Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs og menningar- og íþróttasviðs, dags. 14. júní 2023, sbr. samþykkt menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs frá 19. maí 2023 og samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 12. júní 2023 á tillögu um nýja deild á menningar- og íþróttasviði:
Meirihlutinn leggur til að á menningar- og íþróttasviði verði til deild sem kennd er við útilífsborgina Reykjavík. Það á að sameina Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Siglunes, skíðabrekkur innan borgarmarkanna og ákveðna starfsemi skóla- og frístundasviðs. Um er að ræða umtalsverða sameiningu sem er ekki til þess að spara eða hagræða en með sameiningu er verið „að nýta fjármagn betur.“ Reynslan af sameiningu eins og Flokkur fólksins hefur upplifað í borginni er að sameining hefur oft í för með sér aukakostnað. Með sameiningu er einnig alltaf hætta á að þjónusta verði lélegri, að hvert og eitt svið fái ekki nægilegt rými og að sérþekking og reynsla tapist eða fá ekki að njóta sín sem skyldi.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 15. júní 2023, sbr. afgreiðslu skóla- og frístundaráðs á tillögu fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um opnunartíma félagsmiðstöðva:
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir með fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um opnunartíma félagsmiðstöðva um að hætta skuli við að stytta opnunartíma í félagsmiðstöðvum og að samráð sé haft við ungmenni borgarinnar áður en teknar eru ákvarðanir um frístundastarf unglinga. Meirihlutinn vill klípa 15 mínútur af opnunartíma á mánudögum og miðvikudögum til að spara. Hér er verið að spara á röngum stöðum. Nær væri að hætta að þenja báknið eins og verið er að gera með fjölgun stöðugilda á ýmsum sviðum. Hér er um að ræða félagsmiðstöð sem skiptir máli fyrir ungmennin. Félagsmiðstöðvar hafa mikið forvarnargildi. Svona ákvörðun á auk þess ekki að taka án samráðs við unglingana. Borgaryfirvöld vilja láta að því liggja að verið sé að bæta þjónustu við börn en í þeim töluðu orðum er verið að skerða þjónustu við börn.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 16. júní 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fjölda barna á biðlista eftir leiguhúsnæði, sbr. 57. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. maí 2023:
Í svari kemur fram að ef miðað er við börn sem hafa lögheimili hjá foreldrinu, bíða alls 383 börn eftir leiguhúsnæði en auk þess eru 20 börn sem eru í umgengni hjá foreldrum sem eru á biðlistanum. Þetta er stór hópur og aðstæður þeirra án efa mismunandi. Húsnæðisekla hefur margslungin áhrif og afleiðingar og gera má því skóna að neikvæðustu áhrifin og alvarlegustu afleiðingarnar séu einmitt á þá minnimáttar, börnin.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 15. júní 2023:
Í 1. lið fer fram umræða um aðgengisfulltrúa en ekki kemur fram neitt um hvað var rætt eða hvort komist var að niðurstöðu. Flokk fólksins er farið að lengja eftir að aðgengisfulltrúi verði ráðinn.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 12. júní 2023. Bókunin fékk ekki að birtast í fundargerð:
Fulltrúi Flokks fólksins er sleginn yfir neikvæðu og niðrandi viðhorfi/tal tveggja starfsmanna sem opinberuðust ráðsmönnum fyrir mistök starfsmannanna sjálfra á fundi íbúaráðs Laugardals. Á tali starfsmannanna kepptust þeir við að hindra framgang mála með ýmsum klækjum m.a. til að mál/bókanir rötuðu ekki í fundargerð.
Hvernig eiga ráðsmenn að sinna hlutverki sínu í ráðinu, eins og það er skilgreint í samþykktum, eftir að hafa hlustað á svona samtal? Eiga þeir bara að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist ?
Hvernig á að ríkja traust nú þegar vitað er hvað þarna er að baki?
Er hægt að treysta Mannréttinda og lýðræðisskrifstofu?
Frá upphafi hefur íbúaráðum ekki verið sýnd nægjanleg virðing af borgaryfirvöldum. Það er mat fulltrúa Flokks fólksins. Flokkur fólksins hefur fengið upplýsingar um að ítrekað er fyrirspurnum fulltrúa í ráðinu seint og illa svarað og sama gildir um fyrirspurnir frá íbúaráðinu sjálfu. Ítrekað hefur “boðuð umræða”, með fagfólki borgarinnar verið slegin af dagskrá funda með stuttum fyrirvara. Vettvangurinn virðist að þessu leyti sýndar-samráð nú þegar við höfum séð hvernig starfsmenn í boði Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu leika sér að ráðsmönnum og gera allt hvað þeir geta til að vængstýfa íbúaráðið.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu að útbúar hjálparspjöld fyrir bílstjóra :
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarráð samþykki að beina því til stjórnar Strætó að það verði útbúin leiðarspjöld í vagnana sem sýni stoppistöðvar á viðkomandi leið til að auðvelda farþegum að átta sig á því hvar þeir eigi að fara út til að komast á áfangastað. Farþegar í strætó lenda oft í því að vera leiðsögumenn fyrir aðra farþega, t.d. erlenda ferðamenn sem eru ekki vissir um hvar þeir eigi að fara út til að komast á áfangastað, því bílstjórar af erlendum uppruna tala hvorki íslensku né ensku og geta þar af leiðandi ekki leiðbeint farþegum. Þetta hlýtur að vera erfið staða fyrir þessa bílstjóra og því er lagt til að hugað verði að myndrænni framsetningu leiðanna sem hægt er að nota sem hjálpartæki. MSS23060141
Vísað til meðferðar stjórnar Strætó bs.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu að semja við Hljóðbókasafnið:
Flokkur fólksins leggur til að Reykjavíkurborg semji við Hljóðbókasafnið fyrir hönd allra skólanna í Reykjavík svo það opnist aðgengi fyrir alla nemendur en ekki bara þá sem hafa fengið greiningu. Flokkur fólksins telur mikilvægt að Hljóðbókasafnið sé opið öllum grunnskólabörnum en ekki eingöngu börnum sem fengið hafa greiningu. Efnalítið fólk svo og margir innflytjendur hafa ekki mikið á milli handanna til að kaupa bækur fyrir börn sín. Því er mjög mikilvægt að bæta aðgengi allra barna að hljóðbókum. Hljóðbækur eru mjög mikilvægar fyrir börn af erlendum uppruna og í raun alla grunnskólanemendur til efla málskilning þeirra. MSS23060142
Frestað.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hversu margt starfsfólk sviðsins hefur hætt sjálfviljugt eða verið sagt upp undanfarin fimm ár:
Í ljósi þess að mannauðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs hætti fyrir nokkru síðan óskar fulltrúi Flokks fólksins eftir upplýsingum um hversu margt starfsfólk sviðsins hefur hætt sjálfviljugt eða verið sagt upp undanfarin fimm ár. Einnig er farið fram á upplýsingar hvort um beinar uppsagnir hafi verið að ræða eða fólki gefinn kostur á því að segja upp sjálft. Spurt er jafnframt um hvaða störf er þarna að ræða. Vitað er að einnig hafi verið skipt um fjármálastjóra oftar en einu sinni á umbeðnu tímabili. Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir inn til sviðsins undanfarin fimm ár og í hvaða störf? MSS23060143