Fullgilding á bókun um breytingu á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Chile.

Fullgilding á bókun um breytingu á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Chile.

  1. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil bara fá að taka undir áðurnefndan fögnuð sem hér hefur komið fram með fullgildingu þessara tveggja samninga. Hér er allt á réttri leið og sérstaklega ánægjulegt að sjá þessa uppfærslu og nútímavæðingu eins og finna má víða í þessum samningum. Mig langar sérstaklega til að taka fram hér það sem stendur í V. kafla A, en þar er fjallað um lítil og meðalstór fyrirtæki og segir, með leyfi forseta:

„Samningsaðilar skuldbinda sig til að tryggja litlum og meðalstórum fyrirtækjum aðgang að upplýsingum og stuðla að því að þau njóti ávinnings af samningnum.“

Þess ber að geta að þetta er í fyrsta skipti sem slíkur kafli er settur inn í fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna. Þetta er mikilvægt, og allar svona nýjungar sem eru betur í takt við nútímasamfélag eru til bóta, og þarf að skoðast auðvitað í þeim samningum sem e.t.v. eiga eftir að f