Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 26. september 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Staða hinsegin mála – Samtökin 78:

Kynntar eru niðurstöður Gallup könnunar. Eftir því er tekið að um helmingur tæplega 1800 einstaklinga í úrtakinu vildu ekki svara. Meirihlutinn sem svarar er ánægður með  fræðslu hinsegin málefna í grunnskólum. Fulltrúi Flokks fólksins telur afar mikilvægt að hafa félagsmiðstöðvar opnar á kvöldin og aðgengi að þeim gott. Það var því leitt að tillaga ungmennaráðs Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða var vísað frá af meirihlutanum en hún gekk út á að tryggt verði nægilegt fjármagn til að gera starfsemi Hinsegin félagsmiðstöðvar varanlega í stað þess að vera sértækt verkefni.  Ábyrgðinni er vísað á ríkið og önnur sveitarfélög sem er einnig fráleitt. Hér er aðeins verið að tala um að efla starfsemina. Hinsegin félagsmiðstöðin hefur gengið sérlega vel og verið mjög vinsæl. Festa þarf hana í sessi til lengri tíma. Öll óvissa um framhaldið og framtíð félagsmiðstöðvarinnar er óþolandi. Samverustaður fyrir öll ungmenni er gríðarlega mikilvægur. Ungmennin þurfa að geta komið saman á öruggum stað til þess að kynnast og tengjast. Eins og segir í greinargerð með tillögunni er “mikilvægt að þekkja einhvern eins og mann sjálfan til að finna ekki fyrir einmanaleika eins og mörg upplifa og þangað koma margir krakkar í hverri viku.”

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Drög að aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2024 – 2026:

Fyrir liggja drög að aðgerðaráætlun gegn ofbeldi. Fulltrúi Flokks fólksins finnst mikilvægt á þessu stigi að vita hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir eru nú í gangi gegn frekari ofbeldisþróun og hverjar af þeim er talið að hafi skilað árangri og hverjar ekki? Brýnast af öllu nú er að  greiða aðgang foreldra að fagfólki borgarinnar/skólanna. Sálfræðingar þurfa að koma að málum barna og foreldra á fyrri stigum. Kalli foreldrar eftir aðstoð eiga þeir að fá áheyrn strax. Vandinn bíður ekki. Fjölga þarf fræðslunámskeiðum og sérstaklega þeim sem styðja foreldra í foreldrahlutverkinu svo þeir geti stutt börn sín í þeirra daglegu tilveru. . Fræða þarf foreldra um mikilvægi tengslamyndunar og samtala við börn sín. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú á dögum tölvu, síma og samfélagsmiðla. Í framlagðri  aðgerðaráætlun er mikil áhersla á heimilisofbeldi. Enda þótt heimilisofbeldi sé vissulega áhættuþáttur í að barn þrói með sér djúpstæða vanlíðan eru engin línuleg  tengsl milli þess að alast upp við ofbeldi og beita ofbeldi. Orsök fyrir að börn beiti ofbeldi eru flóknari en það.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Samráðsvettvangur um börn og ungmenni í tengslum við ofbeldi. MSS23060018 -Umræða

Fulltrúi Flokks fólksins kallaði eftir því á síðasta fundi að mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð fengi kynningu á Samráðsvettvangi um forvarnir gegn ofbeldi meðal barna og ungmenna. Mannréttinda-og ofbeldisvarnarráð samþykkti á fundi 11. 01 2024 tillögu um að stofna slíkan vettvang. Tillagan var eins konar mótsvar við tillögu Flokks fólksins sem lögð var fram í  upphafi kjörtímabilsins 2022 og var á þá leið að stofnaður skyldi stýrihópur sem myndi kortleggja aukinn vopnaburð meðal ungmenna í Reykjavík og að þau þrjú svið sem koma hvað mest af þjónustu við börn auki sitt samráð. Þá þegar voru ýmis teikn á lofti um aukið ofbeldi meðal barna og ungmenna. Tillagan fékk ekki brautargengi.
Tillaga meirihlutans um samráðsvettvang þvældist hins vegar allt of  lengi um í kerfinu en var loks samþykkt. Þess utan voru efasemdir að svo mannmargur vettvangur myndi ná skilvirkni í vinnu sinni. Það er ekki nóg að bara tala, fara þarf að framkvæma.  Því fannst fulltrúa Flokks fólksins mikilvægt að fá stöðumat frá  þessum samráðsvettvangi. Sjá má glöggt af þeim hræðilegu atburðum sem átt hafa sér stað undanfarið að vinna þarf hratt og markvisst í fyrirbyggjandi aðgerðum gegn ofbeldi ungmenna. Sinna þarf meðal annarra hluta ákalli foreldra strax og berst og fjölga  fræðslunámskeiðum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Forsætisnefnd 15. mars 2024: Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aðgerðir gegn mansali. MSS24030088 – afgreiðsla:

Fulltrúa Flokks fólksins lýst vel á þessa tillögu að settur verði á laggirnar stýrihópur sem skoði leiðir og komi með tillögur til að bregðast við mansali. Það er einnig góð hugmynd að í stýrihópnum verði kjörnir fulltrúar bæði úr minni- og meirihluta

 

Nýtt mál

Tillaga frá Flokki fólksins um að bæta skráningar á ofbeldi sem kennarar verða fyrir af hálfu nemenda

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð samþykki að beina þeim tilmælum til skóla- og frístundaráðs að hefja vinnu við endurskoðun á skráningarferlum  í því skyni að bæta til muna skráningu á  því ofbeldi sem kennarar og aðrir starfsmenn grunnskóla  verða fyrir af hendi nemenda eða annarra sem tengist starfi þeirra. Í endurskoðuninni þarf að skýra verkferla og  bæta tryggingar ef kennarar eða annað starfsfólk skólanna verður fyrir ofbeldi á vinnustað en slíkum tilvikum hefur því miður fjölguð. Á þetta leggja kennarar mikla áherslu.