Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á hönnun og væntanlegum framkvæmdum Fossvogsbrúar, Öldu
Glærur í kynningu standast ekki skoðun. Myndir beina fókusnum að göngusvæðinu austan á brúnni og eru þær teknar milli 5 og 6 að morgni um hásumar ef marka má skuggana. Eins og fulltrúi Flokks fólksins fékk ábendingu um, þá er stórgalli að hafa ekki göngustíginn vestan megin og hjólastíginn austanmegin. Hér er verið að hygla hjólreiðamönnum í stað þess að leggja áherslu á gangandi vegfarendur. Gönguleið er ávallt sjávarmegin á sambærilegum mannvirkjum. Flokkur fólksins hefur reynt að vekja athygli á þessu en fær enga hlustun. Upplifun gangandi vegfaranda er ekki mikils metin. Upplifun af sjávarsýn tapast þegar horft er yfir brú, handrið, strætisvagn að hjólandi vegfarendum. Þetta er mikill “galli” í svo kostnaðarsömu mannvirki. Í svari við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um málið er gert lítið úr þessu með því að segja að “einhver skuggamyndun verður frá kantbitum í vesturkanti þar sem þeir standa hæst upp fyrir brúargólfið, en þar sem þeir eru lægri verður skuggamyndun ekki veruleg þar sem handrið er fremur gegnsætt” Fullyrt er að þessi tilhögun sé til að minnka þveranir en það stenst ekki því að þegar þveranir eru taldar sést að þær eru jafnmargar hvort sem hjólreiðamenn fara vestan- eða austan megin.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á athugasemdum sem bárust á kynningartíma matsáætlunar og lýsingar umhverfismats aðalskipulagsbreytingar vegna Sundabrautar ásamt áætluðum viðbrögðum við þeim:
Í gagni er sagt frá athugasemdum sem hafa borist um Sundabraut, þær eru margar. Flokkur fólksins þarf ekki endurtaka það sem kemur fram í athugasemdunum, en bendir þó á að lega Sundabrautar þarf að vera þannig að náttúrunni sé hlíft, einkum náttúrulegum fjörum og strandsvæðum, sem hefur verið gengið á á undanförnum áratugum. Í þessu tilfelli þarf einkum að taka tillit til umhverfis í Leiruvog og Blikastaðakró og hindra ekki vatnsskipti inn í þau svæði. Stefna á að þar verði byggðar brýr en ekki notast við landfyllingu. Afar brýnt er að rannsóknir á áhrifum framkvæmda á straumafar og setflutninga verði gerðar og að hönnun brúar tryggi örugg vatnsskipti og að engin neikvæð áhrif verði af henni.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram greinargerð um stöðu sorphirðu í Reykjavík og svar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um sorphirðu í Reykjavík:
Enda þótt Sorpa komi hvergi nærri sorphirðu við heimili á höfuðborgarsvæðinu er ekki þar með sagt að Sorpa eða meirihlutinn í borginni geti fríað sig ábyrgð ef illa gengur. Sorpa og borgin bera alltaf ábyrgðina. Terra sinnir losun á pappír, plasti, gleri og málmum skv. samningi í kjölfar útboðs. Miklir erfiðleikar hafa verið í sorphirðumálum þeim sem snýr að Terru. Tafir á hirðu og aukið álag á grenndarstöðvum m.a. þar sem hirðuaðilarnir Íslenska gámafélagið og Terra ákváðu skyndilega að fjarlægja endurvinnslutunnur sem þessir aðila buðu íbúum uppá. En hér má sjá galla útvistunar í hnotskurn. Þegar búið er að útvista verkefni og þjónustan versnar þvær meirihlutinn hendur sínar og segir að þetta komi okkur ekki við. Vel má sýna þessu skilning en ekki endalaust. Umburðarlyndi þarf líka að vera á báða bóga. Fólk er enn að læra að flokka og venjast kerfinu. Sorpa hefur ekki alltaf sýnt því umburðarlyndi t.d. ef fólk hefur ekki flokkað rétt er tunnan ekki tekin. Það þarf að tæma tunnur þannig að fólk geti flokkað. Nýr samningur um leigu og losun grenndargáma fyrir pappír, plast, gler og málma tekur gildi nú í febrúar og vonandi mun þetta ganga betur en síðustu mánuði.
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks Fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins vill ítreka þessa tillögu [USK23110322] á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 31. janúar 2024 en tillagan var lögð var fram 13. des. 2023 og hljóðaði eftirfarandi:
Lögð fram svohljóðandi tillaga Flokks fólksins gerð verði breyting á samráðsfyrirkomulagi í kjölfar hönnunarsamkeppni. Lagt er til að um leið og vinningstillaga liggur fyrir skuli gera deiliskipulag í samræmi við vinningstillöguna til þess að hægt sé að gefa almenningi kost á að senda inn formlegar athugasemdir áður en að fullnaðarhönnun fer af stað: Flokkur fólksins leggur til að gerð verði breyting á samráðsfyrirkomulagi í kjölfar hönnunarsamkeppni.
Lagt er til að um leið og vinningstillaga liggur fyrir skuli gera deiliskipulag í samræmi við vinningstillöguna til þess að hægt sé að gefa almenningi kost á að senda inn formlegar athugasemdir áður en að fullnaðarhönnun fer af stað. Nauðsyn þess að breyta þessu ferli kom glöggt í ljós í verkefni um Fossvogsbrú. Nú í september 2023 tæpum tveim árum eftir að vinningstillagan var tilkynnt var auglýst breyting á deiliskipulagi við brúna. Þá var hönnun brúarinnar nánast fullkláruð í trássi við gildandi deiliskipulag og athugasemdir almennings nánast tilgangslausar. Búið er að eyða allt of miklum tíma í hönnun til að hægt sé að breyta nokkru núna. Óhæft er með öllu að svör við athugasemdum séu að koma fram á sama fundi og samþykkt er að mæla með breytingunni fyrir borgarráð. Þeir sem senda inn athugasemdir gefst ekki kostur á að skoða svörin og koma með andmæli/viðbrögð við þeim. Til hvers er fólki boðið að koma með athugasemdir ef ekkert er gert við þær? USK24010344
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um óeðlilega afgreiðslu á Rafstöðvarvegi 31.
Vísað er til máls nr. 2 í fundargerð skipulagsfulltrúa frá 11 janúar en þar var samþykkt að veita leyfi fyrir svalaskýli við vesturgafl á svölum á Rafstöðvarvegi 31. Í fundargerð var síðan búið að afmá alla umfjöllun um málið eins og það hafi aldrei verið tekið fyrir. Fulltrúi Flokks fólksins óskar skýringa á þessu og hvað þarna hefur átt sér stað? USK24010345
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um óafgreidd mál Flokks fólksins:
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um óafgreidd mál Flokks fólksins hjá umhverfis- og skipulagsráði/sviði. Óskað er eftir yfirliti yfir fyrirspurnir og tillögur frá Flokki fólksins ásamt dagsetningu þeirra sem enn er ósvarað/óafgreitt hjá umhverfis- og skipulagssviði. USK24010346
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fatasöfnun á kostnaðarverði:
Sorpa tekur að sér fatasöfnun á kostnaðarverði. Þetta er mikið þarfaverk. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvað sé kostnaðarverðið? Spurt er einnig hve mikið þessi þáttur hefur áhrif á hækkun gjalda hjá Sorpu? Væri það betra, hagkvæmara fyrir útsvarsgreiðendur ef þetta verk væri hjá öðrum aðilum en hjá Reykjavíkurborg? USK24010349