Borgarstjórn 21. nóvember 2023

Borgarstjórn Reykjavíkur

21. nóvember 2023

Greinargerð borgarfulltrúa Flokks fólksins með umræðu um kostnað Reykjavíkurborgar við ráðgjafarkaup

Tugir milljóna fara ár hvert í verk- og ráðgjafarkaup frá innlendum og erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Þetta er alvarlegt í ljósi bágrar efnahagsstöðu borgarinnar. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt til að dregið verði af afli úr aðkeyptri verkefnavinnu og ráðgjöf til borgarinnar og sé sú leið einungis farin liggi fyrir skýr og haldbær rök. Skoða má að nýta þess í stað mannauð borgarinnar betur. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins og hefur á að skipa fjölda sérfræðinga sem ráðnir eru einmitt vegna sinnar sérfræðimenntunar, sérþekkingar og reynslu. Í gegnum árin hefur fulltrúi Flokks fólksins vakið máls á þessu með ýmsum hætti, svosem með bókunum og tillögum. Bent hefur verið á þá gríðarlegu fjármuni sem fara ekki einvörðungu í ráðgjöf heldur einnig alls kyns verkefni. Ráðnir hafa verið hámenntaðir verkfræðingar, verktakar, til þess að annast verkefni, ekki aðeins stór og flókin, heldur smá verkefni, sum jafnvel einföld. Stórar upphæðir fara jafnframt í áskriftir og ráðgjafarkaup m.a. hjá erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Skoða mætti að draga úr slíku nú þegar illa árar í borgarfjármálunum. Allir hljóta að sjá að velta þarf við hverri krónu ef borgin á að geta siglt út úr þeim ógöngum sem hún er nú í.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:

Tugir milljóna fara ár hvert í ráðgjafarkaup af öllu tagi. Sama má segja um ýmis verkkaup. Ráðgjafarkaup eru frá innlendum jafnt sem erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt til að Reykjavíkurborg dragi úr aðkeyptri ráðgjafar- og verkefnavinnu. Aðkeypt ráðgjöf á aðeins að koma til ef hana er ekki hægt að sækja úr mannauði starfsmanna Reykjavíkurborgar. Haldbær rök þurfa að liggja fyrir vegna kaupa á rándýrum ráðgjöfum. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins og hefur á að skipa fjölda sérfræðinga sem ráðnir eru einmitt vegna sinnar sérfræðimenntunar, sérþekkingar og reynslu. Flokkur fólksins hefur ítrekað vakið máls á óheyrilegum kostnaði sem fer í aðkeypta ráðgjöf með tilheyrandi kostnaðarsömum skýrslum og verkefnakaupum. Þjónustan er gjarnan keypt frá sömu ráðgjafarfyrirtækjunum. Dæmi eru um að fengnir hafi verið hámenntaðir verkfræðingar til að annast ólíklegustu verkefni, sum jafnvel einföld og léttvæg. Í fjölda ára hafa stórar upphæðir farið í áskriftir af ráðgjöf frá erlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill fá þessa samninga endurskoðaða með það að leiðarljósi að segja þeim upp enda óvíst hver sé ávinningurinn af þeim. Velta þarf við hverri krónu ef borgin á að geta siglt út úr þeim ógöngum sem hún er nú í og gert það í samræmi við framlagðar fjármálaáætlanir fjármálasviðs borgarinnar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðum: Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að ráðast í eftirfarandi aðgerðir í því skyni að bæta almenningssamgöngur í borginni:

Fulltrúi Flokks fólksins getur tekið undir þessar tillögur um almenningssamgöngur. Úrbætur eru brýnar. Það hefur komið vel út að Strætó aki á forgangsakreinum og leggja þarf áherslu á staði með mikinn umferðarþunga þar sem strætisvagnar verða helst fyrir töfum. Sama má segja um umferðarljós þannig að forgangur strætisvagna verði tryggður á umferðarljósum með innleiðingu snjalltækni. Almennt er mikilvægt að taka umferðarljósakerfið rækilega í gegn, núverandi kerfi er ekki að virka nógu vel. Ítrekað hefur verið rætt um biðskýli og skiptistöðvar og hefur Flokkur fólksins lagt fram tillögur um m.a. að hraða verði viðhaldi og endurbyggingu. Aðstaða í sumum þeirra er til skammar. Skiptistöðvar verða að vera opnar á meðan vagnar ganga og að sjálfsögðu vera upphitaðar og með fullnægjandi salernisaðstöðu. Flokkur fólksins hefur ítrekað rætt um Klappkerfið sem nú er að mestu viðurkennt að hafi ekki gengið nógu vel. Nú þarf helst að skipta því út fyrir hraðvirkt og notendavænt kerfi í samvinnu við aðra eigendur Strætó bs. Vagnar hafa eitthvað verið endurnýjaðir en það verkefni er viðvarandi. Til að fleiri noti þjónustuna er brýnt að gera úrbætur á leiðakerfi og auka ferðatíðni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðum: Fram fer umræða um skýrslu ÖBÍ réttindasamtaka um húsnæðismál fatlaðs fólks:

