Borgarráð 16. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 14. nóvember 2023, varðandi skýrslu starfshóps um betri rekstur og afkomu bílahúsa Bílastæðasjóðs og tillögur starfshópsins.

Í skýrslunni kemur fram að nýting bílastæðahúsa er léleg eða 27% að meðaltali. Þess vegna er aðalatriðið að bæta nýtingu þeirra. Sérstaklega er áríðandi að þau nýtist að nóttu sem ekki er raunin nú. Markmiðið hlýtur að vera að koma bílum af götu ef kostur er. Margar tillögur skýrslunnar miða að því að draga úr notkun bílastæðahúsa enn frekar svo sem að hætta að gefa afslátt ef lagt er lengi og jafnvel hækka gjaldið sem er ekki ástæða til þegar nýting er svo lítil. Betra væri að leggja áherslu á að einfalda aðgengi að bílastæðahúsunum og um það eru reyndar nokkrar tillögur komnar frá Flokki fólksins.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, dags. 13. nóvember 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um búsetu í ósamþykktu húsnæði, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. október 2023. MSS23100165

Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um hvað talið er að margir búi í húsnæði sem ekki er skráð sem íbúðarhúsnæði og standist því mögulega ekki öryggismat. Nýlega lést einstaklingur af sárum sínum í kjölfar bruna sem varð í atvinnuhúsnæði. Brunar í ósamþykktu húsnæði hafa færst í aukana síðustu misseri og hafa þessi mál oft verið rædd í borgarstjórn, sérstaklega eftir mannskæðan bruna á Bræðraborgarstíg. Af svari má sjá að áætla má að fjölgað hafi í þessum hópi síðan. Eftir síðustu kortlagningu sem lauk í febrúar 2022 voru um 1868 einstaklingar búsettir í atvinnuhúsnæði í 204 heimilisföngum á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim voru 860 einstaklingar búsettir í Reykjavík, þ.e. 856 fullorðnir og 4 börn, með 78 heimilisföng eða um 0,7% íbúa Reykjavíkur. Það sem af er þessu ári hefur slökkviliðið gert athugasemdir við búsetu í iðnaðarhúsnæði í 27 tilvikum. Ljóst er að vert er að hafa áhyggjur af þessum málum. Mikilvægt er að að drífa í gegn frumvarp innviðaráðherra sem felur í sér auknar heimildir fyrir slökkvilið til þess að hafa eftirlit með húsnæði þar sem fólk býr við ófullnægjandi öryggi. Önnur áhrifabreyta, sennilega sú stærsta, er sár skortur á húsnæði af öllum tegundum í Reykjavík.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 13. nóvember 2023, og svar Barnaverndar Reykjavíkur, dags. 8. nóvember 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um ofbeldi meðal barna þar sem notuð eru eiturefni, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. október 2023.

Af svörum skóla- og frístundasviðs og Barnaverndar Reykjavíkur að dæma er metnaðarfullt kerfi í gangi sem grípa mál af því tagi sem hér er spurt um. Mestu máli skiptir að ferlar virki þegar á reynir. Fulltrúi Flokks fólksins leggur mikla áherslu á forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir með það að markmiði að grípa þau börn sem sýna merki þess að vera í áhættuhópi. Vegna langs biðlista barna eftir faglegri aðstoð er það sífelldur ótti fulltrúa Flokks fólksins um að af þessum 2.300 barna biðlista séu börn sem einmitt séu í áhættuhópi en vegna biðar fá þau ekki þá aðstoð sem þau þurfa þegar þau þurfa hana. Þetta er staðreynd þrátt fyrir ný kerfi eins og Betri borg fyrir börn og Keðjuna, sem er reyndar ekki alveg séð hvernig nýtist börnum beint en sannarlega óbeint. Kontakt barns við fagaðila má aldrei vanmeta. Annað þessu tengt eru áhyggjur af auknum vopnaburði barna sem ekki hefur fengið næga athygli. Tillaga Flokks fólksins um að senda bréf til foreldra og forráðamanna vegna aukins hnífaburðar barna og ungmenna var sem dæmi felld í skóla- og frístundaráði. Þetta er tillaga sem ekkert hefði kostað en gæti haft fyrirbyggjandi áhrif.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. nóvember 2023, við fyrirspurn borgarfulltrúa Flokks fólksins um stöðu tillagna um innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík, sbr. 54. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. júlí 2022.

