Velferðarráð 6. desember 2023

Bókun Flokks fólksins við kynningu á niðurstöðum könnunar meðal NPA-notenda
Til kynningar er könnun sem var gerð meðal NPA notenda í Reykjavík til að heyra upplifun notenda af þjónustunni. Það er ánægjulegt að sjá að 83% notenda segja stuðninginn alltaf eða oftast mæta þörfum sínum og 95% notenda geta alltaf eða oftast sinnt áhugamálum og gert það sem þau vilja, þegar þau vilja. Þessar niðurstöður og fleiri umsagnir notenda sýna fram á að NPA hafi haft mikil og jákvæð áhrif á lífsgæði þátttakenda. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá að allir þátttakendur sögðu aðstoðarfólk almennt koma fram við sig af virðingu og allir sögðust treysta aðstoðarfólki sínu. Niðurstöður þessarar könnunar sýnir svo um munar hvað NPA er mikilvæg þjónusta og telur fulltrúi Flokks fólksins að Reykjavíkurborg ætti að leggja ríka áherslu á að fjölga slíkum samningum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum umsögn velferðarráðs um stafræna stefnu Reykjavíkurborgar
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar umsögn velferðarsviðs um stafræna stefnu Reykjavíkurborgar en í henni koma fram nákvæmlega sömu ábendingar sem fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bent á. Velferðarsvið bendir á að ef þessum atriðum verði bætt í stefnuna þá myndi það gera hana öflugri. Í fyrsta er lagt til að í stefnunni sé tiltekið að við þróun, kaup og innleiðingu á hugbúnaði og kerfum sé nýtt þétt verkefna- og vörustjórnun til að gæta ýtrasta aðhalds til að tryggja að kostnaðaráætlun og tímaáætlun og séu í takti við raunveruleikann. Lagt er til að skýrt sé í stefnunni að ef þörf er á nýju kerfi sé nýting tilbúinna lausna fyrsti valkostur, nýting aðlaganlegra lausna sá næsti og sérsmíði sé síðasti valkostur. Þá er lögð áhersla á að í stefnunni sé það forgangsmál að uppbygging kerfa sé hagað í samvinnu við önnur íslensk sveitarfélög þar sem samrekstur kerfa er ákjósanlegasta form samvinnu og innkaup og þróun kerfa þar á eftir. Eins er bent á að við ættum að nýta reynslu og lausnir sveitarfélaga utan landsteinana. Þessi atriði sem velferðarsvið bendir á eru einmitt ábendingar sem Fulltrúi flokks fólksins hefur bent á og bókað um margsinnis. Vonandi verður hlustað á þessar ábendingar velferðarsviðs

 

Bókun Flokks fólksins við kynningu á ársskýrslu velferðarsviðs 2022.
Ársskýrsla velferðarsviðs 2022 lögð fram til kynningar. Í skýrslunni eru margar athyglisverðar upplýsingar og þar sést hvað starfið á velferðarsviði er umfangsmikið. Upplýsingar um helstu ástæður tilvísana til skólaþjónustu vöktu athygli fulltrúa Flokks fólksins. Þar er mesta aukningin í tilfinningalegum erfiðleikum en þar hefur tilvísunum fjölgað úr 456 árið 2021 í 611 árið 2022. Þetta er þróun sem þarf að rýna og taka alvarlega. Í skýrslunni kemur glögglega í ljós hvað gestum í gistiskýlum hefur fjölgað mikið. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sérstakt áhyggjuefni að sjá hvað biðlisti eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði lengdist milli ára en þar var um 50% aukning. Biðlistinn var 531 við árslok 2021 en var kominn í 797 í árslok 2022.

