Forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir andsvar sitt. Nú vorum við hv. þingmaður í sömu nefndinni. Við höfum bæði fengið nákvæmlega sömu upplýsingar, við hlustuðum á sömu gestina, lásum sömu minnisblöðin og veltum vöngum yfir nákvæmlega sömu hlutunum. Þetta var eitt af þeim atriðum sem voru mjög mikið rædd í nefndinni. Því er enginn nýr sannleikur sem hefur skapast í þessum sal frá því að við hv. þm. Jón Pétur Zimsen sátum á fundum nefndarinnar. Nákvæmlega þetta var ég að lesa og vil ég benda á nefndarálitið þar sem nákvæmlega er farið í þetta. Við vorum að ræða nákvæmlega þetta: Getur einmitt foreldri bara fengið að sjá prófin? En nú er verið að tala um prófabanka. Þetta er flókið, þarna á eftir að rótera spurningum og rótera prófum en það liggur fyrir að ef leggja á sama próf fyrir aftur í óbreyttri eða nær óbreyttri mynd þá mun prófið ekki vera sýnt einhverjum foreldrum. Það þýðir ekki að foreldri geti ekki fengið að sjá einstaka niðurstöður úr spurningum sem barn svarar og niðurstöður úr mati. Það verða náttúrlega mjög skýrar niðurstöður sem munu koma úr þessu mati þó svo að viðkomandi fái ekki að sjá sjálft prófið. Alltaf munu vera meðaltöl til hliðar þannig að foreldri mun geta fengið að sjá hvar barnið sitt stendur í ólíkum greinum.
Ég vil aðeins koma inn á að Matsferill er ekki lausn á skóla án aðgreiningar. Skóli án aðgreiningar hefur verið gagnrýndur heilmikið vegna þess að hann, sem á að mæta þörfum allra barna, hefur ekki getað gert það vegna þess að hann hefur ekki haft tækin, ekki mannskapinn til að geta sinnt ólíkum þörfum barna. (Forseti hringir.) En núna með þessu tæki verður hægt að meta öll börn vegna þess að fjölbreytnin í matstækjunum er mikil.
Andsvar og svör
Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég skil þetta þannig, og þetta höfum við ítrekað átt umræðu um, að það sé fjöldinn allur af prófum, banki spurninga og prófa. Ef maður ímyndar sér lottó þá skoppa kúlurnar þarna um. Þarna er ákveðin rótering í gangi og ég sé því ekki fyrir mér að hér sé eitt próf nákvæmlega svona sem verði lagt fyrir nákvæmlega þannig ári seinna eða þremur árum seinna. Nei, ég held að þarna sé verið að tala um aðra hluti, eitthvað sem við höfum einmitt ekki séð áður. Það er verið að rótera spurningum, spurningaflóði, og prófum. Þetta er eitthvað sem við munum aldrei vera með nefið ofan í til að skoða nákvæmlega hvernig fer fram en þetta er kerfi sem er gjörólíkt því sem hefur verið þar sem eitthvert eitt próf, sem er nákvæmlega eins, er lagt fyrir ár eftir ár. Það er kannski þess vegna sem við erum búin að kalla eftir minnisblaði um nákvæmlega þetta atriði frá ráðuneytinu sem hefur skýrt þetta ótrúlega vel. Það verða því ekki þessar hefðbundnu prófsýningar eins og var á árum áður, þar sem hægt var að koma og fá að sjá prófið. Það verður ekki þannig. En í svari frá ráðuneytinu kom fram að foreldri getur ef það vill séð svör við einstökum spurningum barns og að sjálfsögðu niðurstöður, og ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu. En það er ekki prófsýning í þessum hefðbundna gamla skilningi þar sem maður gat fengið að sjá prófið því að mögulega munu spurningar úr prófinu vera lagðar fyrir aftur.
Andsvar
Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ræðuna sem við höfum alveg heyrt nokkrum sinnum áður. Ég er að reyna að ímynda mér framhaldið eftir nokkur ár þegar allt þetta hefur klúðrast. Þá getur hv. þingmaður sagt: Já, ég varaði þau við. Það er þá alla vega jákvætt, þá erum það við hin sem sitjum í skítnum, með leyfi forseta. En ástandið er ekki gott. Nei, það hefur sko ekki verið gott og hefur verið að fara versnandi eins og við sjáum í niðurstöðum PISA. En Matsferillinn er ekki einu sinni kominn á. Og þegar samræmdu prófin voru og hétu voru tölur líka á leiðinni niður, alltaf verri og verri PISA-niðurstöður. Þá var ekki hægt að kenna Matsferlinum um, hann var ekki kominn á. Hann er að komast á núna. Allt þetta slæma ástand og læsisvandinn og allt hefur í langan tíma farið versnandi með ári hverju þrátt fyrir að þetta hræðilega tæki, Matsferill, hafi ekki verið komið á.
Það sem hv. þingmaður vill er bara að fá gömlu samræmdu prófin nákvæmlega í þeirri mynd sem þau voru. Í raun er hv. þingmaður að kalla á það. Bara í 10. bekk, sami dagur, allt samræmt aftur nákvæmlega eins og það var. En þetta frumvarp er ekki þannig frumvarp, það er bara með allt öðruvísi tilgang. Þetta er allt annars eðlis. Ég vil bara aftur lesa það sem ég las hér áðan, ef það skyldi ekki hafa skilað sér. Hér stendur: „… stöðu- og framvindupróf Matsferils verða útfærð þannig að um verður að ræða „banka“ af spurningum þar sem allar spurningar eru notaðar en ekki öll börn fá sama próf.“ Þannig gengur þetta, spurningarnar, prófin, en það verða ekki sömu börnin sem fá sama próf. Það er ekki rétt, það er ekki hægt að segja að þetta nákvæmlega sama próf verði lagt fyrir aftur. (Forseti hringir.) Þetta er misskilningur hjá hv. þingmanni. Já, þess vegna verður ekki hægt að fá að sjá prófið. Ég ætla bara rétt að fá að segja: Líkt og fram hefur komið munu börn og foreldrar geta fengið aðgang að spurningum og (Forseti hringir.) svörum viðkomandi barns í prófi sem það þreytti. Þetta liggur alveg ljóst fyrir. (Forseti hringir.) En já glugginn, það kemur í næsta andsvari.