Frú forseti
Það er nauðsynlegt að vekja athygli á aukinni neyslu barna og ungmenna á orkudrykkjum. Fyrirtæki sem markaðssetja og selja þessa drykki maka krókinn. Samkvæmt nýlegri könnun Prósents styður mikill meirihluti fólks í öllum aldursflokkum og stjórnmálaflokkum að bannað verði að selja börnum og ungmennum undir átján ára aldri orkudrykki
Áttatíu og þrjú prósent þeirra sem tóku afstöðu eru fylgjandi banni, fjögur prósent eru því andvíg og þrettán prósent taka ekki afstöðu.
En hvað eru orkudrykkir?
Orkudrykkir eru hitaeiningarsnauðir drykkir með hlutfallslega miklu koffíni. Flestir innihalda þar að auki önnur virk efni, svo sem ginseng eða útdrætti (e. extract) úr öðrum plöntum.
Auk þess er algengt að þessir drykkir innihaldi mikið magn af vatnsleysanlegu vítamín auk tauríns, inositols og glúkúrono lactons (glucuronolactons), efni sem líkaminn framleiðir og getur því verið varasamt er að neyta í of miklu magni. Þessara drykkja er neytt með það að markmiði að ná fram örvandi áhrifum.
Sumir drykkir með sama vöruheiti fást líka án viðbætts koffíns en innihalda þá oft viðbætt vítamín í miklu magni eða önnur efni sem geta verið skaðleg börnum. Flest þekkjum við áhrif mikils koffíns á líkamann. Koffín í orkudrykkjum er vanabindandi efni sem veldur meðal annars útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Óæskileg áhrif of mikils koffíns er höfuðverkur, svimi, ógleði og kvíði auk þess sem koffín hefur neikvæð áhrif á svefn. Börn og ungmenni eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en fullorðnir og er neysla barna á koffíni því sérstaklega óæskileg.
Hér er á ferðinni hættuleg þróun, sérstaklega með tilliti til mikillar neyslu barna og unglina á þessum drykkjum. Rannsóknir hafa sýnt að líðan barna hefur almennt farið versnandi. Kvíði og vanlíðan ungmenna hefur meðal annars verið rakin til of mikillar skjánotkunar og langs tíma á samfélagsmiðlum. Mikil neysla barna og ungmenna á orkudrykkjum er því síst til þess fallin að bæta líðan þeirra.