfs. Það gengur ekki að bíða eftir að sjá hvað ríkið ætlar að gera. Kallað er eftir ábyrgð meirihlutans í þessu máli. Frumkvæði um ókeypis skólamáltíðir fyrir þá verst settu kom frá Flokki fólksins en ekki meirihlutanum. Börn sem eiga foreldra sem þurfa á fjárhagsaðstoð til framfærslu að halda fá þjónustugreiðslur til að greiða gjald leikskóla og skólamáltíða. En hvað með öll hin börnin, börn foreldra sem ná ekki endum saman en eru ekki nægjanlega illa settir til að fá fjárhagsaðstoð?
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hvernig gistiskýlin eru undir það búin að taka við fjölgun fólks, mögulega víðsvegar að? :
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um framtíðarsýn gistiskýla Reykjavíkur. Gisti- og neyðarskýli borgarinnar eru yfirfull og óvissa er mikil í kringum þau. Nú er vetur að genginn í garð og allra veðra von. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvernig gistiskýlin eru undir það búin að taka við fjölgun fólks, mögulega víðsvegar að? Hvernig verður opnunartíma neyðarskýla háttað í vetur?
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hvort fyrirhuguð hækkun hafi verið rædd við leigjendur og ef svo er hver voru þeirra viðbrögð?:
Fyrirspurn Flokks fólksins um hækkun leigu hjá Félagsbústöðum. Til stendur að hækka leigu hjá Félagsbústöðum umfram vísitölu neysluverðs og umfram verðlag árið 2024. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort fyrirhuguð hækkun hafi verið rædd við leigjendur og ef svo er hver voru þeirra viðbrögð? Hefur fyrirhuguð leiguhækkun verið rædd við velferðarsvið, og ef svo er, er ákvörðun um leiguhækkun tekin í samráði við velferðarsvið? Nú þegar það liggur fyrir að hækka eigi leigu hjá Félagsbústöðum óskar fulltrúi Flokks fólksins eftir upplýsingum um hvort hugað hafi verið að mótvægisaðgerðum? Er fyrirhugað að hjálpa þeim sem verst eru settir til að mæta umræddri hækkun? Fulltrúi Flokks fólksins minnir á að hér er um okkar fátækasta og viðkvæmasta hóp að ræða.
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hvernig samvinnu og samstarfi er háttað milli velferðarsviðs og Félagsbústaða annars vegar og hins vegar Félagsbústaða og þjónustumiðstöðva borgarinnar?:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsingar um hvernig samvinnu og samstarfi er háttað milli velferðarsviðs og Félagsbústaða annars vegar og hins vegar Félagsbústaða og miðstöðva borgarinnar? Hvert er valdajafnvægi milli þessara kerfa ef kemur til ágreinings vegna einstakra mála? Hversu mikið vægi hafa miðstöðvar þegar kemur að vandamálum sem upp kunna að koma hjá leigjendum Félagsbústaða hvað varðar húsnæðið sjálft eða innheimtu á leigu?