Með frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi sem var lögfest á þriðjudag er stigið mikilvægt skref til að styðja fjölskyldur í erfiðum aðstæðum. Ég vil hér víkja að þætti sorgarleyfisins samkvæmt lögunum sem tekur til foreldra sem missa barn, meðal annars við andvana fæðingu eða fósturlát.
Með nýju lögunum stækkar sá hópur sem fær stuðning þegar harmur steðjar verulega að. Þá tryggja lögin einnig foreldri sem missir maka allt að sex mánaða sorgarleyfi. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir barnafjölskyldur, enda getur foreldri þurft mikinn tíma og rými til að styðja barnið sitt og vinna úr eigin sorg.
Nýju lögin kveða einnig á um lengingu á leyfi eftir andvana fæðingu í sex mánuði, og eftir fósturlát lengist leyfið í þrjá mánuði. Þessar breytingar endurspegla aukinn skilning á því hversu mikil áhrif það hefur á foreldra að missa barn, bæði líkamlega og andlega.
Sorgin tekur yfir
Fráfall barns tekur alfarið yfir hugarheim og veruleika foreldra og annarra aðstandenda. Sorgin getur verið svo djúpstæð að einstaklingurinn sem syrgir er ófær um að taka ákvarðanir og gera áætlanir. Í sorgarferli getur verið ótrúlega erfitt að gera einföldustu hluti. Tíminn er sagður lækna sár en tíminn getur aldrei læknað öll sár. Tíminn mildar vissulega sársauka. Því lengra sem líður frá áfallinu er stingur sársaukans kannski ekki eins snarpur og fyrr en sársaukinn er engu að síður til staðar. Ekki er hægt að reka á eftir sorgarferli, sorgin verður ekki „drifin af“. Þess vegna skiptir svo miklu máli fyrst eftir missi að syrgjendur fái tíma og næði til að vera í sorginni á sínum forsendum og með sínum nánustu.
Samfélagið þarf að vera vinur
Samfélagið þarf að standa að baki einstaklingunum sem glíma við sorg og missi. Það er sýnt með þessari lagasetningu. Nú erum við, ríkisstjórnin og þeir flokkar sem standa að baki henni, eins og vinurinn góði; sem sýnir skilning, þolinmæði og veit að það er engin ein rétt leið við að syrgja.
Við viljum taka utan um alla þá sem eru í þessum erfiðu sporum. Þessi nýju lög að frumkvæði félags- og húsnæðismálaráðherra, Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar er mikilvægt skref. Með því eru samkenndin, manneskjan og mennskan í fyrirrúmi. Allir geta lent einhver tíma í þessum sporum. Andlát, missir gera oft ekki nein boð á undan sér eins og við vitum öll.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins
Birt í Morgunblaðinu 17. desember 2025