Fram kemur í svari að tillögum sem hafði verið frestað í borgarráði og vörðuðu málaflokkinn var vísað til stýrihóps um mótun heildstæðrar stefnu og aðgerðaáætlunar um umhverfi og aðstæður barna á aldrinum 0-6 ára. Fulltrúi Flokks fólksins situr i hópnum. Tillögurnar hafa ekki enn komið til umræðu í hópnum. Fulltrúi Flokks fólksins hefur nokkrar áhyggjur af því hvernig tillögurnar verða meðhöndlaðar í hópnum, hvort einhverjar meiri líkur eru á að þær nái fram að ganga í meðförum hópsins. Hópnum stýra auk þess utanaðkomandi aðilar sem eru e.t.v. ekki alveg innstilltir á þarfir barna í Reykjavík. Ekki skal þó fullyrt neitt um það. Allavega má hópur sem þessi ekki virka eins og einhver ruslakista sem notuð er til að fleygja í erfiðum tillögum sem meirihlutinn treystir sér ekki til að taka á, en spyrja þarf að leikslokum. Sú fyrirspurn sem hér um ræðir snýr að innleiðingu Barnasáttmálans og hvað vanti upp á til að hægt verði að innleiða hann. Mikilvægt er að leggjast yfir innleiðingarferlið og laga það sem þarf að laga til að hægt sé að innleiða Barnasáttmálann. Daglega er brotið á börnum í Reykjavík og er skemmst að nefna að þau fá ekki nauðsynlega sálfræði- og talmeinaþjónustu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 8. nóvember 2023: 

Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir tillögu um verklag til að koma í veg fyrir efnissöfnun frá framkvæmdum nálægt íbúabyggð í því skyni að koma í veg fyrir að efni og úrgangur frá framkvæmdum geti staðið um langa hríð nálægt íbúðarbyggð, líkt og hefur átt sér stað á horni Árskóga og Álfabakka í Suður-Mjódd á þessu ári en þar hafa háir haugar af möl og grjóti valdið íbúum tjóni. Fulltrúi Flokks fólksins veit um annað dæmi en við Álfabakka 2a er t.d. malarhaugur þar sem hlaðið hefur verið upp grjóti og möl og virðist sem enginn kannist við hver gaf leyfi. Íbúar hafa lengi reynt að fá upplýsingar um hvað standi til að gera við þennan haug. Ekki er vitað út á hvað núgildandi byggingarleyfi gengur. Af þessum haug er mikil sjónmengun og önnur mengun. Við þurrviðri og þegar blæs vel um svæðið fýkur ryk út um allt og mörgum með öndunarvandamál líður illa. Íbúum finnst skelfilegt að hafa allt þetta grjót svona nálægt blokkinni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Kjalarness frá 9. nóvember 2023:

Íbúi á Kjalarnesi gerir alvarlegar athugasemdir við kynningarferli á breytingum á aðalskipulagi á Álfsnesi vegna fyrirhugaðs skotsvæðis. Kynningin hefur ekki farið fram skv. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 123/2010. Íbúinn óskar eftir að kynningin fari fram og sé það sérlega mikilvægt vegna áralangra kvartana, athugasemda og kærur íbúa til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Einnig er þess óskað að þessi bókun verði send umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar ásamt því að hún fylgi fundargerð þessa fundar. Fulltrúi Flokks fólksins vill hjálpa til í þessu máli og bókar um þetta þess vegna hér.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 13. og 20. október 2023:

Áfram er rætt um útboð á akstri Strætó og veldur það fulltrúa Flokks fólksins áhyggjum því í raun er ekki vitað meira um hvað þarna stendur að baki. Þó er vitað að fjögur tilboð bárust í þrjá útboðshluta og voru öll þeirra yfir kostnaðaráætlun. Þessi mál eru því snúin. Fulltrúi Flokks fólksins hefur verið að einblína á óhófleg ráðgjafakaup og fram kemur að verið sé að leita ráða hjá Mannviti, en Mannvit sá um framkvæmd og undirbúning útboðsins. Er það þannig hjá borginni að enginn geti annast undirbúning útboðs öðruvísi en að kaupa rándýra ráðgjöf?

