Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að framlengja tímabundna heimild til að víkja frá reglum um íbúakort sem var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði þann 15. nóvember 2023 og borgarráði 16. nóvember 2023:
Flokkur fólksins tekur heilshugar undir tillögu um framlengingu á heimildum um frávik á reglum um íbúakort til handa Grindvíkingum. Frá því að tillagan var samþykkt í nóvember á síðasta ári hafa verið gefin út 30 íbúakort til 23 heimila Grindvíkinga með tímabundna búsetu innan íbúakortasvæða í 20 íbúðum. Það er því augljós þörf fyrir þessi íbúakort fyrir Grindvíkinga. Framlengingin á að gilda til 30. apríl 2024. Fulltrúi Flokks fólksins hefði viljað sjá þessa framlengingu ná fram á mitt sumar í ljósi nýjustu viðburða í Grindavík.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á áætluðum framkvæmdum vegna hjólreiðaáætlunar á árinu:
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar bættu hjólaneti og vonast til að þegar betri hjólaaðstæður eru komnar á fleiri staði munu fleiri finna hjá sér áhuga að nota hjól sem samgöngutæki. Flokki fólksins finnst brýnt að haft sé stöðugt samráð við hjólreiðasamfélagið, hvað aðgerðir því finnst brýnast að ganga í og hvar eru endurbætur mest þörf.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Vinstri grænna um átak í að koma í veg fyrir margs konar stöðubrot í miðborg Reykjavíkur, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 8. mars 2023.
Um er að ræða tillögu VG að breyta hönnun gatna til að hindra stöðubrot. Flokkur fólksins telur að taka megi tillit til slíkra atriða þegar endurbætur- viðhald gatna á sér stað. Þá er slíkt er ekki kostnaðarsamt.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lokun bensínstöðva, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. nóvember 2023. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11 janúar 2024.
Samþykkt að vísa frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK23110006
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að lokun bensínstöðvarinnar í Stóragerði verði frestað vegna fjölda áskorana. Fjöldi manns hafa af þessu áhyggjur því í hverfinu búa margir aldraðir og fatlaðir sem vilja halda stöðinni vegna þess að þeir treysta á aðstoð og þjónustu sem þar er í boði. Samkvæmt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs og skipulagsfulltrúa liggur fyrir tillaga að breyttri nýtingu lóðarinnar og að núverandi mannvirki verði rifin og á henni verði reist 4-5 hæða hús. Umsagnaraðilar gera lítið úr óskum íbúa um góða þjónustu bensínstöðvarinnar og telja að þeir geti sótt þessa þjónustu annað. Fulltrúa Flokks fólksins finnst miður að ekki sé hlustað á raddir íbúanna.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Um er að ræða mál sem er tengist samningi um uppbyggingu á bensínstöðvalóðum sem afgreiddur hefur verið á vettvangi borgarstjórnar. Það er því ákvörðun rekstraraðila að hafa frumkvæði að uppbyggingu þar sem stendur til að bjóða upp á þjónustu og verslun á jarðhæð. Hugmyndir lóðarhafa gera ráð fyrir að á lóðinni verði blönduð byggð íbúða- og atvinnuhúsnæðis fyrir skrifstofur, verslun og þjónustu sem mun fyrst og fremst þjóna nærumhverfi stöðvarinnar og koma íbúum til góðs. Tiltölulega stutt er í næstu bensínstöð en N1 er með stóra stöð á Kringlumýrarbraut 100 sem er 2 km frá bensínstöðinni í Stóragerði og Orkan er með stöðvar sitthvoru megin við Miklubraut hjá Kringlunni þær eru rúmlega 1,5 km frá Stóragerði.
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lagfæringu á gangstéttum í Norðurhólum, Hólabergi og Hraunbergi (111 Reykjavík), sbr. 13 liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 17. janúar 2024.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK24010167
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að samin verði reglugerð um sektir og/eða önnur viðurlög vegna skotæfingasvæðisins á Álfsnesi, sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 17. janúar 2024.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK24010168