Kvenbúningsklefar Sundhallarinnar hönnunarmistök?

Fjöldi kvensundgesta hefur tjáð óánægju sína með fyrirkomulag búningsklefa í Sundhöll Reykjavíkur eftir endurgerð Sundhallarinnar. Við endurgerðina var nýr kvennaklefi byggður vegna þess að sá eldri þótti ekki viðunandi. Mörgum kvengestum Sundhallarinnar finnst staðsetning nýrra búningsklefa bagaleg þar sem ganga þarf frá klefum þó nokkurn spöl utandyra til að komast inn í sjálfa Sundhöllina. Karlar hafa nú fengið gömlu klefana sína aftur endurgerða. Endurgerð gömlu kvennaklefanna hefur tafist en þeim átti að ljúka á síðasta ári. Þegar endurgerð lýkur verða þeir aðeins notaðir til vara t.d. þegar aðsókn er mikil. Það eru ekki allir sáttir við þessa ákvörðun borgaryfirvalda. Kvenfólki er ætlað að ganga drjúgan spöl á blautum sundfötum til að komast frá klefa í innilaug. Hér er um lýðheilsumál að ræða enda oft slæmt veður. Kvartanir eru einnig vegna þrengsla á nýju sturtusvæði kvenna og að sturtur séu allt of fáar miðað við skápafjölda.

Sjá má tugi ábendinga og kvartana í þjónustukönnun Maskínu á tímabilinu nóvember 2018 – janúar 2019. Hér er brot af þeim sem er m.a. ástæða þess að fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir að mannréttinda-, lýðræðis- og nýsköpunarráð skoðaði málið út frá jafnréttis- og aðgengisreglum borgarinnar:

· Er óánægð með aðstöðuna í kvennaklefanum, allt of fáar sturtur og vantar meira eftirlit og aðhald við erlenda ferðamenn sem nota sundlaugarnar þ.e. að sjá til þess að þeir fari í sturtu fyrir sundferðina.

· Aðgengi að innilaug sundhallarinnar fyrir kvenfólk er fáránleg og búningsklefar/skápar mættu vera fleiri. Vona að þetta verði lagað.

· Fjölga sturtum í nýrri aðstöðu kvenna í Sundhöllinni. 7 sturtur fyrir 100 skápa er mjög lítið.

· Nú þarf að fara frá innilaug, yfir útisvæði og inn í kvennaklefann, þetta er alltof löng leið fyrir litlar stelpur og margar fullorðnar konur.

· Fleiri sturtur i kvennaklefanum í sundhöllinni.

· Kvennabúningsklefinn í Sundhöllinni er of lítill.

· Glötuð tenging með ömurlegum stiga milli gömlu og nýju.

· Opna gömlu búningsklefana fyrir konur.

· Of fáir klefar.

· Búningsaðstaða kvenna mjög léleg. Allt of fáar sturtur.

· Opna gamla kvennaklefann í sundhöllinni aftur. Það er allt of þröngt niðri og veitir ekki af meira rými, eins er allt of langt að fara með lítil börn úr nýja klefanum og inn í litlu innilaugina. Hálf öfugsnúið að maður þurfi að ganga langa leið úti til að komast í innilaug.

· Sakna gömlu kvennaklefanna, lendi mjög iðulega í biðröð í sturtunni … og svo er bara sjarminn við gömlu klefana svo mikill og gerir upplifunina skemmtilegri fyrir vikið. Líka slæmt að geta ekki farið með börn beint í innilaugina úr kvk klefanum (þ.e. þurfa alltaf að labba út fyrst).

Glímt við meirihlutann

Á fundi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs 12. mars 2020 var tillaga Flokks fólksins lögð fram um að láta fara fram skoðun á því hvort endurgerð á Sundhöll Reykjavíkur sé í samræmi við stefnu borgarinnar í jafnréttis- og aðgengismálum.

Á fundi 14. maí var tillagan lögð fram að nýju og var samþykkt samhljóma að láta fara fram slíka skoðun. Á sama fundi var umsögn mannréttindastjóra lögð fram eins og þá þegar væri búið að gera þá skoðun sem verið var, á þessum fundi, að ákveða að gera.
Í umsögn mannréttindastjóra er birt eftirfarandi niðurstaða:

„Fyrir breytingarnar nutu konur ekki sömu þjónustu og karlar í Sundhöll Reykjavíkur og fatlaðir ekki sömu þjónustu og ófatlaðir. Aðstaða fyrir konur var lélegri en fyrir karla og líkamlega fatlað fólk átti þess ekki kost að fara í laugina. Til að færa þetta til betra horfs þurfti endurbætur og í þær var ráðist samhliða byggingu útisundlaugar. Það er ekki hægt að sjá annað en að Sundhöll Reykjavíkur uppfylli, eftir breytingar, mannréttindastefnu borgarinnar bæði með tilliti til kynjajafnréttis og réttar fatlaðs fólks til þjónustu“.

Lausnin liggur á borðinu

Það er miður að við endurgerð þessa fallega friðlýsta húss hafi ekki verið skoðað nægjanlega vel möguleikar og þarfir allra sundlaugargesta. Innilaug Sundhallarinnar er aðalsmerki Sundhallar Reykjavíkur fyrir sérkenni sín og einstaka kosti og margir sækja Sundhöllina vegna hennar. Vonbrigði eru með staðsetningu nýrra búningsklefa, þrengsl í sturtum kvenna og að sturtur eru of fáar. Svo virðist sem mörgum þyki hin nýja aðstaða hálfu verri en sú eldri sem vissulega var komin til ára sinna. Konur vilja fá að koma aftur í sína gömlu búningsklefa þegar þeir opna að nýju eftir endurgerð.

Það er afar mikilvægt að konur eins og karlar hafi innangengt úr klefum í innilaug til að þær, ungar, aldnar, fatlaðar og ófatlaðar þurfi ekki að ganga utandyra á sundfötunum til að komast í innilaugina. Lausnin er einföld, bjóða á kvenfólki að nota búningsklefa Sundhallarinnar í stað þess að hann verði einungis notaður sem varaklefi þegar aðsókn er mikil. Það er ekkert  sem hindrar það að konur fái aftur aðgang að klefunum. Þessi lausn hefur verið nefnd af sundgestum og einnig heyrst meðal starfsmanna Sundhallarinnar.

Birt í Morgunblaðinu 22. maí 2020