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. nóvember 2023. 6. liður fundargerðarinnar er samþykktur. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar: 

Suðurfell – þróunarsvæði í suðausturhluta Fellahverfis – skipulagslýsing. Fjölmargir mótmæla harðlega þessari tillögu þar sem hér er gengið freklega á græn svæði innan borgarmarkanna. Fjöldi fólks nýtir sér þennan hluta náttúru innan borgarmarkanna m.a. með göngu- og reiðhjólatúrum hvern einasta dag eins og segir í einni athugasemdinni. Eins og fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað klifað á þá mun Arnarnesvegurinn koma til með að skemma þetta svæði mikið. Ef gripið er niður í fleiri athugasemdir segir: „Borgaryfirvöld hafa þegar stutt gríðarlega umfangsmikla eyðileggingu græns svæðis, eða 11,4 hektara af mikið notuðu útivistar- og náttúrusvæði á Vatnsendahvarfi, sem verður sprengt í loft upp og malbikað yfir til að leggja Arnarnesveg. Fram kemur í athugasemdum að Vinir Vatnsendahvarfs eru á móti þessum framkvæmdum og er þess krafist að græn svæði borgarinnar hljóti viðeigandi vernd, líka þau sem eru í efri byggðum.“ Fulltrúi Flokks fólksins skorar á skipulagsyfirvöld að ljá athugasemdunum eyra og fara ekki gegn straumnum í þessu umdeilda máli.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um stöðu mála við endurgerð Laugardalslaugar en skýrsla um endurgerð laugarinnar og tengdra mannvirkja var lögð fram á fundi borgarráðs 10. júní 2022:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um stöðu mála við endurgerð Laugardalslaugar en skýrsla um endurgerð laugarinnar og tengdra mannvirkja var lögð fram á fundi borgarráðs 10. júní 2022. Þá var lagt til að efna til opinnar tveggja þrepa hönnunar- og framkvæmdasamkeppni um endurgerð Laugardalslaugar og tengdra mannvirkja og áætlað var að niðurstaða dómnefndar lægi fyrir 2023. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvað sé að frétta en í skýrslunni voru margar áhugaverðar hugmyndir. Áberandi samhljómur var t.d. um að Laugardalslaug ásamt stúkumannvirki verði lýðheilsu- og menningarmiðstöð. Benda má á vannýtt svæði í kjallara stúkubyggingar, norðurhluta hennar auk gömlu afgreiðslunnar í aðalbyggingu. Endurhugsa á stúkuna og þar yrði t.d. tilvalið að koma fyrir ýmiss konar afþreyingu. Stúka Laugardalslaugar er eitt af kennileitum borgarinnar en nýtist ekkert. MSS22050193

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um um framtíð skólabókasafna í Reykjavík:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um framtíð skólabókasafna í Reykjavík og hvort hægt sé að ganga út frá því að þau lifi áfram í þeirri mynd sem þau eru. Skólabókasöfn gegna mikilvægu hlutverki. Þangað koma börn á öllum tímum dags. Ýmist í hléi milli kennslustunda, í frímínútum, eftir skóla og jafnvel áður en skóladagurinn hefst. Þangað fara heilu bekkirnir til að brjóta upp kennslustundir og njóta bókmennta í hlýlegum aðstæðum skólabókasafna. Í kjölfar ákvörðunar meirihlutans að leggja niður Borgarskjalasafn myndaðist ótti hjá mörgum um að það væri aðeins upphafið af röð niðurlagninga bókasafna og þeim ætti frekar að steypa saman á einhverjum fáum stöðum í borginni. Um leið og skólabókasafn fer út úr skólanum er það ekki lengur skólabókasafn og nýting þess gjörbreytist. Þá eru börn ekki að skjótast inn til að lesa eða skoða bók þegar mínúta gefst inn á milli á skólatíma, hvað þá að koma við í byrjun eða lok skóladags. MSS23110112

Vísað til umsagnar skóla- og frístundasviðs.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um kostnað skýrslu um betri rekstur og afkomu bílastæðahúsa Bílastæðasjóðs:

Á fundi borgarráðs 16. nóvember var lögð fram skýrsla um betri rekstur og afkomu bílastæðahúsa Bílastæðasjóðs. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhuga á að vita hvað þessi skýrsla kostaði með tilheyrandi vinnu sem hún krafðist. MSS23020131

Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.