Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram svohljóðandi tillaga stýrihóps um endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð, dags. 13. mars 2024, um breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð
Tillaga um breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð er á ýmsa vegu til bóta. Skerpt er á reglum um hvenær eigi að veita lán fremur en styrk. Til bóta er að heimilt er að veita undanþágu frá tekjum fyrri mánaðar vegna einstaklinga sem eru að ljúka endurhæfingu. Breytingar eru gerðar á viðmiðum um framvísun persónuskilríkja til að sanna á sér deili. Fulltrúi Flokks fólksins hefur nokkrar áhyggjur af málsgreininni „Sanna skal á sér deili innan tveggja virkra daga frá því að umsókn var lögð fram nema lögmæt forföll hamli því, s.s. veikindi eða fötlun.“ Hvernig á að bregðast við ef einstaklingur kemst ekki vegna fötlunar eða dvelur á sjúkrahúsi eða stofnun? Gera á þá breytingu að ef einstaklingur mætir ekki í boðað viðtal, námskeið, staðfestir ekki atvinnuleit, hafnar vinnu, verður grunnfjárhæð skert um 50% en heimilt sé að skerða eingöngu um 85% ef viðhlítandi skýringar eða veigamiklar ástæður eru fyrir hendi. Tilgangurinn er augljóslega að hvetja fólk til virkni og að sporna gegn misnotkun á öryggisneti velferðarkerfisins. Það er hins vegar óljóst hver á að meta hversu miklar skerðingarnar eigi að verða. Það er vissulega tilgreint að taka eigi tillit til fjölda barna á framfærslu sem er vel.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins um aðstöðu fyrir listasmiðju fyrir jaðarsett fólk, ásamt umsögn velferðarsviðs,
Lagt er til að velferðarráð samþykki að opna listasmiðju fyrir jaðarsett fólk með fjölþættan vanda. Flokkur fólksins fagnar þessu framtaki og sérstaklega ánægjulegt er að sjá að starfið verður í höndum sjálfboðaliða sem þegar hafa boðið fram þjónustu sína. Sjálfboðaliðar hafa óskað eftir að fá afnot af rými á Lindargötu við Vitatorg. Um er að ræða bílskúr sem er nú þegar í leigu hjá Reykjavíkurborg þannig að ekki er um kostnaðaraukningu að ræða. Listasmiðjan er hugsuð sem úrræði fyrir jaðarsett og einangrað fólk í búsetu eða með aðsetur í úrræðum eins og Hringbraut 121/79, Gistiskýlinu á Granda, Njálsgötu, Konukoti, Lindargötu o.s.frv. þar sem fólk getur komið saman og skapað list. Jákvætt er að sjá að sjálfboðaliðar verkefnisins eigi að sitja námskeið í sértækri skyndihjálp og skaðaminnkandi nálgun.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á stöðu húsnæðismála.
Velferðarráð fær kynningu á stöðu húsnæðismála. Reykjavíkurborg hefur gert samkomulag við innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að gera stórátak í húsnæðismálum í Reykjavík. Auka á sérstaklega uppbyggingu hagkvæmra íbúða og fjölga á félagslegum íbúðum. Það veitir svo sannarlega ekki af að spýta í lófana því 1019 manns bíða eftir húsnæði og eru þar um 400 börn sem bíða ef horft er til barnafjölskyldna. Það vakti athygli fulltrúa Flokks fólksins hversu fáar íbúðir Félagsbústaðir keyptu á síðasta ári. Það voru eingöngu keyptar 61 íbúð á árinu en til samanburðar voru keyptar 127 íbúðir árið 2020. Það er lengst bið eftir 1-2 herbergja íbúðum svo það er mikilvægt að fjölga slíkum íbúðum. Það vakti furðu hjá fulltrúa Flokks fólksins að einhleypir karlar væru fjölmennasti hópurinn sem er á bið eftir íbúð hjá Félagsbústöðum en nú bíða 346 einhleypir karlar eftir íbúð. Það er líka athyglisvert að sjá að flestir sem eru á biðlista eftir húsnæði er fólk sem annað hvort er öryrkjar eða óvinnufærir einstaklingar. Þetta sýnir okkur hvað staða þessa hóps er erfið og mikilvægi þess að við tökum utan um hópinn og bætum í úrræði fyrir hann.
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins.
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um fjölda öldrunarráðgjafa á miðstöðvum borgarinnar og hvort eigi að endurvekja fíkniráðgjafateymið. Á fundi velferðarráðs 7. febrúar fengu fulltrúar ráðsins kynningu á starfsemi Norðurmiðstöðvar. Í þeirri kynningu kom fram að á þjónustusvæði Norðurmiðstöðvar er hlutfall eldri íbúa hærra en á öðrum þjónustusvæðum borgarinnar. Kom jafnframt fram að starfandi öldrunarráðgjafar væru flestir starfandi á Norðurmiðstöð. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hversu margir öldrunarráðgjafar eru starfandi á öllum miðstöðvum borgarinnar. Það kom einnig fram í kynningunni að einungis einn starfsmaður væri starfandi í fíkniráðgjafateyminu og það kom ekki fram hvort ráða ætti bót á því. Því spyr fulltrúi Flokks fólksins hvort eigi að fá starfsfólk í teymið og endurvekja það.
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að gerð verði könnun meðal foreldra grunnskólabarna um hvort þeir viti hver skólasálfræðingur barna þeirra er og þekki hann jafnvel með nafni.
Greinargerð: Skólasálfræðingar hafa ekki aðsetur í skólum heldur á þjónustumiðstöðvum. Þeir ferðast út í skólanna eftir atvikum og sumir dvelja í skólunum hluta dags í viku til að sinna sálfræðiþjónustu, ýmist greiningum og/eða ráðgjafarviðtölum. Fulltrúi Flokks fólksins hefur orðið þess áskynja að algengt virðist vera að foreldrar telja að enginn sálfræðingur sé í skóla barna þeirra og jafnvel þótt þeir viti það þekkja þeir ekki nafn sálfræðingsins. Þar sem fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að foreldrar viti að það er í lögum að allir grunnskólar hafi sálfræðing er nauðsynlegt að átta sig á hversu mikla og djúpa kynningastarfsemi þarf að fara í til að upplýsa foreldra um að í skóla barna þeirra er starfandi sálfræðingur.