Fjármálalæsi verði skyldufag í aðalnámskrá

Ungmenni hafa kallað eftir kennslu í fjármálalæsi. Sum ungmenni fá slíka kennslu en önnur ekki. Það er því allur gangur er á því hvort fjármálalæsi er kennt í grunnskólum landsins. Það er undir hverjum skóla komið og fyrirkomulag kennslunnar fer eftir áhuga kennara og skólastjórnenda. Sumir skólar eru með fagið sem skyldu, aðrir sem valfag eða hreinlega kenna það ekki.

Það er brýnt að samræma kennslu í fjármálalæsi og gera það að skyldufagi í öllum skólum. Sem betur fer fræða margir foreldrar börn sín um fjármál en aðrir foreldrar gera það ekki.  Til að tryggja jafnræði nemenda þarf því að gera fagið að skyldu.

Hvers vegna þetta er mikilvægt

Börn sem læra að fara með fjármuni og um helstu lögmála peninga átta sig fyrr en önnur að fjármunir eru ekki ótakmarkaðir og það þarf að vinna fyrir þeim.  Fræðsla á þessum sviðum auðveldar börnum og ungmennum að taka ábyrgð á eigin fjármálum þegar þar að kemur. Kennir þeim að greina á milli langana annars vegar og nauðsynja og þarfa hins vegar.

Ungmenni þurfa eins og fullorðnir til dæmis að vita að það fylgir því ábyrgð að taka lán. Lán hverfa ekki af sjálfu sér og það kemur að skuldadögum. Skuldahali sem verður til snemma á ævinni getur fylgt fólki út ævina. Reynst fólki stór og íþyngjandi baggi.

Það er rétt að upplýsa ungmenni um að skuldaklafi setur lífi fólks skorður og oft óyfirstíganlegar hindranir. Til að mynda þegar stendur til að fjárfesta í fasteign, bíl eða öðrum dýrum eignum. Með því að fræða börn um sparnað, vexti og útgjöld má draga úr líkum á að þau lendi í skuldagildru síðar meir. Með fræðslu um sparnað lærir fólk að stundum þarf að bíða og forgangsraða.

Börnin eru áhugasöm

Í könnunum meðal annars frá Gallup hefur yfirgnæfandi meirihluti barna sagt vilja læra meira um fjármál í grunnskóla. Einungis tíu prósent segjast hafa lært um fjármál á þeim vettvangi. Skólarnir eru aftur á móti tilvalinn vettvangur til að kenna fjármálalæsi og liður í að jafna tækifæri ungmenna þegar þau verða eldri.

Kennsla í fjármálalæsi er þess vegna réttlætismál. Engin ætti að halda út í lífið án grundvallar þekkingar á fjármálum. Það er aðeins hagur barnanna til framtíðar heldur hagur okkar allra.

Kolbrún Baldursdóttir
þingmaður Flokks fólksins

Birt í Morgunblaðinu 12.3. 2026