Störf þingsins – Málefni Úffa og MAST

Frú forseti

Mig langar að gera að umtalsefni fréttir  um hundinn Úlfgrím og eiganda hans, sem MAST hefur krafist að verði  aflífaður vegna þess að hundurinn þjáist sökum þess hvað hann er gamall.  Stofnunin hefur gefið dagsetningu fyrir aflífun Úlfgríms jafnvel þótt  dýralæknar hundsins og umfram allt eigandinn fullyrði að hundurinn eigi enn gæðalíf. Ég hef ásamt fleirum lýst yfir áhyggjum af ýmsum embættisverkum og stjórnvaldsaðgerðum MAST.

Það sem  hefur komið fram í  fréttum vegna Úlfgríms  hefur vissulega að mestu verið frá annarri hlið málsins.  Hins vegar hafa bréf vegna málsins frá MAST verið birt.   Það setur að manni smá hroll að lesa þau bréf. Finnst  harkalega gengið fram og gefin stuttur fyrirvari  í svo afdrifaríka  aðgerð sem aflífun dýrs er.

Vissulega var  eiganda boðinn andmælaréttur en samt er eins og MAST hafi í raun þegar tekið endanlega ákvörðun um að þessum heimilishundi sem vel fer um á heimili eigandans skuli lógað. Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan, reiði og hugarangri. Hér er um að ræða dýr  sem engan hefur skaðað nema síður sé því hann bjargaði eiganda sínum úr eldsvoða fyrir skemmstu.

Eigandinn mótmælir því að Úffi búi við skert lífsgæði. Hann sé vissulega orðinn tíu ára og haldinn slitgigt en sé þó í margs konar meðferð vegna hennar  og stöðugu eftirliti dýralækna. Þá er fyrirhugað að ÚIffi fari að auki í vatnsmeðferð, þar sem hann hreyfir sig í vatni, til að létta enn frekar undir með gigtina. Verið er að bíða.

Úffi er sem sagt bara ósköp venjulegur heimilishundur, sem nýtur þess enn að leika sér að bolta, fer reglulega út að ganga, borðar og hefur eðlilega meltingastarfsemi.

Að lokum vil ég segja að ég tel MAST vinna margt mjög gott  og þakka fyrir að virkt eftirlit sé með dýrum í landinu. En stofnanir verða líka að sýna mannúð og þar má gera betur.  Í  öllum verkum þarf að sýna mennsku og engin regla er án undantekningar.

Ég vona í hjarta mínu að þetta mál og önnur sambærileg fái farsælan endi bæði fyrir eiganda Úffa og hann sjálfan.