 

Bókun Flokks fólksins við kynningu á ársskýrsla heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar 2022.
Í skýrslunni eru nokkrar athyglisverðar upplýsingar. Konur eru í miklum meirihluta notenda heimahjúkrunar. Einnig má sjá talsverða fjölgun notenda frá 2016 sem segir okkur að fólk er að lifa lengur. Um er að ræða samþætta þjónustu. Niðurstaða könnunar frá 2022 um árangur- og gæðamat er áhugaverð. 74% fannst stuðningurinn frá heimahjúkrun nægjanlegur og 67% töldu þann stuðning duga til að geta búið heima. Þetta er ekki fullnægjandi að mati Flokks fólksins og segir okkur að nokkuð stór hópur telur að eitthvað vanti til að bæta líðan sína eða að ekki sé verið að taka tillit til þarfa þeirra. Í þessu sambandi langar fulltrúa Flokks fólksins að nefna tillögur sínar um að skoða hvort ekki þurfi að dýpka suma þjónustuþætti eða fjölga þeim. Minnst hefur verið á aðstoð við verk sem sem kalla á ákveðna hreyfifærni eins og að beygja sig, bogra eða teygja upp hendur.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um rýmkun reglna um ráðningar ættingja sem stuðningsfjölskyldu.
Tillagan er felld með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins. Tillaga Flokks fólksins um rýmkun reglna um ráðningar ættingja sem stuðningsfjölskyldu var lögð fram af ástæðu. Fulltrúi Flokks fólksins telur að það ríki of mikil tortryggni þegar kemur að því að ráða ættingja sem stuðningsfjölskyldur fyrir börn sem þess þurfa og hafa fengið samþykki fyrir slíka þjónustu. Mörg rök hníga að því að með því sé ekki verið að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Fulltrúa Flokks fólksins finnst leiðbeiningar og reglur um ráðningar ættingja sem stuðningsfjölskyldu of strangar og var að vonast til að fleiri væru sömu skoðunar en því miður var tillögunni hafnað. Það getur einmitt verið gríðarlegur kostur að ráða ættingja sem stuðningsforeldri eins og það að barnið þekkir viðkomandi. Það getur veitt mörgum viðkvæmum börnum öryggi. Auk þess er skortur á stuðningsforeldrum og það getur verið erfitt að finna hentuga fjölskyldu. Ef ættingi getur tekið að sér hlutverk stuðningsfjölskyldu þegar slíkar aðstæður eru mætti ætla að það væri betra en að ókunnug fjölskylda annist barnið. Sú staðreynd að ættingjaráðningar eigi aðeins að vera í undantekningum segir allt sem segja þarf um viðhorf velferðaryfirvalda í þessu máli. Það er ekki velferðaryfirvalda að ákveða hvað veitist nánum ættingjum erfitt við að sinna í viðbótarstuðningi. Of mikil forræðishyggja er ekki góð.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um að punktakerfi Reykjavíkurborgar um félagslegt húsnæði verði endurmetið.
Tillagan er felld með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Flokkur fólksins lagði fram tillögur um að um að punktakerfi Reykjavíkurborgar fyrir félagslegt húsnæði verði endurmetið með það í huga að gera það sanngjarnara fyrir einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Flokki fólksins hefur borist ábendingar um að einstaklingum í mjög viðkvæmri stöðu hafi verið hent út af biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði. Dæmi: Einstaklingur sem eingöngu lifir á lífeyri frá TR og er að greiða næstum helming af lífeyri sínum í leigu fær ekki að vera á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.Fram kemur í umsögn að breytingar á matsviðmiðunum hafi helst