Borgin kvödd og nýjum vinnustað, Alþingi, heilsað

Hinn 21. janúar sl. baðst ég lausnar úr borgarstjórn eftir tæpra 7 ára starf sem borgarfulltrúi Flokks fólksins. Mín bíður nýr starfsvettvangur, Alþingi sem sett verður 4. febrúar næstkomandi. Flokkur fólksins á Alþingi sem telur 10 þingmenn hafa gert ríkisstjórnarsáttmála með Samfylkingu og Viðreisn.  Ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem mér býðst á þinginu. Ég er þingmaður Reykvíkinga (Reykjavíkurkjördæmi suður) og mun halda áfram að berjast fyrir bættum hagsmunum Reykvíkinga en einnig ávallt hafa hagsmuni allra landsmanna að leiðarljósi.