Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 5. október 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. október 2023 á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Fossvogsblett 2-2A:
Flokkur fólksins fagnar því megininntaki deiliskipulagstillögunnar að stefnt sé að því að fjölga leikskólaplássum í hverfinu með byggingu nýs leikskólahúsnæðis. Mikill skortur er á leikskólaplássum í hverfinu. Þær athugasemdir sem hér liggja fyrir snúa að skorti á samráði, s.s. hvernig var staðið að kynningu tillögu að nýju deiliskipulagi. Mikilvægt er einmitt að standa vel að kynningum. Allir íbúar eiga að fá góðar upplýsingar svo að hver og einn geti búið sig undir breytingarnar og bent á það sem betur má fara.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 9. október 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun lóðar og sölu byggingarréttar fyrir hjúkrunarheimili að Mosavegi 23:
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að fjölga eigi hjúkrunarrýmum í borginni. Nú hefur nýlega verið rætt um lífsgæðakjarna og í því sambandi verið lögð sérstök áhersla á nálægð við ólíka þjónustu og afþreyingu fyrir þennan aldurshóp. Spurning er hvort þessi atriði hafi verið skoðuð sérstaklega í þessu tiltekna sambandi.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 9. október 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun lóðar og sölu byggingarréttar fyrir 65 íbúðir fyrir námsmenn á lóðum við Arnarbakka 2-4:
Óskað er eftir að borgarráð samþykki að úthluta Byggingarfélagi námsmanna lóð og byggingarrétti fyrir 65 íbúðir fyrir námsmenn á lóðum við Arnarbakka 2-4. Fulltrúi Flokks fólksins er ánægður með að þarna verði íbúðir fyrir námsmenn. Gæta þarf að aðgengi að þessu svæði vegna þéttingar og að auðvelt verði að komast inn og út í hverfið á hverju því farartæki sem fólk kýs að nota, bíl eða hjól. Umferð til og frá Breiðholtinu er erfið á annatímum og virkilegt vandamál. Þeir sem geta notað almenningssamgöngur eiga vissulega stutt að fara niður í Mjódd þar sem Strætó hefur biðstöð.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 10. október 2023, varðandi umsögn Reykjavíkurborgar um tillögu til þingsályktunar um stefnumótanadi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028:
Hér er Reykjavíkurborg að veita umsögn. Farið er vítt og breitt og tekið undir flest. Sá hluti sem snýr að börnum er t.a.m. að Reykjavíkurborg „styður verkefni um vellíðan ungra barna og barnafjölskyldna enda er það í samræmi við mótun heildstæðrar stefnu og aðgerðaáætlunar Reykjavíkurborgar.“ Hér finnst fulltrúa Flokks fólksins vanta að minnst sé á biðlistavandann sem bæði er mikill í Reykjavíkurborg og í stofnunum á vegum ríkisins. Það hefði verið lag hér að hvetja ríkisstjórnina til sameiginlegs átaks til að uppræta biðlista barna. Börn sem búa við vanlíðan og erfiðar aðstæður eiga ekki að þurfa að bíða eftir þjónustu.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki að beina því til stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að því verði beint til svæðisskipulagsnefndar að stofna starfshóp í samvinnu við nágrannasveitarfélögin, Ölfus og Voga, sem hafi það að markmiði að finna framtíðarstaðsetningu íþróttamiðstöðvar skotíþrótta:
Fyrirhuguð er aðalskipulagsbreyting, sem felur það í sér að núverandi og óbreytt starfsemi verði áfram í Álfsnesi til skemmri tíma. Mikil óánægja hefur ríkt með að þetta sport skuli vera stundað svo nærri byggð og viðkvæmu fjörulífríki. Neikvæð umhverfisáhrif hafa verið mikil og þá einna helst af tvennum toga, ónæði vegna hávaða og mengun af völdum blýhagla. Reynt hefur verið að draga úr áhrifum með mótvægisaðgerðum. Mótvægisaðgerðir eru góðar eins langt og þær ná en ekki hefur verið skilgreint hver eigi að borga fyrir þær. Skotvellir eru í eðli sínu starfsemi sem hefur neikvæð umhverfisáhrif og er skilgreind sem mengandi starfsemi skv. reglugerð 550/2018 um losun frá atvinnustarfsemi og mengunarvarnaeftirlit. Fulltrúi Flokks fólksins harmar að áfram skuli eiga að leggja þetta á íbúa Kjalarness. Betra hefði verið að þessi íþrótt flyttist strax á annað líflítið bráðabirgðasvæði og þar sem fólk verður ekki fyrir ónæði á meðan leitað er að framtíðarlausn.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar SORPU bs., dags. 6. október 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um greiðslur SORPU bs. til Terra, sbr. 24. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. september 2023.:
