Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):
Frú forseti. Ég hef verið að fylgjast með umræðunni eins og allir hér og ég verð að segja að mér finnst umræðan engan veginn hafa verið málefnaleg. Hún hefur einmitt þvert á móti oft verið yfirgengilega barnaleg ef eitthvað er. Hér er búið að vera inn á milli mikill hræðsluáróður um að það muni hreinlega allt fara til fjandans. Ef þjóðin fær ögn stærri sneið af sinni eigin eign, hagnað af sinni eigin eign, þá muni allt fara til fjandans. Svo inn á milli er sagt að stórútgerðin hafi alveg efni á þessu en þurfi að hagræða. Auðvitað þarf stórútgerðin ekkert að hagræða frekar en hún vill en auðvitað er alltaf gott að hagræða. Þarna er um botnlausan hagnað að ræða hjá þessum stærstu útgerðum. Það er verið að biðja um ögn stærri sneið af hagnaðinum fyrir þjóðina og þá ætlar allt vitlaust að verða og búið að hræða fólk, hræða alla. Það er verið að reyna að ná til fólks og hræða það með því að nú fari allt til fjandans, að útgerðin leggi upp laupana, þurfi að flytja erlendis með fyrirtækin o.s.frv. Þetta er náttúrlega engan veginn trúverðugt. Það hlýtur hv. þm. Vilhjálmur Árnason að sjá eða hvað?
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég ætla nú að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það getur vel verið að það sé þá einmitt byrjað að hagræða og kannski er það bara gott. Kannski þurfti að hagræða eitthvað og það er öllum hollt að gera það. En það er mjög ótrúverðugt að útgerðin sé á leiðinni að leggja upp laupana vegna þessa máls. Ég trúi ekki að hv. þm. Vilhjálmur Árnason haldi raunverulega að hann geti selt þjóðinni þessar upplýsingar bara svona hrátt, að það sé bókstaflega allt að fara til fjandans. Það er með ólíkindum hversu öfgafullt er talað um þessi mál hér. Það er talað um að hér sé um álögur og skatta að ræða þegar við erum í raun að tala um að hækka gjaldið af auðlindinni. Það er talað um að frítekjumarkið sé afsláttur. Það er einhvern veginn snúið út úr öllu til að láta þetta líta sem verst út. En það eru, held ég, bara mjög fáir að kaupa þennan málflutning. Það eru náttúrlega allir, alla vega flestir, búnir að sjá í gegnum þetta og það er ástæðan fyrir því að svo margir standa að baki þessu frumvarpi og hafa í raun beðið lengi eftir að sjá það líta dagsins ljós.