Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni kynningu er lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi 2040 fyrir skotæfingasvæði Álfsnesi, dags. í janúar 2024 sbr. 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umsögn dags. 15. janúar 2024.
Þær breytingar sem hér eru lagðar til, að skapa skilyrði fyrir skotæfingar, bera merki um hversu kappsamur meirihlutinn er að þjóna þessum hópi fólks sem vill skjóta. Aðstaða á svæðinu hefur verið byggð upp og kostuð af Reykjavíkurborg. Miklu hefur verið kostað vegna landmótunar og annarra mannvirkja til að réttlæta frekar að svæðið verði notað fyrir skotæfingar. Flokkur fólksins harmar að hunsa eigi alfarið áralanga baráttu íbúanna að losna við skotæfingasvæði svo hlífa megi fólki og dýrum við mengun. Eftir því er tekið að hvergi í gögnum er minnst á viðurlög ef reglur eru brotnar. Umræða um að þetta sé þjóðarleikvöllur í skotfimi ætti leiða til þess að fleiri en borgin greiði fyrir allar þessar breytingar. Hvernig getur skotæfingasvæði verið þjóðarleikvöllur þegar stór hópur er e.t.v. alfarið á móti þessu sporti. Þótt blýhögl séu bönnuð hafa þau fundist í fuglum sem ekki gera greinarmun á blýhöglum og sandkornum sem þeir éta til að auðvelda meltinguna. Ætlast er til að Reykjavíkurborg beri kostnað af rannsóknum á menguninni. Með öllu þessu tilstandi má ætla að þessi skotvöllur verði þarna um aldur og ævi eftir allt þetta tilstand. Allt þetta mál er að mati Flokks fólksins mikið hörmungarmál.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf., dags. 23. janúar 2023, ásamt bréfi, dags. 23. janúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Vallár á Kjalarnesi.
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að stækka eigi hænsnabúið svo betur fari um hænsnin. Hætta á notkun búra en á sama tíma á að tvöfalda fjölda fugla. Þetta hlýtur að vera allt í samræmi við dýraverndunarlög- og sjónarmið. Eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins sér í gögnum eru helstu athugasemdir um lyktarmengun vegna stækkunar Stjörnueggja. Í ljósi þess að óvissa er um áhrif stækkunarinnar á lyktarmengun telur Umhverfisstofnun rétt að tekið verði tillit til þess við gerð skilmála deiliskipulagsins. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir það og einnig að gert verði skoðun á á umhverfisáhrifum þegar fram líða stundir sbr. bókun Íbúaráðs Kjalarnes.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn VSÓ ráðgjafar, dags. 4. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis fyrir tímabundna skiptistöð Strætó.
Skipulagsyfirvöld leggja til tímabundna endastöð Strætó við Skúlagötu vegna flutning frá Hlemmi, samþykkt af samgöngustjórn Reykjavíkurborg. Fjöldi athugasemda hefur borist, einna helst er bent á óæskilega staðsetningu fyrir strætóstöð í íbúðarhverfi og nálægð við svefnherbergi íbúa. Mikil umferð strætisvagna með hljóð og loftmengun hlýtur að teljast ógn við heilsu og friðhelgi íbúa. Bílastæðið sé einnig fullnýtt alla daga. Æskilegra væri að finna annan stað fjær íbúabyggð til dæmis vestasta hluta Miðbakkans. Flokkur fólksins tekur undir þetta. Mótvægisaðgerðir mega sín lítils því erfitt er t.d. að koma upp frekari hljóðvörnum umfram þau sem eru í dag án þess að ganga á útsýni íbúa til norðurs. Fulltrúi Flokks fólksins finnst ekki duga að hafa samráð aðeins með því að auglýsa tillöguna heldur væri nær að hafa íbúafund og hlusta á það sem fólkið segir. Bréf dugar ekki heldur, sums staðar er póstur einfaldlega ekki borinn út og ef þau eru borin út er útburður afar stopull.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð SORPU bs. dags. 9. janúar 2024 ásamt fylgigögnum. USK23010167
Liður 3
Eitt helsta umtalsefni borgarbúa er sorphirðan og nýja flokkunarkerfið sem tekið var í notkun síðastliðið sumar. Reykvíkingar eru duglegir að flokka lífrænan úrgang frá en á sama tíma er mikil óánægja með að stefnt sé að því að íbúar þurfi að greiða fyrir bréfpokana undir lífræna úrganginn. Vel hefur gengið að hirða lífrænt og almennt sorp en mikil óánægja er með hversu hægt gengur að tæma plast- og pappírstunnur. Í miðri umræðu meirihlutans um að halda aftur af gjaldskrárbreytingum til að leggja sitt af mörkum við að sporna gegn hækkun verðbólgu hefur Sorpa hækkað sína gjaldskrá svo um munar. Þetta er auðvitað ekki ásættanlegt og mun fara eins og aðrar gjaldskrárhækkanir beint út í verðlagið. Vissulega kunna að vera góðar skýringar á hækkunum s.s. að að einingarverð á blönduðu rusli til orkuvinnslu hefur hækkað. Engu að síður er mikilvægt að setja allar gjaldskrárhækkanir sem mögulegt er á frest enda er það í þágu almannahags.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um mathöll í Mjódd og skiptiaðstöðu Strætó, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. nóvember 2023.
