Umhverfis- og skipulagsráð 9. október 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á útboði eftirlitskerfis Bílastæðasjóðs:

Svo virðist sem kerfið sem hér um ræðir taki ekki mikið tillit til þjónustuþegans. Fulltrúi Flokks fólksins vill á meðan þróun þessara mála er ekki komin lengra en raun ber vitni að Bílastæðasjóður taki aftur upp að leggja sektarmiða undir rúðuþurrku í stað þess að senda rukkun beint í heimabanka. Með þessu fyrirkomulagi eru miklar líkur á því að sektin hafi hækkað þegar fólk áttar sig á að hafa fengið hana. Ef horft er til gjaldskyldra bílastæða þá er þetta eins og frumskógur og ómögulegt að vita hvað er borgarrekið og hvað er einkarekið. Þeir sem aka á P merktum bílum og leggja í P merkt stæði þurfa að greiða í einkarekin stæði sem sem stríðir gegn lögum. Borgin hætti að rukka P-korthafa, sem hafa rétt til þess að leggja án greiðslu í P-stæði og gjaldskyld almenn bílastæði skv. umferðarlögum að því tilskyldu að þeir láti vita af sér fyrirfram (sem er líka gagnrýnivert fyrirkomulag), en einkaaðilar neita að láta af rukkunum. Það vantar stórlega yfirsýn yfir hvaða stæði og hús eru rekin af borginni og hver af einkaaðilum og þá hverjum. Þess utan er álagning sennilega frjáls og er hægt að okra eins og enginn sé morgundagurinn.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á smáfarartækjum og deilibílum í Reykjavík:

Rafhlaupahjól eða öllu heldur rafskreppur eins og betra er að kalla þessi farartæki hafa verið bannaðar í sumum borgum t.d. París. Þar sem rafskreppur eru leyfðar verður að vera meira regluverk í kringum þær og skoða af alvöru að setja aldurstakmark á þær t.d. að fólki yngra en 18 ára verði óheimilt að fara um á rafhlaupahjólum, nái þau meira en 25 kílómetra hraða. Leigurnar þyrftu sjálfar að beita sér og að ýta við löggjafanum til að fá betra regluverk í kringum skreppurnar og að sett verði á aldurstakmark. Vandamálið er ekki síst að skreppurnar er skildar eftir á gangstéttum miðjum, hjólastígum í andstöðu við lögin. Þetta eru regluleg og ítrekuð tilfelli og kerfisbundið ástand. Slys eru tíð. Fjórðungur allra alvarlegra slysa í umferðinni verða á skreppum. Fram hefur komið í fréttum að Endurhæfingardeild Grensáss tekur á móti alvarlegustu tilfellunum; fólki með mænu- og heilaskaða og sumir ná sér aldrei til fulls. Á sama tíma og innreið rafskreppa markaði ákveðna byltingu í samgöngum fór hópur þeirra sem slasast alvarlega í umferðinni að taka miklum breytingum. Fyrstu slysin á skreppum voru skráð árið 2020 og hlutdeild þeirra í slysatölum hefur vaxið hratt. Faraldur rafhlaupahjóla slysa er staðreynd og sem nálgast tuginn á hverjum sólarhring.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á minnisblaði Eflu, dags. 27. júní 2024, um tillögur til að efla deilibíla í Reykjavík:

Í gögnum málsins er lýst hversu erfitt er að innleiða deilibíla og mun það krefjast mikils stuðnings í styrkjaformi til að eitthvað gangi s.s. að þær bifreiðar sem ganga fyrir rafmagni eða öðrum hreinum orkugjafa séu undanþegnar bílastæðagjaldi o.s.frv. Mikið þarf að koma til ef deilibílakerfi á að virka hér í Reykjavík og velta má því upp að mati Flokks fólksins hvort það sé þess virði. Verið að að leggja til hér að borgað sé umtalsvert með þessu kerfi og að styrkupphæð á hvern deilibíl verði allt að 50.000 kr. á mánuði, þó aldrei meira en 500.000 kr. á 12 mánaða tímabili. Það er þess vegna mat Flokks fólksins að það sé varla hægt að reikna með slíku kerfi á næstunni og spurning hvort það sé jafnvel verjandi ef greiða þarf svo mikið með kerfinu. Í Berlín búa um 3,5 milljónir. Þar eru 2000 deilibílar. Með sama árangri gætu verið um 80 deilibílar í Reykjavík og varla telst það vera bylting í umferðarmálum borgarbúa í ljósi þess að bílum er að fjölga hratt, eða um 60 á viku.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:   Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um vinnu að stefnu um tjarnir í Reykjavík, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 24. apríl 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. september 2024.

Vísað inn í endurskoðun stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika sem hefst árið 2025. USK24040280

Flokkur fólksins lagði til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að láta vinna stefnu um tjarnir Reykjavíkur. Lagt var til að skipa starfshóp sem vinnur að stefnumörkun þar sem m.a. verður fjallað um hreinsun og þrif tjarna og hvernig búa megi fuglum öryggi og frið frá köttum t.d. með gerð hólma í tjörnum. Í umsögn um tillöguna er talað um aðra stefnu, stefnu um líffræðilega fjölbreytni og í aðgerðaáætlun með þeirri stefnu sé m.a. fjallað um settjarnir og aðrar ofanvatnslausnir. Segir í umsögn að þau atriði sem hér eru nefnd hjá fulltrúa Flokks fólksins, umhirða í kringum tjarnir og gerð hólma eigi vel heima í aðgerðaráætluninni og ætti því að vísa henni inn í vinnu við endurskoðun stefnunnar og aðgerðaáætlunarinnar. Sú finna mun hefjast á árinu 2025. Með þessu telur fulltrúi Flokks fólksins að verið sé að drepa málinu á dreif og tefja. Það er aðallega tvennt sem borgarfulltrúi Flokks fólksins telur að leggja þurfi áherslu á og það er umhirða í kringum tjarnir annars vegar og gerð hólma í tjörnum til að mynda friðland fyrir fugla hins vegar. Í þeim fjölmörgu litlu tjörnum sem eru til og stendur til að gera mætti vel byggja hólma með litlum tilkostnaði.

 

Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um samantekt upplýsinga um bílakjallara og bílastæðahús í Reykjavík, sbr. 26. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 2. október 2024. USK24100018

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.

 

Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að byggja skuli bráðabirgða göngubrú yfir Sæbraut, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 2. október 2024. USK24100017

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fækkun bílastæða fyrir fatlað fólk, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 2. október 2024. USK24100019

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.

 

Nýtt mál 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um fundinn í Grafarvogi 7. okt.

Eftir íbúafundinn í Grafarvogi 7. október sl. höfðu verið sett upp plaköt, uppdrættir og myndir sem nú hefur verið rifið niður. Margir áttu eftir að skoða þetta betur. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga frá skipulagsyfirvöldum hvort vitað sé hverjir tóku þetta niður? Voru það skipulagsyfirvöld sjálf? Stendur til að setja þessa kynningu (bása) upp aftur? Eðlilegast væri að kynning væri uppi jafnlengi og umsagnarfresturinn í skipulagsgátt. USK24100107