Borgarstjórn 19. desember 2023

Aukafundur í borgarstjórn

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars tekjuárið 2024 verði hækkað úr 14,74% í 14,97% og er það hækkun um 0,23 prósentustig frá því sem lagt var fram í október sl. með fjárhagsáætlun ársins 2024:

Flokkur fólksins fagnar þessu samkomulagi sem felur í sér breytingu á fjármögnun lögbundinnar sértækrar þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir. Vísað er í samkomulagið um nánari útfærslu. Flokkur fólksins hefur þó nokkrar áhyggjur af því að með þessari breytingu á fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk verði litið svo á að þeir þættir sem lagðir eru til grundvallar séu endanlega útkljáðir milli ríkis og sveitarfélaga. Allt sem er endanlegt í svo mikilvægum málaflokki hræðir fulltrúa Flokks fólksins. Það er ómögulegt að átta sig á hvernig mál kunna að þróast og hefði borgarfulltrúi Flokks fólksins vilja nota annað hugtak en endanlegt í þessu samhengi.