Frú forseti
Það er ánægjulegt að Ljósið fær bráðlega stærra húsnæði við Gylfaflöt í Grafarvogi. Samtökin geta þar með stórbætt þjónustu sína fyrir fólk sem greinast með krabbamein. Starfsemin verður flutt formlega í sumar. Þessar bættu aðstæður eru miklar gleðifréttir enda hefur Ljósið hjálpað fjölmörgum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Á tuttugu árum hefur skjólstæðingum Ljóssins fjölgað úr tvö hundruð í fimmtán hundruð á ári. Nýtt húsnæði er 1.300 fermetrar með möguleikum á stækkun upp í 1.700 fermetra í framtíðinni.
Frú forseti, ég vísa hér í frétt af visi.is þar sem segir
„Ljósið er 360 gráðu heildræn endurhæfing fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein. Fólk kemur í Ljósið í persónuleg viðtöl, í fjölskylduviðtöl, til að sækja ýmsa fræðslu og námskeið. Þau koma í handverk, í tækjaþjálfun, hóptímaþjálfun og í gönguhópa. Þarna er unnið fjölbreytt og mikið starf, bæði fyrir þá sem greinast og eins fyrir aðstandendur þeirra líka.“
Við erum svo gæfusöm að hafa heilbrigðisráðherra sem er sérfræðingur í málaflokknum, fyrrverandi Landlæknir, með langa og djúpstæða reynslu. Það skiptir sköpum að ráðherra skuli vera sérfræðingur í þeim málaflokki sem hann fer fyrir. Heilbrigðisráðherra þekkir hvern krók og kima heilbrigðiskerfisins og nýtir sérfræðiþekkingu sína og reynslu þegar hún tekur ákvarðanir.
Hér er að raungerast eitt af fjölmörgum verkefnum ríkisstjórnarinnar. Á þeim stutta tíma sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið við stjórnvöldin hafa fjölmargar breytingar átt sér stað, lagfæringar og betrumbætur ýmist með lagasetningu eða reglugerðarbreytingum. En það gefur augaleið að ríkisstjórnin er rétt að byrja, enda einungis fjórðungur liðinn af kjörtímabilinu.