Ákaflega jákvætt yrði fyrir íbúa Breiðholts að fá mathöll í Mjóddina, sérstaklega í ljósi þess að hin sívinsæla matsala Hjá Dóra fór úr Mjóddinni fyrir allnokkru og íbúar því svolítið á einskismannslandi að sækja út fyrir hverfið í leit að góðum matsölustöðum. Áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins finnst mikilvægt að í framtíðarskipulagi á Mjóddinni og þeim húsakynnum sem þar eru og eiga eftir að koma yrði gert ráð fyrir möguleika á slíkri mathöll eða öðru sambærilegu ef að áhugasamir rekstraraðilar finnast í slíkt verkefni.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um lágvöruverslun í stúdentahverfi, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs. dags. 25. október 2023. Einnig er lagt fram svar skipulagsfulltrúa dags. 11 janúar 2024. USK23100294
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins fagnar því að tekið sé vel í erindi þetta og að þarna geti við endurskipulag svæðisins skapast aðstæður til að opna slíka verslun á þessum stað. Ekki er vanþörf á að hafa slíka verslun í návígi við fólk sem stundar nám á Háskólasvæðinu.
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kannað verði hvort hægt sé að greiða samhliða fyrir bílastæði í bílastæðahúsi og hleðslu rafbíls.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssvið, skrifstofa samgangna og borgarhönnunar USK24010096
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að íbúar við Hlemm fái að nota bílastæði við enda lögreglustöðvarinnar, Rauðarársstígsmegin, sbr. 40. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 10. janúar 2024.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa samgangna og borgarhönnunar. USK24010094
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lagfæringar á stéttum í Norðurhólum:
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram tillögu um lagfæringu á gangstéttum í Norðurhólum, Hólabergi og Hraunbergi (111 Reykjavík). Gangstéttar þarna í þessum götum eru orðnar mjög illa farna, sprungnar og yfirborð þeirra mjög frostsprungið, gróft og ónýtt. Gangstéttirnar eru á köflum illa gangfærar og beinlínis stórhættulegar yfirferðar á t.d. rafhlaupahjólum. Dæmi eru um að fólk, m.a. börn, hafi dottið og meitt sig vegna þess hvernig þessar stéttar eru orðnar á yfirborðinu. Alvarlegast er ástandið í Norðurhólum frá gatnamótunum við Hólaberg þar sem stéttirnar eru kross sprungnar og aflagaðar. Sama má segja um ástandið fyrir framan húsið að Hólabergi 80. Samhliða lagfæringum á þessum gangstéttum er lagt til að eigendum húsa sem þarna standa verði boðið að tengja snjóbræðslu í bílaplönum sínum út í gangstéttirnar fyrir framan húsin sín á sinn kostnað óski þeir eftir að fá að gera það.
Frestað. USK24010167
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um viðurlög ef brotnar eru reglur á skotæfingarsvæðinu í Álfsnesi:
Hvergi er að sjá í gögnum um breytingu á aðalskipulagi að það sé gert ráð fyrir neinum viðurlögum við brotum á hertum reglum á skotæfingasvæðinu Álfsnesi. Flokkur fólksins leggur til að samin verði reglugerð um sektir og eða önnur viðurlög ef settum reglum á skotæfingasvæðinu er ekki framfylgt. Ef ekki eru nein viðurlög við brotum má gera ráð fyrir að brot sem hafa átt sér stað á árum áður haldi áfram.
Frestað. USK24010168