Umhverfis- og skipulagsráð 11. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. júlí 2023, þar sem óskað er eftir umsögn um frumgreiningu á mögulegri legu græna stígsins í græna trefli höfuðborgarsvæðisins:

Fram kemur í fyrirliggjandi gögnum að ekki megi malbika á vatnsverndarsvæðum en stígurinn liggur um þau meira og minna. Kannski ætti að skoða þann möguleika meira. Skiljanlega er lagningin sjálf vandamál vegna mengunar sem hún veldur en síðan ekki malbikið sjálft. Spurning er hvort ekki sé hægt að leggja malbik án leysiefna, þeim sem berast út í jarðveginn? Hjólafólki finnst örugglega erfiðara að hjóla á malarstígum en malbikuðum stígum. Það hlýtur að hafa tálmandi áhrif á framkvæmdina ef ekki má malbika stiginn á löngum köflum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram drög að tillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir skotæfingarsvæði Álfsnesi, sbr. 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig er lagt fram minnisblað borgarstjóra um stöðu verkefnis, dags. 29. september 2023 og áfangaskýrsla EFLU um kostamat fyrir mögulegar staðsetningar, dags. 21. júní 2023:

Hvernig sem á þetta mál er litið er ljóst að þetta svæði hentar ekki fyrir þetta sport. Finna þarf svæði þar sem hvorki er byggð né fuglar. Það er í raun skandall að blýhöglum skuli vera skotið yfir fjörusvæði. Fuglar halda að þetta sé sandur og gleypa! Í gögnum kemur fram að enn eru notuð blýhögl og hluti þeirra berst í fjörusvæðið, þar sem fuglar éta þau að einhverju marki. Reykjavík hefur kostað uppbyggingu á skotveiðisvæðinu í Álfsnesi. Í beinni tilvitnun segir að það þurfi að finna efni til að binda mengun. Er hér verið að ýja að því að Reykjavíkurborg eigi að leysa mengunarvandamál vegna blýhagla, og greiða fyrir hana? Hvað sem þessu líður er þetta mikið áfall fyrir landeigendur sem þurfa að lifa með neikvæðum umhverfisáhrifum vegna skotæfinga næstu 5 ár í það minnsta. Búið er að skoða önnur svæði sem framtíðarstaðsetningu og komu nokkur til greina. Hefði ekki mátt skoða eitthvert þeirra til skammtímanotkunar?

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur fyrir gangandi og hjólandi við Elliðabraut, sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 24. maí 2023:

Lagt er til að ráðist verði í eftirfarandi úrbætur sem fyrst í þágu gangandi og hjólandi vegfarenda við Elliðabraut. Í svari kemur fram Norðlingaholtshverfið er eitt af þeim hverfum í Reykjavík sem er enn í uppbyggingu. Fyrirhugað er að gera steypta gangstétt meðfram Elliðabraut nr. 2 – 22. Nú hefur fulltrúi Flokks fólksins þær upplýsingar að það sé ekki skynsamlegt að steypa gangstéttar heldur ætti frekar að malbika þær. Víða eru steyptir kantar illa farnir og stórhættulegir. Viðhaldi hefur þess utan verið ábótavant. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið kvartanir vegna misfellna í steyptum gangstéttum frá fötluðum einstaklingum sem nota hjólastóla eða rafknúin hjálpartæki. Bent hefur verið á sérstaklega slæmar misfellur á gangstéttum austan megin við Kringlumýrarbraut sem dæmi og fleiri dæmi mætti nefna.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga og greinargerð áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um niðurfellingu gjaldtöku í bílastæðahúsum fyrir handhafa stæðiskort hreyfihamlaðra, sbr. 41. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 29. júní 2022. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 5. október 2023.

Því ber að fagna að frá og með 20 mars sl. var ákveðið að falla frá gjaldtöku af handhöfum stæðiskorta í bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar. Það er hins vegar ótækt að núverandi aðgangsbúnaður í bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar býður ekki upp á að handhafar stæðiskorta geti með sjálfvirkum hætti notað bifreiðastæði húsanna án greiðslu en unnið er að útfærslu sem gerir það kleift. Enn verra er að fólk veit ekki um þetta og hefur fulltrúi Flokks fólksins nokkrum sinnum komið að bílstjórum í öngum sínum við að reyna að komast út úr bílastæðakjallara/húsi með sjálfvirkum hætti sem það telur að sé komið í virkni

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um vistlokin, sbr. 49. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 28. júní 2023. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 5. október 2023.

Það var því miður ljóst frá byrjun að það að teikna vistlok yfir veginn til að fegra deiliskipulagið var í raun ekkert annað en yfirvöld að slá ryki í augu íbúa. Ósannindi á ekki að líða. Þeim var ljóst frá byrjun að ekkert fjármagn var til fyrir þessi vistlok og þau því eitthvað sem verður aldrei framkvæmt. Sérstaklega í ljósi þess að kostnaðurinn við að gera þau síðar er örugglega margfalt hærri en að gera þau samhliða vegagerðinni. Ekki var tekið neitt mark á umsögnum íbúa varðandi lagningu 3. kafla Arnarnesvegar og sannar í enn eitt skiptið að samráðsferlið við íbúa er ekkert annað en sýndarlýðræði.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lengd kaflans, 3. áfanga Arnarnesvegar, sbr. 50. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 28. júní 2023. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 5. október 2023

Fulltrúi Flokks fólksins spurði um lengd kaflans, 3. áfanga Arnarnesvegar. Fram kemur í svari að ekki er ljóst hvaðan upplýsingar um að kaflinn sé 1,3 km langur eru upprunar en sé leitað á netinu sést að sú tala kemur fyrir á nokkrum stöðum”. Þetta er athyglisvert og veltir fulltrúi Flokks fólksins því upp hverjir hafa mögulega haft hagsmuni af því að vegurinn sé sagður 1,3 km.

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnaðaráætlun vegna nýrrar stöðvar að Lambhagavegi, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 20. september 2023.

Vísað til umsagnar SORPU bs. USK23090217

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað vegna ferðar Sorpu til Svíþjóðar til að skoða endurvinnslustöð, sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 20. september 2023.

Vísað til umsagnar SORPU bs. USK23090219