tengst breytingu á reglugerð og reglum eins og gefur að skilja. Segir að engum er hent út af biðlista um félagslegt leiguhúsnæði” á velferðarsviði heldur er fólki tilkynnt um að það sé ekki lengur á biðlistanum þegar fólk uppfylli ekki skilyrði sem gerð eru til umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði. Upplifun fólks sem fær þessa tilkynningu er einmitt sú að því sé hent út og sé skilið eftir í mikilli óvissu. Fulltrúi Flokks fólksins sýnir þessari upplifun fólks skilning og finnst alvarlegt hvað margir er í miklum vanda við að komast í leiguhúsnæði hjá Félagsbústöðum. Velferðar yfirvöld þurfa að taka meiri ábyrgð í þessum málaflokki og fjölga búsetuúrræðum fyrir bágstadda.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um sérstakan styrk til foreldra til að greiða fyrir frístundardvöl barna sinna.
Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn atkvæði fulltrúa Flokks fólksins og fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands við afgreiðslu málsins.   Flokkur fólksins lagði til að að foreldrar með aðþrengdan fjárhag geti sótt um sérstakan styrk til að greiða fyrir frístundardvöl barna sinna í stað þess að nota frístundastyrkinn sem ætlaður er til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Hér er ekki verið að tala um fólk á fjárhagsaðstoð sem fá slíkan styrk. Stór hópur foreldra eru í miklum fjárhagsvanda þótt þeir séu ekki á fjárhagsaðstoð. Þessum foreldrum þarf að hjálpa með sama hætti og foreldrum á fjárhagsaðstoð til þess að börn þeirra geti nýtt frístundakortið í tómstundir. Staðan í dag er þannig að í tilfellum 1020 barna er frístundakortið þeirra notað til að greiða fyrir Frístundaheimili eða um 7% barna. Enda þótt einhver hluti foreldra séu að ráðstafa hluta frístundakorts upp í frístundaheimili þegar verið er að klára að nýta styrkinn fyrir árið þá er barnið ekki að nýta þann hluta í tómstundir. Frístundakortið var hugsað frá upphafi sem styrkur til að auka jöfnuð og gefa öllum börnum tækifæri til tómstunda- og íþróttaiðkunar að eigin vali óháð efnahag eða félagslegra aðstæðna. Hér er verið að mismuna og brjóta á börnum. Því miður er ekkert sem bendir til þess að gera eigi breytingar á reglunum svo öll börn geti notið íþrótta- og tómstundaiðkunar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um punktakerfi Reykjavíkurborgar um félagslegt húsnæði
Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hversu langt er síðan punktakerfi Reykjavíkurborgar um félagslegt húsnæði var uppfært? Ljóst er að uppfærslur eru nokkrar og þá helst í kringum breytingar á reglum. Vandinn er að þetta kerfi hefurekki orðið manneskjulegra í tímans rás og þar liggur hundurinn grafinn. Fram kemur að uppfærslan er iðulega unninn af lögfræðingum sem mögulega eru aðeins að hugsa um breytingarnar út frá lögfræðilegum sjónarmiðum. Getur það verið? Flokkur fólksins hefur nú komið með eina ábendingu þar sem aðili á biðlista var fjarlægður þar af þar sem hann átti ekki lengur rétt á að vera á biðlistanum. Eftir því sem fram kemur hjá viðkomandi var hann skyldur eftir út í kuldanum, fékk ekki frekari aðstoð til að finna nýtt úrræði. Það eru svona hlutir sem þarf að laga, það þarf að vera eitthvað til að grípa fólk ef aðstæður breytast þannig að að breyting verði á réttindum þeirra. Flokkur fólksins vill sjá svona regluverk manneskjulegra.