Verið er að svara fyrirspurn um hvað SORPA hefur greitt fyrirtækinu Terra háar fjárhæðir síðastliðið ár vegna sorphirðu og hvað hefur verið greitt til Kubbs ehf. og Íslenska gámafélagsins síðastliðið ár. Í svari má sjá að þetta eru umtalsverðar upphæðir eða samtals tæpar 600 milljónir án virðisaukaskatts. Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort hægt sé að fara kostnaðarminni leiðir og hvort útboð á þessu öllu sé besta leiðin. Um er að ræða tæmingu á grenndargámum, akstur á gámum milli starfsstöðva og fleiri skyld verkefni.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 4. október 2023.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar:
Kynntur er Vetrargarður og íbúaráð leggur fram sameiginlega bókun þar sem segir að Vetrargarðurinn sé „lýðheilsuverkefni fyrir útilífsborgina, dregur að sér fjölskyldur, börn og ungmenni og verður spennandi að sjá garðinn dafna þegar fram í sækir“. Fulltrúi Flokks fólksins setur stórt spurningarmerki við þá fullyrðingu að hér sé um að ræða lýðheilsuverkefni. Byggja á leiksvæði barna, Vetrargarðinn, á horni tveggja stofnbrauta með samtals 11 akreinar. Fyrirhugaður Vetrargarður á að rísa nánast ofan í hraðbrautina. Fulltrúi Flokks fólksins óttast að mengun frá Arnarnesvegi muni leggjast yfir Vetrargarðinn á gráum dögum og umferðarniður verður varla umflúinn. Margsinnis var farið fram á nýtt umhverfismat þar sem aðgerðin er byggð á eldgömlu umhverfismati. Lýðheilsa íbúa er hér einmitt lögð að veði.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 11. október 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 18. og 19. lið fundargerðarinnar:
- liður: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um vistlokin. Það var því miður ljóst frá byrjun að það að teikna vistlok yfir veginn til að fegra deiliskipulagið var í raun ekkert annað en yfirvöld að slá ryki í augu íbúa. Ósannindi á ekki að líða. Þeim var ljóst frá byrjun að ekkert fjármagn var til fyrir þessi vistlok og þau því eitthvað sem verður aldrei framkvæmt. Sérstaklega í ljósi þess að kostnaðurinn við að gera þau síðar er örugglega margfalt hærri en að gera þau samhliða vegagerðinni. Ekki var tekið neitt mark á umsögnum íbúa varðandi lagningu 3. kafla Arnarnesvegar og sannar í enn eitt skiptið að samráðsferlið við íbúa er ekkert annað en sýndarlýðræði.
- liður: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lengd 3. áfanga Arnarnesvegar. Fram kemur í svari að ekki er ljóst hvaðan upplýsingar um að kaflinn sé 1,3 km langur eru upprunnar en sé leitað á netinu sést að sú tala kemur fyrir á nokkrum stöðum. Þetta er athyglisvert og veltir fulltrúi Flokks fólksins því upp hverjir hafa mögulega haft hagsmuni af því að vegurinn sé sagður 1,3 km.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um ábyrgð með þrifum á salernum í Mathöll á Hlemmi:
Hvernig er eftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur háttað með salernum í Mathöllinni á Hlemmi hvað varðar hreinlæti og þrif? Fulltrúa Flokks fólksins hafa borist ábendingar um að ofangreindum þáttum sé ábótavant en um er að ræða salerni sem notuð eru bæði af gestum Mathallarinnar og einnig þeim sem leið eiga fram hjá. Rennsli í gegnum salernið getur verið tugir á klukkutíma.
Vísað til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.