Tilkoma hins stafræna heims hefur leitt til margra nýunga og kannski meiri samfélagsbreytinga en við áttum okkur á.
Tæknin hefur óumdeilanlega haft jákvæð áhrif. Þar má helst nefna styttri boðleiðir, aukið og einfaldað aðgengi að upplýsingum og fræðslu, einföldun þjónustu og aukin samskipti án tillits til gæða samskiptanna.
Þegar horft er til breytinga á samskiptum má segja að heimurinn hafi hreinlega skroppið saman. Bréfleg skilaboð sem áður fóru milli manna tóku oft óratíma að berast með hestum, bifreiðum, skipum og síðar flugi. Í dag berast samskipti á sekúndubroti heimshornanna á milli og ekkert þykir sjálfsagðara en að eiga lifandi myndræn samskipti í rauntíma.
Neikvæð áhrif netsins
Neikvæð áhrif netsins eru að sama skapi óumdeilanleg. Börn og margir fullorðnir eru berskjölduð gagnvart skaðlegu efni, áreiti, áreitni og ofbeldi. Sem betur fer hefur fólk einnig lært að varast eða bregðast við þessum neikvæðu hliðum. Fólk sem komið er til vits og ára og hefur jafnframt fengið viðeigandi fræðslu veit hvað ber að forðast.
Þetta er þó hvergi nærri skothelt því blekkingar á netinu þróast hratt. Svikarar og glæpamenn villa á sér heimildir, þróa sífellt meira sannfærandi tilboð um gæfu, gull og gott gengi allt eftir því hver ásetningur viðkomandi geranda er.
Netið er orðið helsti vettvangur skipulagðrar glæpastarfsemi og næsta víst að þar sjáum við aðeins toppinn á ísjakanum. Hið stafræna umhverfi veitir glæpahópum háþróuð verkfæri til að stunda ólöglega starfsemi. Netið er notað til sölu og smygls á fíkniefnum, peningaþvættis, vopnasölu, skipulagðrar hryðjuverkastarfsemi, mansals, kynferðisglæpa og alls konar svika og svindls, efnahagsbrota og skemmdar- og umhverfisbrota.
Stórtækir glæpahópar nýta sér viðkvæma einstaklinga í gegnum netið. Samfélagsmiðlar þjóna sem samhæfingarmiðstöðvar til að laða börn og fullorðna að ýmsu vafasömu atferli.
Það allra versta á netinu er misnotkun á börnum.
Á öllum tímum hafa skipulagðir glæpahópar notað fjölbreyttar leiðir til að komast í tæri við ungmenni undir alls konar yfirskini. Fréttir berast af því að glæpahópar noti tölvuleiki og samfélagsmiðla í vaxandi mæli til að fá börn og ungmenni til að fremja glæpi. Glæpamenn nálgast börnin á spjallsíðum og bjóða þeim peninga fyrir að fremja skemmdarverk og jafnvel morð.
Dæmi eru um að börn allt niður í 9 ára eru fengin til að senda upptökur af sjálfum sér að skaða sig og þau jafnvel hvött til að svipta sig lífi. Framkvæmdarstjóri Europol hefur ítrekað tjáð sig um þessi mál í fjölmiðlum. Til að ná að uppræta þennan óhugnað sé nauðsynlegt að byggja upp traust og samvinnu milli þjóða.
Samskipti við foreldra sterkasta forvörnin
Margt þarf að koma til í fræðslu og forvörnum en umfram allt er mikilvægast að foreldrar og forráðamenn barna séu meðvitaðir um hætturnar. Þau fylgist grannt með því sem börnin aðhafast á netinu. Foreldrar eru í lang sterkustu stöðunni til að fylgjast með við hverja barnið hefur samskipti.
Foreldrar eru einnig í bestu aðstöðunni til að ræða þessi mál við börn sín, fræða þau og upplýsa. Tryggasta leiðin er að vera í þéttu og góðu sambandi við börnin. Eiga traust þeirra til að tala um allt milli himins og jarðar. Góð tengsl foreldra barna er besta forvörnin gegn allri vá sem herja kann á barnið. Það er því mjög mikilvægt að rækta jákvæðar samskiptaleiðir og vera ávallt tilbúin að hlusta án þess að dæma.
Allsherjarnefnd heimsótti Europol og Eurojust
Fulltrúar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis eru nýkomnir úr heimsókn til Haag í Hollandi þar sem hún heimsótti Europol og Eurojust.
Europol þjónar sem samhæfingarmiðstöð í upplýsingaöflun og stuðningi við aðildarríki Evrópusambandsins og fleiri ríki þeirra á meðal Ísland og
Erurojust var stofnað til að bæta meðferð alvarlegra landamærabrota og skipulagðra glæpa.
Íslendingar hluti af stærra samstarfi
Vaxandi skipulögð glæpastarfsemi á netinu krefst nýstárlegra rannsóknaraðferða og alþjóðlegs samstarfs. Engin þjóð er laus við glæpi á netinu. Sú vinna sem fram fer hjá Europol og Eurojust er ómetanleg. Þar er vettvangur til að safna upplýsingum víðs vegar að og deila þeim og dreifa til samstarfslanda.
Íslendingar eru lánsamir að vera hluti af þessu samstarfi. Þar erum við ekki aðeins þiggjendur heldur leggjum við einnig okkar að mörkum. Mörg dæmi eru um að upplýsingar frá Íslandi hafi lagt lóð á vogarskálar við að uppræta glæpi í öðrum löndum. Til að vera fullgildur aðili að þessu mikilvæga samstarfi Evrópusamstarfsríkjanna og njóta alls þess sem það hefur að bjóða þurfa ríki að vera aðilar að ESB. Þar sem Ísland er ekki fullgildur aðili að ESB höfum við ekki beinan aðgang að gagnagrunni Europol.
Glæpum og glæpasamtökum á netinu á eftir að fjölga og glæpasamtök sem fyrir eru eiga eftir að eflast ef ekki er spornað skipulega við þeim af afli. Það verður aðeins gert með því að efla enn frekar samstarf og upplýsingagjöf lögregluembætta í Evrópu. Í þessari baráttu vill enginn vera einn og einangraður.
Birt í Morgunblaðinu 21. janúar 2026