Skýrslan sem er hér til umræðu sýnir niðurstöðu rannsóknar í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Konur með fötlun sem auk þess eru einstæðar mæður hafa það verst. Lítið sem ekkert hefur verið gert í húsnæðismálum fatlaðs fólks í rúman áratug eða síðan skýrsla um húsnæðismál kom út árið 2010. Hátt leiguverð spilar hér inn í. Um 11% öryrkja leigja hjá Félagsbústöðum og Brynju samkvæmt könnunni. Af þeim sem höfðu verið á biðlista eftir félagslegu húsnæði höfðu tæp 60% verið þar í þrjú ár eða lengur. Húsnæðisvandi eins og hann leggur sig leysist ekki fyrr en framboð verður nægjanlegt. Hér bera sveitarfélög stærstu ábyrgðina. Byggja þarf mun meira og samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar. Flokkur fólksins hefur lagt til að skipaður verði starfshópur til að gera úttekt á búsetuhögum og búsetuúrræðum öryrkja í Reykjavík og sérstaklega á leigumarkaðinum. Í skýrslunni ÖBÍ 2023 kemur fram að 27% svarenda með 75% örorkumat greiða á bilinu 51-75% útborgaðra launa í rekstur á húsnæði. Að auki greiða 12% svarenda í sama hópi meira en 75% útborgaðra launa í rekstur á húsnæði. Sú staða er óviðunandi með öllu og samræmist ekki markmiðum fjármálaáætlunar í húsnæðismálum um greiðslugetu leigjenda.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðum:  Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 9. og 16. nóvember. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. nóvember:

Starfshópur hefur skilað skýrslu með tillögum er snúa að bílastæðahúsum borgarinnar. Í skýrslunni kemur fram að nýting bílastæðahúsa er léleg eða 27% að meðaltali. Þess vegna er aðalatriðið að bæta nýtingu þeirra. Sérstaklega er áríðandi að þau nýtist að nóttu sem ekki er raunin nú. Markmiðið hlýtur að vera að koma bílum af götu ef kostur er. Margar tillögur skýrslunnar miða að því að draga úr notkun bílastæðahúsa enn frekar svo sem að hætta að gefa afslátt ef lagt er lengi og jafnvel hækka gjaldið sem er ekki ástæða til þegar nýting er svo lítil. Gjaldskrárhækkanir hafa mikinn fælingarmátt. Betra væri að leggja áherslu á að einfalda aðgengi að bílastæðahúsunum og hafa þau aðlaðandi. Hafa þyrfti þjónustu á staðnum sem auðvelt er að sækja ef ökumann vantar aðstoð eða leiðbeiningar. Um það eru reyndar nokkrar tillögur komnar frá Flokki fólksins. Það verður að horfast í augu við að bílum er ekki að fækka heldur fjölga. Almenningssamgöngur eru aðeins kostur fyrir afmarkaðan hóp og eru ástæður fyrir því fjölmargar. Fulltrúa Flokks fólksins hugnast ekki útvistun af þjónustu af þessu tagi. Hætta er á að þjónusta verði enn verri.

 

Bókun Flokks fólksins undirliðnum: Lagðar fram fundargerðir. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 11., 12. og 13. gr. fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 13. nóvember:

Borgarfulltrúi Flokks fólksins er afar ósáttur við hvernig tillögur eru meðhöndlaðar í skóla- og frístundaráði. Ekkert er gætt að hvort þær gagnist skólayfirvöldum, foreldrum eða börnum borgarinnar. Á fundi 13. nóvember sl. var þremur tillögum kastað fyrir róða. Tvær þeirra varða upplýsingagjöf og hafa engan kostnað í för með sér. Sú fyrri er tillaga um að skólayfirvöld boði kennara til fundar til að ræða og kynnast þróunarverkefninu Kveikjum neistann og í kjölfarið verði það skoðað hvort áhugi sé á að innleiða það í einhverja skóla Reykjavíkur t.d. í tilraunaskyni. Tillaga var einnig um að senda bréf til foreldra í samráði við skólasamfélagið vegna aukins hnífaburðar barna og ungmenna líkt og það sem menntasvið Kópavogsbæjar sendi foreldrum. Þriðja tillagan var að strætókort handa nemendum í grunnskólum Reykjavíkurborgar taki mið af bæði lögheimili og búsetuheimili barns og að börn sem sæki skóla í öðru skólahverfi en lögheimili af einhverjum ástæðum eigi einnig rétt á strætókorti. Börn hafa kannski þurft að skipta um skóla vegna eineltis og sækja þá skóla í öðru hverfi. Þessar þrjár tillögur hlutu ekki náð fyrir ráðinu og er það í raun alveg óskiljanlegt.