 

Bókun Flokks fólksins: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um leiðbeiningar frá BUGL um styttingu biðlista.
Flokkur fólksins spurði um hvort velferðarsvið geti hugsað sér að skoða þá leið sem farin hefur verið á BUGL en þeim hefur tekist farsællega að stytta biðlista t.d. með því að breyta vinnulagi og gera skipulagsbreytingar. Óþarfi er að finna hjólið upp á nýtt. Breytingar eins og Betri borg fyrir börn sem gerðar hafa verið í borginni kunna að vera ágætar en þær hafa ekki leitt til styttri biðlista nema síður sé. Eitthvað er ekki að virka. Biðlisti borgarinnar í dag er á þriðja þúsund börn en sama breyta var 400 börn árið 2018. Fram kemur í svari að velferðaryfirvöld vita lítið um hvernig BUGL náði svo góðum árangri og vill Flokkur fólksins því leggja til að velferðarsvið „taki upp tólið“, eða óski eftir fundi með starfsfólki BUGL til að fá frekari upplýsingar og læra af þeirra reynslu. Fullvíst má telja að velferðarráð setji sig ekki upp á móti því. Það er óþarfi að reyna að giska þegar hægt er án efa að fá allar upplýsingar beint frá BUGL sem væri örugglega upp með sér að fá að leggja borginni lið við t.d. endurskipulagningu til að ná meiri skilvirkni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um hækkun leigu hjá Félagsbústöðum
Flokkur fólksins spurði um fyrirhugaða hækkun leigu hjá Félagsbústöðum en til stendur að hækka leigu hjá Félagsbústöðum umfram vísitölu neysluverðs og umfram verðlag árið 2024. Spurt var hvort fyrirhuguð hækkun hafi verið rædd við leigjendur og ef svo er hver voru þeirra viðbrögð? Hækkun er um nokkur þúsund. Leigjendur Félagsbústaða er efnalítið fólk og munar því um hvern þúsund kall. Fram kemur að búið sé að senda öllum leigjendum Félagsbústaða bréf um breytingarnar sem taka eiga gildi 1. janúar 2024. Ekki kemur fram hvernig viðbrögð leigjenda hafa verið við þessum tíðindum. Í tengslum við þetta mál vill Flokkur fólksins nefna að öllum skuldum leigjenda er umsvifalaust beint til Motus í innheimtu. Flokkur fólksins hefur fréttir af því að þar séu skuldir margra að vaxa og fær fólk engu við ráðið því flestir hafa einfaldlega ekki peninga til að greiða leiguna sem vex hratt í höndum innheimtulögfræðinga. Verðbólga hefur leitt til þess að fólk fær minna fyrir krónuna. Því miður er Reykjavíkurborg áhrifaðili í að viðhalda verðbólgunni með því að hækka allar gjaldskrár. Hækkanir fara beint út í verðlagið og auka þannig verðbólgu.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Flokkur fólksins leggur til að velferðarsvið hafi milligöngu um að fá kynningu frá BUGL fyrir velferðarráð um þær leiðir sem BUGL fór til að stytta biðlista barna eftir þjónustu. Tillagan er byggð á jákvæðu svari velferðarsviðs við fyrirspurn Flokks fólksins um aðferðafræði BUGL við styttingu biðlista. Í svarinu segir: “ Ef velferðarráð óskar eftir því að fá ítarlegri upplýsingar um þjónustu BUGL og þær leiðir sem farnar hafa verið til að stytta biðlista er velferðarsvið reiðubúið til að hafa milligöngu um að útvega slíka kynningu”. Hér með leggur fulltrúi Flokks fólksins þess vegna til að velferðasvið fá fund með BUGL til að kynnast aðferðum þeirra við að stytta biðlista og í kjölfarið haldi kynningu um það í ráðinu.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Flokkur fólksins leggur til að vangreiddar leiguskuldir einstaklinga á sambýlum eða íbúðakjörnum verði ekki sendar til Motus eða annarra kröfu fyrirtækja. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að fyrst hafi leigusalinn sem er í flestum tilfellum Félagsbústaðir samband við forstöðumenn úrræðanna. Það hefur borið á því að veikir íbúar á sambýlum hafi komið sér í miklar skuldir við Motus vegna húsaleiguskulda. Þessar kröfur valda þessum einstaklingum oft miklum kvíða og gerir viðkvæma stöðu þeirra mun verri.Það þarf því að koma í veg fyrir að íbúar á sambýlum komi sér í ofur skuld hjá Motus eða öðrum kröfu fyrirtækjum vegna húsaleiguskulda. Um leið og krafa er komin í Motus þá dettur skuldin út úr heimabankanum. Forstöðumenn búsetuúrræða aðstoða oft á tíðum íbúa við að greiða skuldir sínar í heimabanka. Um leið og krafa er komin í Motus þá dettur skuldin úr heimabanka og það gerir forstöðumönnum enn erfiðara fyrir að aðstoða skjólstæðinga við að greiða skuldir sínar.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um leigubíla kostnað velferðarsviðs árið 2022 og 2023. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir ástæðum leigubíla notkunar og því óskar fulltrúi Flokks fólksins á skýringa á helstu ástæðum fyrir notkun leigubíla á sviðinu.

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um kostnað velferðarsviðs við leigu á gistiheimilum á þessu ári þ.e. 2023. Fulltrúa Flokks fólksins hefur borist ábendingar um að það hafi færst í vöxt að velferðarsvið greiði háar fjárhæðir fyrir gistiheimili vegna fjölskyldna sem hafa ekki í nein hús að vernda. Starfsmenn Reykjavíkurborgar sem vinna náið með fjölskyldum í þessari stöðu telja að þessi þróun muni aukast vegna slæmrar stöðu á húsnæðismarkaði.