Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 23. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Skýrsla fagsviðs persónuverndar hjá innri endurskoðun um eftirlitsmyndavélar á vegum Reykjavíkurborgar.

Fulltrúi Flokks fólksins hefur fram til þessa verið talsmaður þess að eftirlits- og öryggismyndavélar séu settar upp þar sem talin er þörf og ástæða og þá í kjölfar mats sérfræðinga þar að lútandi. Sérstaklega er slíkur búnaður eftirsóknarverður þar sem börn koma saman í námi, starfi eða leik. Þótt myndavélar sem þessar komi ekki í veg fyrir að glæpur sé framinn hafa þær fælingarmátt og auðvelda að mál séu upplýst. Þannig eru eftirlitsmyndavélar almennt til bóta. Með þeim má einnig sjá hverjir skemma með veggjakroti og gera þá ábyrga fyrir verknaðinum. Ef tækjabúnaður sem þessi og gögn honum tengd eru ekki misnotuð til að hefta frelsi eða frelsistilfinningu einstaklinga á að beita eftirlitsmyndavélum víða. Það hefur auk þess komið fram í umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að samkomulagið um öryggismyndavélar samræmist mannréttindastefnunni en einungis ef vel útfærðar og nákvæmar verklagsreglur fylgja því. Öryggis- og eftirlitsmyndavélar eru að verða eðlilegur hlutur í öruggum borgum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Næstu skref vegna úttektar á stöðu ofbeldisvarnarmála innan Reykjavíkurborgar.

Til umfjöllunar er úttekt á stöðu ofbeldisvarnarmála hjá Reykjavíkurborg. Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð samþykkti að láta framkvæma úttektina til að fá heildstæða sýn á stöðu ofbeldisvarna. Í úttektinni eru margar tillögur um úrbætur. Flokkur fólksins telur mikilvægt að Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð taki þessar tillögur til rækilegrar skoðunar. Tvö verkefni voru sérstaklega tiltekin vegna góðs árangurs en það eru verkefnin Saman gegn ofbeldi og Jafnréttisskólinn. Flokkur fólksins tekur undir með skýrsluhöfundi um að það sé brýnt að efla Jafnréttisskólann og fjölga starfsfólki. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að bregðast við aukinni ofbeldismenningu barna og ungmenna og jafnframt að ráðast í átak vegna aukins vopnaburðar hjá þessum hópi. Skýrsluhöfundur úttektarinnar leggur til að átak verði gert gegn ofbeldismenningu en þar segir: Átak gegn ofbeldismenningu barna með áherslu á aðkomu allra sem málið varðar þ.á m. ríkis, borgar, lögreglu og heilbrigðiskerfisins en síðast en ekki síst barna. Flokkur fólksins hvetur til þess að farið verði í slíkt átak eins fljótt og kostur er.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga um samráðsvettvang um börn og ungmenni í tengslum við ofbeldi. Ásamt umsögnum.

Þessi tillaga er nokkurs konar mótsvar eða breytingartillaga við tillögu Flokks fólksins um stofnun stýrihóps sem myndi kortleggja aukinn vopnaburð meðal ungmenna í Reykjavík og aukið samráð þriggja ráða sem koma hvað mest að þjónustu við börn. Í umsögn við tillögunni var bent á að betra væri að stofna stýrihóp þar sem sætu formenn VEL, SFS og MOR og að þeir njóti ráðgjafar ýmissa fagaðila. Þessi tillaga meirihlutans er því greinilega mótspil við tillögu Flokks fólksins enda gerir hún ráð fyrir víðtækara samráði m.a. að fulltrúar frá hinum ýmsu ríkisstofnunum og öðrum félögum taki sæti í samstarfshópnum. Kostir og gallar eru við svo stóran samráðshóp það gæti t.d. reynst erfitt að finna fundartíma sem hentar öllum. Þó samstillt átak sé mikilvægt þá telur fulltrúi Flokks fólksins að það hefði skilað meiri skilvirkni ef vinnan einskorðast við kerfi innan borgarinnar og með þéttu samráði við hagsmunasamtök. Fyrst og fremst þarf að samþætta verkefni sem nú þegar eru innan borgarinnar og rýna gagnsemi og mæla árangur þeirra. Mikilvægt er að nálgast ofbeldi barna og ungmenna út frá hagsmunum barna og þeim skyldum sem felast í lögfestingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Því miður hefur borgin ekki lögfest sáttmálann sem er mjög miður.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um þátttöku í hverfið mitt. 

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um ástæður þess að kosningaþátttaka í Hverfið mitt hefur dalað mikið milli ára. Árið 2021 var hún 16.4 % en er nú 12%. Áberandi lægst er útkoman í Breiðholti, Vesturbæ og Miðbæ. Er vitað til þess af hverju þátttaka er svo dræm í þetta lýðræðisverkefni? Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að þetta verði skoðað með tilliti til framtíðar. Hverfið mitt er dýrt verkefni í meðferð borgarinnar, það krefst auglýsinga og mannafla. Nokkrar vangaveltur hafa einnig verið um lýðræðisþáttinn þegar kemur að því hvaða verkefni sem er ofarlega á lista eru framkvæmdar og hvernig endanleg útfærsla er. Skemmst er að minnast á Vulgar stigann í efra Breiðholti sem fór fyrir brjóstið á fjölda manns.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um starfsemi Bjarkarhlíðar.

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um starfsemi Bjarkarhlíðar. Hvort hún er í samræmi við upphaflegt markmið? Hvort markmið og tilgangur hafi breyst í áranna rás og ef svo er þá hvernig? Hefur verið gerð greining eða skoðun á fyrirtækinu nýlega, s.s. hversu margir sækja þjónustu í Bjarkarhlíð og þá hvernig? Hvar er mesta þörfin að mati forráðamanna? Er málum fylgt eftir með þolendum sem leita til Bjarkarhlíðar eins lengi og þeir telja þörf? Bjarkarhlíð tók formlega til starfa 1. febrúar 2017. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, Dómsmálaráðuneytis, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar. Á vefsíðu kemur fram að Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmið er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Bjarkarhlíð býður áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri.