Sérstök umræða um geðheilbrigðismál. Innleg KÁB í umræðuna
Forseti.
Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrir að vekja athygli á þessum mikilvægu málum og heilbrigðisráðherra fyrir skýr svör. Málshefjandi, háttvirtur þingmaður Ingibjörg Ísaksen, sat í meirihluta á síðasta kjörtímabili og hennar flokkur um langt árabil. Það er því ekki ósanngjarnt að fullyrða að fyrri ríkisstjórn skilað málaflokknum ekki frá sér í ásættanlegu ástandi eftir sjö ára samfellda stjórnarsetu.
Skortur á samfelldri þjónustu, hvort sem um er að ræða bráðaþjónustu eða langtímaúrræðum, er dýrkeyptur fyrir samfélagið.
Háttvirtur málshefjandi bendir á kerfisbrest í geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa einstaklinga og sú gagnrýni á rétt á sér. Staða fullorðinna einhverfra er ekki ásættanleg og verulegur skortur er á sérhæfðum úrræðum. Ríkisstjórnin hefur nú þegar ákveðið að grípa til aðgerða. Unnið er að því að endurskoða aðgangsskilyrði svo þessi hópur falli ekki milli kerfa.
Heilbrigðisráðherra hefur lagt áherslu á að styrkja þjónustu á öllum stigum og hefur meðal annars sett fram hugmyndir um stofnun Einhverfuseturs í samstarfi við önnur ráðuneyti. Slík uppbygging tekur hins vegar tíma.
Þegar kemur að þessum viðkvæma málaflokki skipta forvarnir og snemmtæk íhlutun lykilmáli. Því fyrr sem gripið er inn í með viðeigandi stuðningi og fræðslu, þeim mun meiri eru líkurnar á betri líðan og virkni til lengri tíma.
Málshefjanda hefur verið tíðrætt um úrræði sem í boði voru hjá Janusi sem nú hefur hætt starfsemi. Fulltrúar í velferðarnefnd heimsóttu nýlega VIRK, sem tók við hluta skjólstæðinga Janusar. Þar kom fram að almennt hafi vel tekist til. Það er þó ljóst að breytingar sem þessar geta verið krefjandi fyrir einstaklinga og mikilvægt að fylgja þeim vel eftir.
Að lokum vil ég þakka málshefjanda aftur fyrir mikilvæga umræðu og heilbrigðisráðherra fyrir skýr og upplýsandi svör.